Freyr - 01.11.1983, Blaðsíða 33
Endurgreiðsla á sölugjaldi af dráttarvélum
777 innheimtumanna ríkissjóðs.
Ráðuneytið tilkynnir yður hér
með að það hefur ákveðið að fyrst
um sinn og þar til öðru vísi kann
að verða ákveðið skuli endur-
greiða sölugjald af dráttarvélum í
tnr. 87.01.31 sem keyptar kunna
verða eftir 30. september 1983 af
bændum á lögbýlum. Umsókn um
endurgreiðslu skal skilað til við-
komandi innheimtumanns, sem
endurgreiða skal sölugjaldið að
uppfylltum eftirgreindum skil-
yrðum:
a) Umsækjandi endurgreiðslu sé
bóndi á lögbýli og framvísi
staðfestingu Stofnlánadeildar
landbúnaðarins því til sönn-
unar.
b) Dráttarvél sé skráð á nafn um-
sækjanda.
c) Framvísað sé frumriti reikn-
ings yfir hina keyptu dráttarvél
er beri greinilega með sér fjár-
hæð innheimts sölugjalds, auk
upplýsinga um tegund, árgerð,
vélarnúmer og verksmiðju-
númer dráttarvélarinnar.
d) Umsækjandi gefi út yfirlýs-
ingu, sbr. hjálagt sýnishorn,
sem þinglýst skal sem kvöð á
viðkomandi dráttarvél.
Verði eigandaskipti á dráttarvél
sem sölugjald hefur verið endur-
greitt af, innan fimm ára frá
endurgreiðsludegi skulu hlutfalls-
legar eftirstöðvar sölugjalds
endurkræfar að viðbættum vöxt-
um frá endurgreiðsludegi. Vext-
irnir skulu vera jafnháir hæstu
lögleyfðu fasteignaverðlánsvöxt-
um, eins og þeir kunna að verða
ákveðnir af Seðlabanka íslands á
hverjum tíma. Ef dráttarvél sem
sölugjald hefur verið endurgreitt
af, er seld bónda, skal ekki inn-
heimta hið hlutfallslega sölugjald
enda séu skilyrði þau sem um
getur af framan að öðru leyti upp-
fyllt.
Hjálagt fylgja nokkur eintök af
umsóknareyðublöðum, sem nota
skal í sambandi við endurgreiðslu
þessar. Fyrst um sinn verður hins
vegar að notast við ljósrit af yfir-
lýsingunum, en innan tíðar verða
þær sendar yður sérprentaðar í
þríriti. Frumritið af yfirlýsingunni
skal vera í yðar vörslu. Að öðru
leyti skulu ákvæði 4. til og með 6.
gr. auglýsingar nr. 8/1981 um
niðurfellingu eða endurgreiðslu
aðflutningsgjalda og/eða sölu-
gjalds af ýmsum aðföngum til
samkeppnisiðnaðar gilda eftir því
sem við getur átt.
Fjármálaráðuneytið,
28. september 1983.
Reglugerð nr. 645/29. september 1983
um breyting á reglugerð nr. 486H982 um söluskatt með siðari
breytingum
1. gr.
Við 13. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 27. tl., svohljóð-
andi:
Vörur, sem falla undir eftirtalin tollskrárnúmer, sbr. 1. gr. laga nr.
120/1976 um tollskrá o. fl., með síðari breytingum:
84.11.41 Heyblásarar
úr 84.17.22 Mjólkurkælar
úr 84.20.10 Fjárvogir
84.22.31 Heyblásarar (til að færa hey)
84.23.61 Ámoksturstæki við almennar hjóladráttarvélar
84.24.10 Plógar
úr 84.24.20 Áburðar- og mykjudreifarar, kartöfluniðursetn- ingarvélar
84.24.31 Herfi
úr 84.24.40 Valtarar og flagjafnarar
84.25.31 Sláttuvélar, aðrar en garðsláttuvélar
84.25.32 Upptökuvélar fyrir kartöflur og aðra garðávexti
84.25.33 Rakstrar- og snúningsvélar
úr 84.25.39 Múgavélar, rúllubindivélar og heybindivélar
84.25.41 Flokkunarvélar
84.26.10 Mjaltavélar
85.07.01 Fjárklippur
87.14.21 Vagnar búnir tækjum til losunar og/eða lestunar á heyi
87.14.22 Vagnar búnir tækjum til áburðardreifingar
87.14.23 Vagnar búnir tækjum til heyvinnslu
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum nr. 10/1961 um
söluskatt með áorðnum breytingum, öðlast gildi frá og með 1. október 1983.
Fjármálaráðuneytið, 29. september 1983.
F. h. r.
Höskuldur Jónsson.
Þorsteinn Geirsson.
ffifWÍ — 881