Freyr - 15.11.1989, Síða 22
Ný námsskrá við Bændaskólann á
Hvanneyri
Síðastliðið haust var hafin kennsla samkvœmt nýrri námsskrá við Bœndadeild Bœnda-
skólans á Hvanneyri. Þeir sem hófu þá nám á fyrsta námsári fylgja þeirri námsskrá en
annars árs nemar Ijúka námi samkvœmt hinni eldri.
Ákvörðun um nýja námsskrá er
viðbrögð skólans við nýjum að-
stæðum í landbúnaði. Á Hvann-
eyri hefur um langan aldur verið
rekinn búnaðarskóli með höfuðá-
herslu á kennslu í hefðbundnum
búskap hér á landi, þ.e. nautgripa-
og sauðfjárrækt, og greinum sem
tengjast honum, þ.e. jarðrækt, bú-
tækni og hagfræði. Aðrar búgrein-
ar hafa þar einnig átt sinn hlut, svo
sem hrossarækt, svínarækt, ali-
fuglarækt og kartöflurækt. Á síðari
árum hefur svo verið tekin upp
kennsla í nýbúgreinum og leitast
við að gefa þeim nokkurt forskot.
Má þar nefna loðdýrarækt,
kanínurækt og ferðaþjónustu.
Alyktun skólanefndar
Við Bændaskólann á Hvanneyri er
starfandi skólanefnd. Á fundi
hennar á sl. vori, í tengslum við
aldarafmæli skólans, samþykkti
hún ályktun þar sem lagt er til að
endurskoðað verði markmið og
skipulag kennslu við skólann, bæði
í Bændadeild og Búvísindadeild,
sem og endurmenntunarstarf
skólans og rannsóknahlutverk
hans.
Kennarafundur skólans fékk
þessa ályktun til úrvinnslu og fól
þremur kennurum að gera tillögur
um nýj a námsskrá við Bændadeild-
ina. Þeir voru Magnús Óskarsson,
sem falið var að stjórna hópnum,
Runólfur Sigursveinsson og Sig-
tryggur Björnsson.
Tillögurstarfshóps
Vinna starfshópsins leiddi til að við
endurskoðun námsskrár skyldi
Töluvert starf er framundan við endurnýjun kennsluefnis vegna nýrrar
námsskrár.
924 Freyr
22. NÓVEMBER 1989