Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1991, Síða 26

Freyr - 15.04.1991, Síða 26
338 FREYR 8.'91 við börn og bjóða þeim síðan í heimsókn til þess að skoða býlin. Þarna er um að ræða ákveðin skólabýli sem eru nálægt þéttbýli og þjóna þéttbýlisskólunum. Þarna hefur Sánga-Saby því hlut- verki að gegna að þjóna skólum í Stokkhólmi og koma gestir í fjósið daglega. Við útihúsin er viðbygg- ing þar sem er aðstaða fyrir gesti til þess að hlusta á kennara sinn og gera verkefni í tengslum við dýr og landbúnaði. Kona bústjórans sér um að taka á mót fólkinu og leið- beina því og er skólabörnum fært ýmislegt að gjöf frá staðnum sem fellur í góðan jarðveg, t.d. húfur, nælur, veggspjöld og spil sem allt er merkt á skemmtilegan hátt dýrum og lífi í sveit. Þessi starfsemi hefurfengið mik- ið lof og þyrfti að innleiða hana hér á landi en færri og færri börn hafa bein tengsl við sveitalíf og hjá þeim þarf að byggja upp jákvætt viðhorf til landbúnaðarins frá unga aldri. Bœndureru ísókn. Samkvæmt skoðanakönnunum í Svíþjóð hefur viðhorf fólks til bænda orðið jákvæðara á síðustu árum enda hefur margt stuðlað að því. Bændur þakka það ekki síst opnari umræðu um bændur og það að þeir hafa orðið virkari þátttak- endur í þjóðmálaumræðunni. Þá hefur græna byltingin og umræðan um umhverfismálin verið þeim styrkur, þar sem margsannað hef- ur verið að mun heilnæmari mat- vörur er að fá í Svíþjóð en á meng- ungarsvæðum Evrópu. Oft hefur umræðan snúist um hag bænda sem hefur vissulega far- ið versnandi og menn hafa fyllst svartsýni á framtíðina. Margir hafa þó tekið skynsamlega á málum og bent á alla þá kosti og forréttindi sem bændur búa við og verða ekki metnir til fjár. Starf bóndans er margbreytilegt og lærdómsríkt og bóndinn og fjölskylda hans þurfa að vera þúsund þjala smiðir. Starfinu fylgir líka frelsi og sjálfsákvörðunarréttur sem gerir fólk skapandi og krefst frumkvæð- is. Þá vinnur bóndinn með það sem lifir og vex, þ.e. bæði með dýr og jurtir sem gera líf hans iniklu víð- feðmara og um leið mikilvægara því að allt þetta krefst umhyggju. Utivinna er líka mun heilbrigðari og skapar heilbrigða sál í hraustum líkama og vinnan á búinu er þannig að hún kemur öllum við á heimil- inu og allir eru þátttakendur. Fjölbreytt og skemmtilegt nám. Nú á vördögum verður auglýst skólavist til handa einum íslend- ingi á Sánga-Saby fyrir næsta skólaár í boði Sænsku bændasam- takanna. Hugsanlegt er þó að tveir komist að ef einhverjir styrkþegar nýta sér ekki réttinn til skólavistar eins og gerðist í vetur en mjög mikilvægt er að íslendingar nýti sér þetta boð Svía. Sænskan er ekki mikill þrösk- uldur þar sem allir hér hafa lesið dönsku en nú er boðið upp á sænskunámsskeið áður en skólinn hefst fyrir útlendinga. Einnig hefur Norræna félagið boðið upp á sum- arnámskeið fyrir byrjendur í sænsku og er þá hægt að fá fríar ferðir fram og ti! baka. Skólinn er í alla staði bæði gefandi og skemmti- legur og því ástæða til að hvetja fólk til þess að komast þangað til náms. Atli Vigfússon býr á Laxamýri í Suður- Pingeyjarsýslu. Hann stundaði nám á Sánga-Sáby skólaárið 1989- 90. Hvanneyringar heim- sóttu bœndasamtökin / byrjun desembermánaðar sl. fór nokkur hluti eldri deildar Bœndaskólans á Hvanneyri í námsferð til Reykjavíkur og þá m.a. í starfskynningu í Búnaðarfélagi íslands og Stéttarsambandi bœnda. Myndin var tekin þegar Hvanneyringarnir heimsóttu Bygginga- og bútœknideild Búnaðarfélags íslands. Magnús Sigsteinsson, forstöðumaður deildarinnar segirfrá starfsemi hennar.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.