Freyr - 15.07.1987, Qupperneq 9
Þau Hreinn og Erna eiga fimm
börn, fjóra sonu og eina dóttur.
Viðar er elstur, hann er að ljúka
námi í bókmenntafræði frá Hafn-
arháskóla. Sigurgeir bóndi á Hrís-
hól II er næstur, þá er Kristján
sem stundar nám í viðskiptafræði
við Háskóla íslands. Ævar er
yngstur bræðranna, kaupamaður
á Hríshóli. Hann hefur gaman af
hestum og á 6 af 11 hestum á
búinu. Helga er yngst systkin-
anna. Hún var fermd í fyrra og
vinnur á Raufarhöfn í sumar.
Sigurgeir og Bylgja eiga tvo
börn, Elmar, 5 ára og Ernu 3ja
ára. Var Elmar fylgdarsveinn
undirritaðs úti við í heimsókninni í
Hríshóli og var hinn skemmtileg-
asti félagi.
Fréttamaður Freys kom í Hrís-
hól síðdegis á sólstöðudaginn. Var
þá sólfar mikið og þurrkur í Eyja-
firði. Hríshólsbændur voru ný-
byrjaðir að slá. Þeir sögðu að
þurrkar háðu mjög sprettu á þurr-
Íendum túnum og að roðamaur
spillti grasvexti. Feðgarnir Hreinn
og Sigurgeir voru við kvöldmjalt-
ir, en Ævar var að garða hálfþurrt
hey við bæinn.
Úrvalsgripir.
Hríshólskýrnar eru afbragðs
góðar, sem kunnugt er. Frægust
þeirra er Fía, sem setti íslandsmet
í afurðum árið 1983, mjólkaði það
ár 9551 kg. Hún er nú orðin 11
vetra en mjólkar samt enn vel, er
hraust og hefur varla orðið mis-
dægurt um ævina. Skammt frá
henni í fjósinu stendur dóttir
henna Gola, annar úrvalsgripur.
Hún er nauðalík móður sinni í
útliti.
Elmar sýndi mér aliendurnar.
Ein þeirra lá á eggjum í horni
blómagarðsins. Hún hreyfði sig
ekki þó að við kæmum alveg fast
að henni. Tvær kollur lágu á í
sama hreiðri í lækjargili við bæinn.
Erna húsfreyja sem á fallegan og
vel hirtan blóma- og trjágarð sagði
að endurnar hefðu ætlað að búa
sér til hreiður út um allan garð en
hún hefði ekki verið á því að leyfa
þeim það og fundið kollunum
aðra hreiðurstaði.
Ævar sagði að öndunum væri
slátrað rúmlega fjögurra mánaða
á haustin og kjötið af þeim lagt til
heimilanna á Hríshóli og svo not-
að í gjafir til vina og vandamanna.
Endurnar fengju fóðurblöndu og
svo bitu þær gras á túninu.
Ævar hafði Iokið við að garða
Pheyið og fór út í hesthús að
hyggja að Blæ, þriggja vetra grað-
fola sem hann á undan Náttfara og
hryssu frá Borgarhóli. Pað var von
á tveim hryssum í heimsókn til
folans. Ævar leiddi folann út í
gerði og á meðan tók fréttamaður
mynd af þeim. Og nú sást til
ríðandi manns með tvo til reiðar
niðri á eyrum. Það var Gunn-
laugur Björnsson í Arnarfelli. Þeir
Ævar leiddu hrossin þrjú upp í
hestahólf og skildu þau þar eftir.
„Það eru of mörg hross hérna,
hér er eiginlega ekki hrossaland“
sagði Ævar.
Byggingar og ræktun.
Þegar Hreinn og Erna komu
fyrst í Hríshól var túnið þar 18
Fjós, hlaða og vélageymsla. Elmar Sigurgeirsson nœr á myndinni.
Úr fjósinu á Hríshóli.
Freyr 537