Freyr - 15.04.1991, Blaðsíða 21
8.’91
FREYR 333
Viðitrkenningarskjöldur frá jap-
anska stórfyrirtœkinu Isuzu■
gerðarmanna og samræma þjón-
ustuna.
Þeir sem hefur verið samið við
eru: BTB í Borgarnesi, Vélsmiðj-
an Klöpp á Borðeyri, Vélsmiðja
Húnvetninga á Blönduósi, Kaup-
félag Skagfirðinga á Sauðárkróki,
Þórshamar á Akureyri, Vélar og
Raf, Þórshöfn, Kaupfélag Héraðs-
búa, Egilsstöðum, Vélsmiðja
Hornafjarðar, Höfn, Kaupfélag
Árnesinga á Selfossi og Kirkjubæj-
arklaustri, Kaupfélag Rangæinga á
Hvolsvelli. Vélaverkstæði Sigurð-
ar Skarphéðinssonar í Mosfellsbæ
mun sjá um þjónustu fyrir Gull-
bringu- og Kjósarsýslusvæðið, auk
höfuðborgarinnar, á landbúnaðar-
tækjum og MF-landbúnaðar- og
iðnaðarvélum. Eftir er að semja
við fleiri aðila úti um land, en
ætlunin er að engir þurfi að sækja
þessa þjónustu um langan veg.
Véladeild Jötuns býr til notkun-
ar á Vélaverkstæði Samskipa við
Holtabakka í Reykjavík vélar sem
fyrirtækið flytur inn og er að því
mikið hagræði.
Hópur norskraþjónustumanha frá Alfa Lavalíheimsókn áíslandi. Myndin er
tekin í heimsókn á Hvanneyri.
Bandarískir bílar á ný
Síðustu ár hafa bandarískir bílar
selst dræmt hérlendis í samkeppni
við ódýrari bfla. Nú hefur Jötunn
náð hagstæðum samningum við
General Motors og flytur á næst-
unni inn tvo bandaríska eðalvagna
frá GM. Það eru Chevrolet
Corsica og Pontiac Grand Prix Le
Sedan. Kostar Corsican 1.375.000
kr. eða svipað og meðaldýr
japanskur fólksbíll.
J.J.D.
Áhugi á beikjueldi fer vaxandi.
Frh. afbls. 324.
hótel í nágrenninu. Af þeirri
reynslu sést að unnt er að fram-
leiða hana í sölustærð án þess að
hafa heitt vatn. Það byggist á því
að menn viti hvernig hægt sé að
nýta lindarvatnið okkar því það er
oftast öruggt yfir veturinn. Góður
kostur er að hægt sé einnig að ná í
yfirborðsvatn yfir sumarið, því það
eykur framleiðslumöguleikana.
Þannig staðir eru tvímælalaust allr-
ar athygli verðir þar sem þeir eru
nálægt byggðum bólum og ef þar er
fólk sem hefur áhuga á að verja
frítíma sínum til að sinna fiskeldi.
Haf a bœndur sýnt þessu
bleikjuverkefni áhuga?
Kannski ótrúlega lítið. En það
er eitt nýtt í þessu sem er að gerast,
bæði með bleikju og urriða. Þeir
sem eru með ferðaþjónustu, þurfa
að sjá gestum sínum fyrir dægra-
dvöl. Þá getur verið handhægt að
koma sér upp litlum tjörnum sem
vatni er hleypt í á sumrin, þær væru
kannski einn til tveir hektarar. Síð-
an er keyptur í þær eldisfiskur,
bieikjur eða urriði, 500 gr. eða
stærri, frá eldisstöð eins og okkar.
Jafnvel smærri fiskur, td. 300 til
500 gramma sjóbirtingur, kemur
að sömu notum og það þarf ekki
marga fiska í svona tjörn til þess að
bjóða fólki upp á að veiða í ef
veðrið er gott, fyrir nokkur hundr-
uð krónur. Og allir eru ánægðir ef
þeir geta svo sest niður með smá-
fólkinu og grillað veiðina í lokin.
Það þarf ekki endilega lax í þessar
tjarnir. Það er nóg að það sé ódýr-
ari fiskur sem ekki þarf að kosta
mikið. Síðan er hægt að tæma þess-
ar tjarnir á haustin og hvort heldur
að slátra fiskinum sem eftir er og
koma honum í verð eða fóðra hann
fram á haust og geyma síðan til
næsta suntars. Þetta er nýr mark-
aður sem er allrar athygli verður,
sagði Pétur Brynjólfsson.
J.J.D