Freyr

Volume

Freyr - 15.06.1990, Page 30

Freyr - 15.06.1990, Page 30
Á fundi stjórnar Stéttarsambands bœnda 13. júní sl. gerðist m.a. þetta: Nýr starfsmaður Stéttarsambands bænda. Guðbjörn Árnason, búnaðarhag- fræðingur, frá Teigi í Fljótshlíð, hefur verið ráðinn til starfa hjá Stéttarsambandi bænda frá 1. júní sl. í fjarveru Gunnlaugs A. Júlíus- sonar. Skilagjald af plastfilmu. Lagt var fram bréf frá bændum sem sóttu námskeið í heyverkun með rúlluböggum á Hvanneyri á sl. vetri þar sem lagt er til að komið verði á reglum um skilagjald á plastfilmu utan af rúlluböggum. Samþykkt var að vísa erindinu til fyrirhugaðs fagráðs í bútækni. Haughús viðfjós. Um sl. áramót tók gildi breyting á reglugerð um mjólk og mjólkur- vörur, nr. 35/1986 þar sem gefinn er frestur til nk. áramóta til að byggja haughús við fjós þar sem þau vantar. í framhaldi af því barst Stéttarsambandi bænda bréf frá heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt- inu, dags. 30. apríl sl., þar sem óskað er eftir tillögum frá Stéttar- sambandinu um framkvæmd reglugerðarinnar. Formanni og framkvæmdastjóra var falin áframhaldandi úrvinnsla málsins. Lög um Búnaðarmálasjóðs. Lögð voru fram nýsamþykkt lög um Búnaðarmálasjóð. Með lögum þessum er búgreinafélögunum fenginn sjálfstæður tekjustofn, 0,075% af útborguðu verði til bænda. Þó geta búgreinafélög önn- ur en félög nautgripa- og sauðfjár- bænda tekið allt að 1% gjald að fengnu samþykki Stéttarsambands bænda og landbúnaðarráðherra. Þá fær Búnaðarfélag íslands með þessum lögum tekjustofn 0,025% (0,05%) af útborguðu verði. Þetta ákvæði kom inn í með- förum Alþingis en var ekki upp- haflegum tilllögum. Þá er í lögum þessum ákveðinn tekjustofn fyrir forfalla- og afleysingaþjónustu í landbúnaði og gjaldtaka til Stofn- lánadeildar lækkuð að sama skapi. Lækkun á gjaldi til Stofnlánadeild- ar landbúnaðarins mætir einnig gjaldtöku til búgreinafélaga og Búnaðarfélags íslands. Heildargjaldtaka er því óbreytt, sbr. þó sérstaka heimild búgreina- félaga til viðbótar gjaldtöku. Þessi lög verða nánar kynnt í Frey. Tilnefning Stéttarsambands í Verðlagsnefnd búvara. Samþykkt var að tilnefna sömu menn og sátu síðasta ár í Verðlags- nefnd búvara, (Sexmannanefnd). Aðalmenn eru: Haukur Halldórs- son, formaður, Þórarinn Þorvalds- son og Þórleifur Sveinsson. Vara- menn eru: Böðvar Pálsson og Hákon Sigurgrímsson. Tilnefning í Ullarmatsnefnd. Samkvæmt 6. grein laga um flokk- un og mat ullar og gæra skal skipa þrjá menn í yfirmatsnefnd ullar. Skal Stéttarsambandið tilnefna einn mann. Samþykkt að tilnefna Þórarin Þorvaldsson í nefndina. Framleiðslurétturvið lok sauðfjárbúskapar. Lögð var fram tillaga frá Þórólfi Sveinssyni um að bændum sem hyggjast hætta sauðfjárbúskap verði heimilað að nýta í haust framleiðslurétt tveggja verðlags- ára. Samþykkt að mæla með þessu við landbúnaðarráðherra og Fram- kvæmdanefnd búvörusamninga. Mörk sveitarfélaga á hálendinu. Lagt var fram bréf Skipulags ríkis- ins þar sem kynnt er tillaga þess um mörk sveitarfélaga á hálendinu. í bréfinu kemur fram að nauð- synlegt sé að hafa skýrar línur í þessum efnum vegna ýmissa fram- kvæmda á hálendinu. Fram kemur að hér er eingöngu um hinn stjórnskipulega þátt að ræða og haggar á engan hátt þeim réttindum sem önnur sveitarfélög, einstakar jarðir eða einstakir aðilar kunna að eiga þar til upprekstrar, veiða eða annarra ítaka. Af- greiðslu málsins var frestað til næsta fundar. Æðardúnn óskast Greiðum fljótt og vel. FRICO heildverslun sími 91 -77311 494 Freyr 12.JÚNI 1990

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.