Freyr

Årgang

Freyr - 15.04.1991, Side 32

Freyr - 15.04.1991, Side 32
344 FREYR 8.’91 Skorið þjóðarböl Indriði Aðalsteinsson, Skjaldfönn. Heil og sœll œvinlega, Matthías minn. Liðið sumar var gott bœði mönnum og málleysingjum og má því til sönnunar netna að hér í haust drógu vanir menn veturgamlar œr til vigtunar í misgripum fyrir lömb. En ánœgjan yfir góðu árferði og vœnu íé er núorðið galli blandin, svo sem fram kemur í þessari vísu. Mjög er bóndans mœða þung en mest afdilkum vœnum. Helst ei mega hafa pung hrútarnir á bœnum. Einhvern tímann á þorranum var konan mín aö þusa yfir „Frey", hún er skrifuð fyrir blaðinu og þykist því mega gera sig merkilega. Hann væri lítið upplífgandi og gæti sem best sómt sér sem málgagn útfararstofnunar. Samkvæmt þeim drögum að búvörusamningi sem Sjömannanefndin fæddi af sér og hlotið hefur blessun ríkisstjórnar og Stéttarsambandsþings, mætti ætla að hún hefði verið forspá þar. Pað hefur alllengi verið á það bent af lærðustu og glöggskyggn- ustu mönnum að bændur, og sér- staklega þó þeir sem fjárbúskap stunda, væru þjóðarböl og tíma- bært að grisja þá rækilega en bændaforustan verið treg til, en þó viðurkennt að of mikið væri fram- leitt af kindakjöti. Ein besta vorskemmtan okkar systkina á uppvaxtarárunum var að iðka jakahlaup á Selá er rennur hér við túnfótinn og er verulegt vatnsfall. Mest var spennandi að stökkva á lítinn jaka sem fór undir- eins í vatn og sproðreistist svo að forða varð sér á hinn næsta hið bráðasta. Ekki spillti ef óstætt vatn var undir og straumur stríður. Bændaforustan fer að verða þjálfuð 1 svipaðri list. Árið 1979 var stokkið út á búmarksjakann til að takmarka framleiðsluna. Hann sporðreistist 1985 mest vegna ör- lætis framámanna í stéttinni við að Indriði Aðalsteinsson. útdeila, nánast til allra er hafa vildu, auknu búmark. Pá var stokkið yfir á kvótajak- ann sem margir töldu að væri naumast annað en krapskán, enda er nú Sigurður Líndal prófessor með þvöru laga og réttar farinn að hræra í gumsinu. Nú skal því fóta sig á greiðslumarksjakanum og vonandi tekst það. Sitthvað hefur færst til betri veg- ar hjá bændum á þessu ferðalagi. Urelt sjónarmið samheldni og stéttarvitundar hafa skolast af stígvélum í pusinu, hallærisleg við- horf, svo sem „Einn fyrir alla og allir fyrir einn", eru úr sögunni og efni til teitis ef fréttist af stéttar- bræðrum sem heltast úr lestinni. Fé hefur fækkað mikið - bænd- um einnig. Nöldurseggir og sér- viskupúkar hafa verið að benda á leiðir til frekari fækkunar fjár, án þess að bændur væru skornir í leið- inni. Flestar hafa þær verið mjög í skötulíki. Þeir hafa viljað skerða meira hjá hlunnindabændum sem stafar auðvitað að tómri öfund og gæti auk þess valdið heilsutjóni hjá þeim sem frá blautu barnsbeini hafa sofið með hátt undir höfðinu. Ekki hefur heldur, sem betur fer, verið látið undan því að þrengja að stórbændum, enda verða að vera eftir a.m.k. nokkur eintök á Suð- urlandi sem hægt er að sýna er- lendum þjóðhöfðingjum sem hing- að koma, ásamt Pingvöllum, Gull- fossi og Geysi. Lofa ber bændaforustuna fyrir það hvað hún hefur staðið fast gegn skerðingu á sauðfjárhaldi ut- an lögbýla enda hafa þeir menn féð mest vegna ánægjunnar og fara svo hvort eð er að drepast eins og Stéttarsambandsfulltrúinn okkar orðaði það svo snilldarlega á bændafundi hér nýlega, er hann varð að verja tilverurétt þéttbýlis- fénaðar. Þessu er ég algerlega sammmál, auðvitað ber að meta meira tómstundagaman kaffitíma- bænda en lífsafkonugrundvöll fjár- bænda, sem fæstir hafa víst ánægju af hokrinu eða þykir vænt um sínar kindur. Þá hefur verið agnúast út í tilraunabúið á Hesti, sem er argvít- ugt músarholusjónarmið, enda gerir lestur ársskýrslu þess í „Frey" fjölmargar bændur langtum ánægðari með afurðir sinna hjarða, en ef þessa samanburðar nyti ekki við. Eitt bullið er að fella niður mat-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.