Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1991, Blaðsíða 12

Freyr - 15.04.1991, Blaðsíða 12
324 FREYR 8.’91 hverjar voru gangsettar á forsendum góðærisins 1986, fullar af seiðum sem ekki var hægt að selja. Pær þurftu á stuttum tíma að fara út í matfiskeldi sem þær voru ekki undirbúnar til. Þetta var neyðarráðstöfun? Þetta var neyðarráðstöfun sem enginn átti von á að fara þyrfti út í. Það er kannski mesti vandinn í matfiskeldinu nú að menn fóru út í það óundirbúnir, í stóru stökki, án þess að kunna það, án þess að vilja það og án þess að geta það. Hvernig gengur reksturinn núna? Tæknilega gengur hér allt mjög vel, en við höfum orðið fyrir stór- kostlegu tjóni vegna gjaldþrota og erfiðleika matfiskeldisfyrirtækj- anna. Það er á núvirði talið í tugum milljóna sem Hólalax hefur þannig tapað eða á útistandandi. Kerskálinn. Eldistankarnir í kerskála Hóla- lax hf. voru smíðaðir fyrst og húsið síðan reist yfir þá. Þetta var hugsað mjög skemmtilega, segir Pétur. Tankarnir eru fimm og notast sem burðarvirki sem heldur húsinu saman og uppi. Hver um sig tekur Frumfóðrunarlína í seiðaskála Hóla- lax hf. um 125 rúmmetra vatns og nýtast nú undir stórseiðaeldi og vaxandi matfiskeldi á bleikju. Starfslið Hjá Hólalaxi hf. eru fjórir starfs- menn, þrír fiskeldisfræðingar, tveir þeirra menntaðir hér á Hólum og brautskráðir héðan frá Hólaskóla, þeir Pétur Sverrisson og Olafur E. Guðmundsson. Einar Svavarsson er eldisstjóri hjá fyrir- tækinu, en hann stundaði fram- haldsnám í fiskeldi og tók M.Sc. gráðu í þeim fræðum við Hálskólann í Stirling f Skotlandi árið 1988. Hann skipuleggur og sér um þau rannsóknaverkefni sem unnin eru hér af okkur eða í sam- vinnu við aðra eins og komið er fram hér að framan. Einar og Ólaf- ur hafa einnig annast verklega og bóklega kennslu við fiskeldisbraut Bændaskólans á Hólum. Pétur Brynjólfsson er byggingameistari að mennt og tók við framkvæmda- stjórn hjá Hólalaxi hf. árið 1989. Hann hafði þá þegar mikla reynslu af því að vinna við lax og silung og af samskiptum við veiðifélög og almenn stangveiðifélög, og er vel kunnugur þeim málum á Norður- landi. Verkefni hans er að móta, í samráði við stjórn fyrirtækisins og eldisstjóra, framleiðslustefnu og starfið á staðnum. Einnig heyrir undir hann sölustarf allt svo og fjárhagslegur rekstur og tengsl vjð eigendur stöðvarinnar. Við höfum minnkað framleiðslu laxaseiða fyrir matfiskeldi en reyn- um að efla og vanda þjónustuna við veiðifélögin. Vejðifélögin fá mikla ráðgjöf og leiðbeiningar hjá útibúi Veiðimálastofnunar hér á Hólum og við leggjum metnað okkar í að uppfylla þeirra óskir eins og hægt er þvj veiðifélögin eru okkar traustustu viðskiptavipir. Það er fyrirsjáanlegur samdráttur í framleiðslu og eftirspurn laxaseiða fyrir matfiskeldi en hins vegar skoðum við alla hugsanlega kosti bleikjueldis sem valmöguleika fyr- ir litlar eldisstöðvar og jafnvel sem aukabúgrein á bændabýlum- Mín fyrsta raunhæfa reynsla af fiskeldi var að prófa bleikjueldi og hvað hægt væri að gera við frum- stæðar og einfaldar aðstæður, og ég Stofnaði með öðrum lítið fyrir- tæki vestur á Blönduósi fyrir nokkrum árurn. Það gengur enn og framleiðir gæðaþleikju með litlum tilkostnaðj fyrir matvörubúðir og Hólalax í Hjaltadal. Frh. á bls. 333.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.