Freyr - 15.04.1991, Blaðsíða 44
356 FREYR
8.’91
Aðsópsmikill loftrœningi
Sérrit Veiöistjóraembættisins
nr. 1.
Varpstofn sílamáfs og tilraunir á
máfum á Suðvesturlandi árið 1990
Páll Hersteinsson
Arnór Þ. Sigfússon
Þorvaldur Björnsson
Margir telja að sílamáfar séu
orðnir helst til fyrirferðarmiklir
sumstaðar við sunnanverðan Faxa-
flóa og e.t.v. víðar hér á landi.
Álitið er að þessi fugl hafi farið að
verpa hér á landi fyrir rúmum 60
árum. Síðan hefur honum fjölgað
ört og nú er svo komið að sílamáf-
urinn er allra máfa algengastur í
Gullbringu- og Kjósasýslu frá út-
mánuðum og fram á haust en þá fer
hann af landi brott, því hann er
farfugl.
I þéttbýlinu suðvestanlands, þar
sem er mikil matvælaframleiðsla
og margar vinnslustöðvar, stendur
mönnum stuggur af hugsanlegri
sýkingarhættu af máfum sem sækja
æti á sorphauga, við mynni
skolplagna og við fiskvinnslu-
stöðvar. Menn kvarta einnig yfir
ágengni sflamáfa í bæjunum við
Faxaflóa. Dæmi eru um að þessir
snöru loftræningjar hafi stolið mat-
vælum fólks og jafnvel dýrindis
steikum sem þeir hafa hrifsað af
óvörðum steikarristum úti við.
Máfar geta einnig valdið slysum á
flugvöllum og í nágrenni þeirra
vegna árekstra við flugvélar.
Samtök sveitarfélaga á Suður-
nesjum og Samtök sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu hafa undan-
farin tvö ár gert ráðstafanir til þess
að fækka máfum m.a. með til-
raunaveiðum á Miðnesheiði og
rannsóknum á varpstofni sflamáfs
á Suðvesturlandi.
í sérriti veiðistjóraembættisins
nr. 1 sem ber heitið „Varpstofn
sflamáfs og tilraunaveiðar á
máfum á Suðvesturlandi árið
1990“ er greint frá árangri og nið-
urstöðum verkefnisins. Höfund-
arnir sem allir eru starfsmenn
veiðistjóraembættisins hafa kann-
að stofnstærð og hátterni sflamáfs
á fyrrgreindu svæði og hafa fundið
margt fróðlegt.
I ritinu segja þeir frá þeim að-
ferðum sem þeir beita til að kanna
stofnstærð og útbreiðslu á varpi,
aðferðum við tilraunaveiðar og
beitingu sn. hermilíkans.
Athuganir þeirra leiða í ljós að
varppör sflamáfs á Suðvesturlandi
eru langflest i Gullbringusýslu eða
Frh. á bls. 351.
BÆNDASKÓLINN HOLUM
í HJALTADAL
HÓLASKÓLI AUGLÝSIR
Brautaskipt búnaðarnám 1991-1992
Búfræði
Valbrautir: Almenn búfjárrækt.
Hrossarækt.
Fiskeldi og nýting veiðivatna
Valbrautir: Fiskrækt.
Vatnanýting.
Valgreinar m.a.: Skógrækt - heimilisfræði - loð-
dýrarækt - sportveiði - sérhæfð tölvufræði.
Góð heimavist - fjölbreytt nám. Takmarkaður nem-
endafjöldi.
Stúdentar sem ætla í stytt búfræðinám næsta
skólaár hafi samband við skólann sem allra fyrst.
Umsóknarfrestur um 2ja ára búnaðarnám er til 10. júní
nk.
Skólastjóri
sími 95-35961 og 95-35962.