Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1981, Qupperneq 34

Freyr - 01.03.1981, Qupperneq 34
Helstu einkenni riðuveiki í sauðfé Eftir Pál A. Pálsson, yfirdýralækni Þegar fjárhópur er skoðaður með tilliti til riðuveiki, verður að hafa tvennt í huga: Einkenni veikinnar sjást varla á kindum fyrr en þær eru veturgamlar. Algengust er veikin í kindum 2—4 vetra, en getur oft komið fram í eldra fé, einkum þar sem veikin er að byrja í fjárhópnum. Byrjunareinkennin eru nokkuð breytileg frá degi til dags, meira áberandi suma daga en aðra og mislangur tími líður þar til einkenni verða stöðug. Því getur þurft að skoða kind á þessu stigi oftar en einu sinni til að verða viss í sinni sök. Oft skortir nokkuð á, að öll einkenni riðuveiki komi fram í einni og sömu kindinni. Fyrstu einkenni riðuveiki munu vera þau, að kindin legg- ur af þrátt fyrir góða lyst og er oft óeðlilega þorstlát. Ótti og hræðsla gerir fljótt vart við sig, en þetta getur verið erfitt að greina og meta fyrir menn, sem ókunnir eru fénu. Þessar kindur kippast stundum snögglega við meðan þær eru að éta, hrökkva frá garðanum, án þess að þær verði fyrir styggð, jafna sig þó fljótt aftur (eftir 1—2 mínútur) og taka til við gjöfina á ný. Þessi hræðsla kemur best í ljós, ef reyna á að handsama kindina, hún æðir þá á hvað sem fyrir er, og sé hún dregin til, eftir að búið er að ná henni, hnígur hún oft niður. Sé tekið þéttfast í horn á kindum, sem eru með veikina á byrjunarstigi, má oft finna örfínan titring á höfðinu. Ef kindur þessar eru skoðaðar nákvæmlega, má oft merkja smá krampadrætti í kring um augun og í kjálkavöðvum. Tannagnístur er áberandi hjá riðukindum, sfandi þær eða liggi óáreittar. Þar sem kláði fylgir riðu, má oft sjá að hyrnt fé er að reyna að klóra sér með hornunum og síðar fer það að nudda sér upp við staura, veggi og stoðir. Ef riðukind er klórað létt ofan í bakið, virðist hún hafa fróun af því, teygir fram snoppuna og kjamsar í sífellu líkt og kláðakind. Mjög er misjafnt hvað þessi fyrstu'einkenni riðu standa lengi. Ef vel er fylgst með kindinni, sést, að þau geta varað vikum saman. Því næst fara að koma fram hin eiginlegu riðueikenni. Kindin missir vald á hreyfing- um, fer að verða óstyrk í fótum eins og hún missi fótanna, einkum ef hún er rekin upp í móti eða eftir ósléttu landi. í byrjun kemur óstyrkleikinn mest fram í öðrum hvorum afturfæti og ágerist svo smám saman. Best sést þetta, þeg- ar kindin er látin hlaupa. Henni hættir þá til að hnjóta eða heykjast í fætinum, missir eðlilegan hlaupatakt. Síðar verða hlaupin álappaleg, hún slettist til að aftan, ber framfæturna óeðlilega hátt og hleypur stundum líkt og hún væri í hafti á afturfótum, hættir þá til að velta um koll og fær þá stundum krampakast. Samfara þessum breytingum á fótaburði fer oft að bera á titringi eða riðu á hausnum og er það mest áberandi, þegar kindin hefur reynt á sig. Smám saman missir kindin þrótt, þreytist fljótt í rekstri, vill liggja mikið. Stundum fylgir riðu ákafur kláði, er oft kemur fram áður en truflana í gangi verður vart. Getur kindin orðið viðþolslaus, tætir af sér ullina og er sífellt að klóra sér eða nudda upp við stoðir, staura eða börð. Stundum sést að riðu- sjúklingar naga eða sleikja fæturna 194 — FREYR

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.