Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.04.1991, Qupperneq 11

Freyr - 15.04.1991, Qupperneq 11
8.’91 FREYR 323 / seiðastöð Hólalax hf. Pétur Sverrisson flokkar verðandi gönguseiði. hennar. Veiðifélögin á Norður- landi vestra voru bakhjarlinn í stofnuninni og í stjórn Hólalax hf. sitja menn úr stjórnum flestra stærstu veiðifélaganna á Norður- landi vestra, sagði Pétur. Meðal helstu forvígismanna að stofnun- inni má telja Valgeir heitinn á Daufá, Gísla á Hofi, Böðvar á Barði, Ólaf á Sveinsstöðum, Björn á Auðunarstöðum og fleiri, svo sem Blöndumenn og Hrútfirðinga. Núverandi stjórnarfomaður er Porsteinn Ásgrímsson á Varma- landi. Ríkið er stofnhluthafi að stöðinni með 40% hlutafjár. Þetta er eins og fram hefur komið hluta- félag og rekið sem sjálfstæð rekstr- areining. Spurningu um hvernig rekstur- inn hefði gengið, svaraði Pétur: Hann hefur gengið upp og ofan. Eflaust voru einhverjir byrj- unarörðugleikar. Eg er þeim málum ekki mjög kunnugur, en ég veit að fyrstu hrognin voru tekin inn í stöðina haustið 1980 og fyrstu viðskiptavinirnir voru veiðifélögin á Norðurlandi vestra. Stöðin er að grunni til hönnuð sem fiskiræktar- og kennslustöð og þess vegna óhagkvæm í rekstri hvað vinnu- hagræðingu áhrærir. Hér eru yfir 100 eldiseiningar sem er fremur óhagkvæmt, en það tryggir okkur aftur viðskipti á þann hátt að þau veiðifélög sem leggja okkur til klak- eða stofnfisk geta verið ör- ugg um að fá aftur fisk af sínum stofni. En það gengur mikið úr slíkri framleiðslu því við framleið- um e.t.v. 20.000 seiði af hverjum stofni og veiðifélagið tekur svo samkvæmt ráðleggingum fiski- fræðingsins ekki nema 5-8 þúsund og þá er spurningin hvað á að gera við afganginn. Eftir reglum um sleppingar er ekki hægt að setja hann annað en í matfiskeldi eða á staði þar sem ekki er lax fyrir. Hólalax leggur metnað sinn í að þjónusta veiðifélögin: Öflun klaklax í Vatnsdalsá, lngvar á Eyjólfsstöðum fer mjúkum höndum um fallega laxa- hrygnu, Einar Svavarsson veltir fyrir sér kynbótagildi bleikjuhœngsins, Pétur Brynjólfsson losar nýgenginn smálax. Myndina tók Magnús Ólafsson um mánaðamótin sept.-okt. 1990. Skinogskúrir í fiskeldi. Hólalax hf. var tilbúinn með þessa umframframleiðslu sína af gönguseiðum þegar erlendir aðilar, t.d. Norðmenn og Færeyingar fóru að leita eftir laxaseiðum á íslandi um og upp úr 1984, og árið 1986 var meirihluti framleiðslunnar héðan seldur á mjög góðu verði. Eg held að gönguseiði héðan hafi þá selst á um og yfir 80 kr. stk. Það var fé sem skilaði umtalsverðum gjaldeyri í þjóðarbúið og hagnaði til fyrirtækjanna sem þátt tóku. Hjálpuðu þessi viðskipti til að létta stofnskuldum af Hólalaxi og greiddu fyrir meiri framkvæmdum hér. En árið 1988 voru allar seiðastöðvar í landinu, sem margar

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.