Freyr - 01.11.1987, Qupperneq 18
Frá verðlaunaafhendingunni, taldir frá vinstri: Leifur Kr. Jóhannesson, Vilhjálmur Einarsson, Ágústa Porkelsdóttir, Ólöf
Kristófersdóttir og Sigurður Guðmundsson.
vinnu, t.d. yfir vetrartímann.
Bændur gætu síðan sjálfir séð um
uppsetningu eða keypt slíka vinnu
af þeim þjóðhagasmiðum sem
finnast í öllum sveitum. Með því
móti mætti auka vinnu og tekjur
fólks í sveitum, jafnt við smíði sem
rekstur „Gestastofu“.
Einnig mætti vel hugsa sér að
burtfluttir sveitamenn vildu kaupa
sér gestastofupakka og reisa sér
slíkt hús á gamla kvíabólinu heima
í heiðardalnum, til skemmri dval-
ar þegar sviði kemur í átthaga-
taugarnar.
Ef Ferðaþjónusta bænda tekur
þessa hugmynd ekki inn í rekstur-
inn má hugsa sér að búnaðarsam-
böndin veittu bændum lið og
hryntu gestastofuhugmyndinni í
framkvæmd.
2. verðlaun: Bókhaldsþjónusta
og tölvuvinnsla.
Höfundur: Guð-
mundur Guð-
mundsson, Blika-
stöðum.
Höfundur bendir á nýjung sem
866 Freyr
breyttir tímar hafa gert sveitafólki
kleift að nýta sér, þ.e. ýmiss konar
gagnavinnslu fyrir bókhaldsskrif-
stofur og stærri fyrirtæki. Slíka
atvinnu er hægt að stunda nánast
hvar sem er á landinu, tól og tæki
ekki mjög kostnaðarsöm og sér-
hæfni sem tii þarf fljótlegt að
tileinka sér.
í flestum byggðakjörnum þar
sem búa 1000 manns eða fleiri eru
rekin fyrirtæki sem þurfa að
kaupa slíka þjónustu og því mark-
aður þónokkur nú þegar og ljóst
er að hann á eftir að vaxa. í stærri
byggðarlögum má hugsa sé mið-
stöð sem miðlaði slíkri vinnu til
sveitanna, en í smærri byggðar-
lögum gæti hver starfsmaður verið
í beinu sambandi við þann aðila
sem kaupir þjónustuna.
Vélritunarkunnátta og undir-
staða í bókhaldsþekkingu er að
verða liður í námi grunnskólanna,
þannig að allir þeir sem á næstu
árum setjast að búi í sveitum hafa
þá hæfni sem þarf til að stunda
þessa vinnu.
Atvinnu þessa á að vera auðvelt
að laga að almennum bústörfum, í
það minnsta meðan ekki er hægt
að stækka búin svo að þau skapi
öllum lífvænlegt framfæri.
3. verðlaun: Sveitasamstæða —
sumarskóli.
Höfundur: Ólöf
Kristófersdóttir
Útgörðum.
Hugmyndina um „sveitasam-
stæðu, sumarskóla fyrir útlend-
inga“ völdu dómnefndarmenn
vegna þess ekki síst að hún höfðar
til þeirrar menningar sem við telj-
um ennþá þrífast í sveitum.
Ef hugmyndin kemst í fram-
kvæmd, má allt eins hugsa sér
slíka fræðslustarfsemi rekna fyrir
íslendinga.
Mjög áhugavert samstarf gæti
með þessu kviknað milli fræði-
manna og kennara og sveitafólks
sem tæki nemendur í fæði og hús-
næði. Pessa starfsemi mætti setja
undir Ferðaþjónustu bænda og/
eða reka í tengslum við þá starf-
semi.