Freyr

Årgang

Freyr - 01.03.1981, Side 35

Freyr - 01.03.1981, Side 35
í sífellu vegna kláðans, geta jafnvel nagað sig til blóðs. Smám saman dreguraf kindinni. Hún getur ekki gengið nema stutt í einu, missir meir og meir vald yfir hreyfingum og getur að lokum ekki staðið upp hjálparlaust. Jafnframt ágerist titringur og riða bæði á haus og ganglimum. Önnur einkenni, sem stundum sjást hjá riðusjúklingum er áber- andi nasarennsli, röddin breytist, verður sérkennilega hás, sumar kindur missa röddina að mestu. Einstöku kindur missa sjón. Mjög er misjafnt, hve langur tími líður frá því kind veikist, þar til yfir lýkur. Lambfullar og ný- bornar ær virðast þolminnstar, drepast oft 3—4 vikum eftir að fyrst sér á þeim. Geldfé stenst sjúkdóminn lengur, nokkra mán- uði. Skoðun á fjárhóp vegna riðu: Þegar fjármaðurinn hefur verið inntur ítarlega eftir heilsufari f járins, er féð skoðað í húsunum og þess gætt, hvort nokkur kind hafi úfna ull eða sé að klóra sér, hvort nokkur kind dragi sig útúr, gnísti tönnum eða sýni óeðlilega styggð eða ótta. Ef fjárhópurinn er rekinn upp brekkur eða hratt á ósléttu landi, er aðgætt, hvort hreyfingar séu óeðlilegar, hvort helti geri vart við sig, eða hvort slappleika eða þróttleysis verði vart. Grunsamlegar kindur eru síðan teknar til nánari athugunar og aðgætt, hvort hjá þeim finnist eitthvert þeirra einkenna, sem að framan er lýst. Hvað skal gera við grunsamlega kind? 1. Einangra hana strax og til- kynna héraðsdýralækni (eða trúnaðarmanni), sem ákveður, hvernig með skal fara. Látið al- drei grunsamlega kind til lamb- anna, í fjós eða hlöðu. 2. Ef riðuveiki er líkleg, skal lóga kindinni, taka sýni til rann- sóknar, ganga frá hræinu og hreinsa bæli kindarinnar. Allt í samráði við dýralækni. 3. Skrá skal (sérst. eyðubl.): Númer, nafn, aldur, útlit og einkenni sjúkdóms, dvalarstaði og ef unnt er afkvæmi, foreldra og annað náskylt fé. Ráðlagt er að lóga því, ef riðuveiki er staðfest (næsta sláturtíð t. d.). 4. Dráttur á að einangra og til- kynna grunsamlegar kindur og lóga þeim getur magnað smit- hættu. Hvað skal gera, þegar riðuvciki finnst á nýjum stað? 1. Tilkynna sveitarstjórn um veikina og gera ráðstafanir til að merkja allt fé á bænum með rauðum plastmerkjum, er sýni bæjarnúmer og sveitarfélag samkv. lista í markaskrá. 2. Taka upp skráningu á fé, þar sem ekki er bókhald. Færa skal auk númera: Nafn. aldur, útlit og afkvæmi hverrar kindar, svo að unnt sé að rekja með vissu ættir kinda sem veikjast, bæði föðurætt og móðurætt. 3. Vara þá við, sem fengið hafa fé á bænum og stöðva þegar í stað sölu og að láta fé til lífs og dval- ar af bænum. Leita skal leyfis Sauðfjársjúkdómanefndar fyrir nýjum aðflutningi á fé (reglug. 18/7 1957). 4. Efla hreinlæti við alla meðferð á fóðri og drykkjarvatni. Reynt skal að viðhafa sem allra mest hreinlæti, þar sem ær bera og forðast að láta féð ganga of þétt um burðinn. Brenna ætti eða grafa hildir vegna mikillar smithættu af þeim og láta vera að marka og merkja lömbin í karinu. 5. Við merkingar, mörkun, sprautun og allar aðgerðir, þar sem féð blóðgast, skal viðhafa strangasta hreinlæti. Þvo skal og sótthreinsa verkfæri s. s. hnífa, tengur, klippur (sápa, bursti, joðsambönd) og skipta oft um nálar. Laga skal hvassar brúnir á drykkjarílátum, nagla, flísar og annað sem sært getur féð vegna hugsanlegrar smit- hættu. Ráðlegt gæti verið, að úða eða bera sótthreinsiefni á naflastreng nýfæddra lamba. 6. Hafa skal vakandi auga með fénu með tilliti til byrjunar- einkenna og umfram allt að lóga fyrir burð þeim kindum sem grunsamlegar verða, áður en þær bera. Hafa ber hugfast, að kindur kunna að smita út frá sér nokkurn tíma, áður en ein- kenna verður vart og að rið- uveiki kemur oftast fram síðar í afkvæmum þeirra. Óheppilegt er að hafa burðarstíur í hlöðum. 6. Verjist nýju smiti inn á bæ- inn. ■ Gölturinn hafði áhrif. Gyltum og grísum þeirra var skipt í þrjá hópa þrem vikum eftir got í tilraun á búnaðarháskólanum í Aberdeen í Skotlandi. Fjórum dögum síðar var þeim sýndur göltur. Beiddu þá aðeins tvær af 21 mjólkandi gyltu, sem komst í kynni við göltinn en engin mjólkandi gylta í samanburðar- hópnum beiddi. Nærvera galtarins hafði þau áhrif á mjólkandi gyltur að þær beiddu fyrr eftir að vanið hafði verið undan þeim, eða 2,28 dögum eftir fráfærur, en gyltur þær sem hafðar voru til samanburðar og ekki komust í snertingu við gölt beiddu 10 dögum eftir fráfærur. Munurinn var tölfræðilega raun- hæfur. Engin af gyltunum, sem naut samvista við gölt beiddi síðar en níu dögum eftir fráfærur. freyr — 195

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.