Freyr - 15.04.1991, Page 25
8.’91
FREYR 337
Námshringir.
Bændanámshringir eru algengir á
Sánga-Sáby og er tilgangur þeirra
aö virkja fólk í að öðlast fróðleik á
hinum ýmsu sviðum landbúnaðar.
I algengum námshring er hist tíu
sinnum. Mest er þó um að stjórn-
endur námshringja fari á stjórnun-
arnámsskeið á Sánga-Saby og síð-
an eru bændahringirnir starfræktir
úti í héruðunum. Tilgangur þeirra
er að auka þekkingu í starfi, þróa
hugmyndir, uppgötva, skapa um-
ræður og reyna að verða betri
bændur.
Bændahringir fá oft til sín fyrir-
lesara sem hefur fagþekkingu, að
fyrirlestri loknum er hópvinna og
loks umræður. Einnig er farið í
heimsóknir í fyrirtæki sem tengjast
landbúnaði svo og unnið með eitt-
hvert námsefni sem tengist efninu.
I lok hvers námshrings er gerð
úttekt á því sem var fjallað um og
niðurstaðan oft kynnt fleiri aðilum
á því búnaðarsvæði þar sem hring-
urinn starfaði.
Bœndalýðháskólinn.
Innan starfseminnar er bændalýð-
háskólinn sem stendur í 8 mánuði,
þar sem helstu fög eru samvinnu-
fræði (hugmyndafræði samvinn-
unnar, vöxtur hennar og uppbygg-
ing). Leiðtogafræði (félagsstörf og
stjórnun), umhverfisfræði (maður-
inn. landbúnaðurinn og umhverf-
ið), fjölmiðlafræði (útvarps- og
sjónvarpsþáttagerð, myndfræði og
tölvur), landsbyggðarmenning, al-
þjóðamenning í landbúnaði, sálar-
fræði og þjóðhagsfræði og mörg
önnur fög sem falla inn í þann
ramma sem hér er getið.
f>á skulu nemendur skila loka-
verkefni sem útheimtir a.m.k. eins
mánaðar vinnu og fá til þess tíma á
stundaskrá, jafnframt geta nem-
endur sótt um að sækja hin ýmsu
námskeið á stofnuninni, sjái þeir
að þar sé eitthvað áhugavert á
ferðinni.
Ferðalög og heimsóknir eru og
ríkur þáttur í náminu og á hverju
ári er farið í vikuferð til annars
lands og þar skoðaður landbúnað-
Fjósabyggingin á Sánga-Sáby. Þar eru 120 gripir og þar af 60 mjólkandi.
Kýrnar á Sðnga-Saby eru flestar sœnskar rauðar en /mr eru einnig nokkur af
blönduðu kyni. Kjarnfóðurtalva sér um kjarnfóðurgjöfina og þar er svokallað
Alfa-Line mjaltakerfi þar sem mjaltatœkin ganga eftir rásum eftir fjósinu og
aldrei þarf að halda á tœkjunum. Nú er Alfa-Line að ná mikilli útbreiðslu í
Svíþjóð þar sem ekki eru mjaltabásar enda hefur vinnueftirlitið mœlt með
þessari tœkni.
ur. Á sl. vori var farið til Hollands
og þar heimsótt hollensku bænda-
samtökin. farið á bændabýli, osta-
verksmiðju og garðræktarbýli.
Sýningarbýli.
Sánga-Saby er ekki einungis ráð-
stefnu- og skólasetur. Par er sýn-
ingarbýli fyrir skólabörn og er-
lenda gesti sem heimsækja bænda-
samtökin. LRF heldur uppi mikilli
starfsemi hvað varðar kynningu á
dýrum og landbúnaði og prentar
gífurlega mikið af námsefni og
sendir út í skólana. Þá fara ákveðn-
ir bændur einnig í skólana og ræða