Freyr

Volume

Freyr - 15.06.1990, Page 7

Freyr - 15.06.1990, Page 7
Landbúnaður á Austurlandi í þessu blaði er viðtal við Aðalstein Jónsson bónda í Klausturseli á Jökuldal og formann Búnaðarsambands Austurlands. í 6. tölublaði Freys á þessu ári var viðtal við Lárus Sigurðs- son á Gilsá í Breiðdal, oddvita og sveitarstjóra Breiðdalshrepps og formann Félags sauðfjár- bænda á Suðurfjörðum (Austfjarða). í báðum þessum viðtölum er m.a. greint frá þeim niðurskurði á sauðfé sem átt hefur sér stað á stærstum hluta umdæmis Búnaðarsam- bands Austurlands og enn er ekki lokið. Peir Aðalsteinn og Lárus leggja megin áherslu á það að mestu máli skipti um möguleika á lífsafkomu og búsetu í dreifbýli á þessu svæði að sá fullvirðisréttur til sauðfjárframleiðslu, sem þetta svæði á yfir að ráða, verði ekki rýrður frá því sem nú er. Með því er átt við að sú fjárpest sem verið er að glíma við á svæðinu um þessar mundir verði ekki notuð til að draga úr sauðfjárrækt á svæðinu, heldur deilist réttur þeirra sem hætta fjárbúskap á þá sem halda honum áfram. Ástæða er til að taka undir þessa kröfu. Henni til stuðnings má vísa til þess að í viðauka við núgildandi búvörusamning sem gerður var milli hlutaðeigandi aðila, Steingríms J. Sigfús- sonar, landbúnaðarráðherra, f.h. Ríkisstjórn- ar íslands, annars vegar, og Stéttarsambands bænda, hins vegar, og undirritaður var 22. september 1989, segir svo: „Aðilar eru sammála um að halda áfram, í beinu framhaldi af ofanrituðu samkomulagi, viðræðum um framtíðartilhögun framleiðslu- stjórnunar og um nýjan grundvöll búvörufram- leiðslunnar sem taki við af núgildandi búvöru- samningi. Þá verði jafnframt mótaðar tillögur um aðgerðir til að tryggja aðlögun búvöru- framleiðslunnar að þeim skilyrðum sem aðilar verða sammála um að við taki 1992. Einkum á þetta við um sauðfjárrækt og verði leitað allra leiða til að kalla fram frekari aðlögun sauðfjár- framleiðslunnar að markaðsaðstæðum án þess að af hljótist byggðaröskun. Verði sérstaða byggðarlaga og landshluta, sem alfarið byggja á sauðfjárrækt, sérstaklega metin í þessu sam- bandi.“ (Leturbreyting Freys). Alkunna er að staða byggðarinnar allt í kringum landið er misjafnlega sterk eftir þann samdrátt á landbúnaði sem orðið hefur á síðari tímum, einkum þeim áratug sem nú er að líða. I stórum dráttum má segja að því meira sem einstök héröð byggja afkomu sína á kúabú- skap, þeim mun sterkara stendur byggðin. Þar sem mjólkurframleiðsla er burðarásinn má víða sjá að aukabúgreinar, sem og sérhæfður rekstur í öðrum greinum landbúnaðar, standa traustum fótum. Önnur tekjuöflun hjálpar þar líka til. Þar sem sauðfjárrækt er undirstaða búskap- ar í heilum héröðum má hins vegar lítið út af bera til að byggð hrynji og þar þrífst ekki á sama hátt annar búskapur. Nálægð við markað skiptir hér oft sköpum. Áf lélegri afkomu í sauðfjárbúskap leiðir að eðlileg endurnýjun bænda í þeirri grein á sér ekki stað. Þegar slíkt ástand hefur staðið um nokkurt árabil verður áberandi að eðlileg ald- ursskipting bænda raskast, meðalaldur hækk- ar. Þar sem það gerist á sér það jafnframt stað að húsakostur og aðrar fjárfestingar endurnýj- ast ekki eðlilega og hnignun og síðan hrun byggðar blasir við. Þá hnignun byggðar hafa menn horft upp á alllengi, margir döprum huga, en aðrir af- skiptalausir og sumir jafnvel allshugar fegnir, undir þeim formerkjum að hið óhjákvæmilega hljóti að hafa sinn gang. Víðlendasta svæði landsins sem stendur andspænis þessari stöðu mála er Austurland, þó að búskapur sé þar vissulega misjafnlega á sig kominn, frá því að vera í góðu horfi í það að horfa illa. Um leið og halda þarf vel utan um þá undirstöðu sem sauðfjárræktin er, þarf að beina kröftunum að þeim vaxtarmöguleikum sem eru í landsfjórðungnum. Þar ber ferða- þjónustu hátt, m.a. vegna þess sambands sem er við önnur lönd með áætlanasiglingum ferj- Frh. á bls. 496. 12. JÚNl 1990 Freyr 471

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.