Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1991, Blaðsíða 10

Freyr - 15.04.1991, Blaðsíða 10
322 FREYR 8.’91 Úr kerskála í Hólalaxi hf. Pétur Brynjólfsson framkvœmdastjóri hugar að eldisbleikjunni. Freysmyndir J.J.D. Áhugi á bleikjueldi vaxandi Þar hafa skipst á skin og skúrir. Litiðinn íHólalax hf. „Bleikjueldi erbúgreirt sem vonir standa til að stunda megi á bœndabýlum víða um iand“ segir í ályktun síðasta Búnaðarþings um kynbœtur á bleikju. Nýlega hefur landbúnaðarráðu- neytið afráðið að auka rannsókn- arstarf og hefja kynbætur á bleikju. Þar er gert ráð fyrir að miðstöð þeirrar starfssemi verði að Hólum í Hjaltadal. Áformað er að Hólaskóli, Hóla- lax hf. Veiðimálastofnun og Rann- sóknastofnun landbúnaðarins standi saman að starfssemi kyn- bótastöðvarinnar. Nú þegar er í gangi rannsókn á mismunandi eðl- iskostum nokkurra bleikjustofna sem sóttir voru í eins ólíkar um- hverfisaðstæður og hægt var. Út- koma úr því verkefni mun gefa vísbendingar um hvaða stofn eða stofnar sýna yfirburði í eldi og þangað verður sóttur grunnur und- ir kynbótastarf framtíðarinnar. Nýlega stofnað fagráð bleikju- framleiðenda mun væntanlega stuðla að aukinni samvinnu á þessu sviði. Mikilvægt er að ekki gleym- ist að vanda vöruna og tryggja að hún seljist eða eins og það heitir á stofnanamáli um þessar mundir „að byggja upp vöruþróun og markaðssetningu.“ Fiskeldisstöðin Hólalax hf. var stofnuð sem liður í endurreisn Hólastaðar um og fyrir 1980. Hóla- nefnd, sem skyldi hafa forgöngu um uppbyggingu og framtíðarskip- an á staðnum, var sett á fót árið 1978. Á sama tíma voru lögð drög að stofnun Hitaveitu Hjaltadals og sjálfrennandi heitt vatn sótt að Reykjum. Síðastliðið sumar heimsótti fréttamaður Freys eldisstöð Hóla- lax hf. og hitti að máli Pétur Brynjólfsson, framkvæmdastjóra

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.