Freyr - 15.04.1991, Blaðsíða 22
334 FREYR
8.’91
Betra fyrir bakið
Norðmenn taka 40 kg
áburðarpoka í notkun
Algengustu áburðartegundir frá Norsk Hydro verða frá 1.
júlí afgreiddar í 40 kílógramma pokum í stað 50 kg áður.
í frétt í Norsk landbruk segir að
margir hefðu heldur viljað 25 kg
poka, en það hafi reynst of dýrt.
Með nýju pokunum verður áburð-
artonnið 200-300 kr dýrara en ella.
Lestun áburðardreifara er púl
og það reynir mjög á bakvöðva að
lyfta áburðarpokum upp á barm á
dreifaraskál. Því er nauðsynlegt að
hafa vinnuaðstöðu sem haganleg-
asta og að geta stillt efri brún dreif-
araskálar í 60 til 80 cm hæð frá
jörðu.
Best er ef maður getur lyft sekk
frá áburðarbretti í dreifaraskál
uppréttur.
I bæklingi frá norskum vinnu-
rannsóknum (Arbeidsbelastning
og sikkerhet ved kunstgjödsel
handtering nr 25/90) segir að 50 kg
áburðarpokar séu of þungir til að
hafa á höndum og of mikil bak-
raun.
Norsk Hydro valdi 40 kg poka
vegna þess að þeir gátu það án þess
að þurfa að kaupa nýjar pökkunar-
vélar segir í grein í Norsk land-
bruk. Nýju sekkjunum er hlaðið á
bretti sem eru 100x120 cm að utan-
máli. Fimm pokar eru í hverju lagi
og fimm lög á hverju bretti sem þá
vegur 1000 kg.
Freyr hafði samband við Runólf
Þórðarson verksmiðjustjóra hjá
Áburðarverksmiðju ríkisins og
innti hann eftir hvort þeir hygðust
breyta pokastærðum. Runólfur
sagði svo ekki vera, en hinsvegar
hefðu þeir í verksmiðjunni oft velt
því fyrir sér á báða vegu: að
minnka eða stækka áburðarpok-
ana (stórsekkir). Af því hefði ekki
orðið, m.a. vegna kostnaðar, enda
hefði engin ósk borist frá bænda-
samtökunum um það efni. Ekki er
að efa að rnargir yrðu því þó fegnir
hér ef áburðarpokarnir væru 10 kg
léttari en nú er, og væri fróðlegt að
fá álit manna um það
J.J.D.
Best er efmaður getur lyft sekk frá áburðarbretti i dreifaraskál uppréttur.