Freyr - 15.04.1991, Qupperneq 42
354 FREYR
8.’91
Á fundi stjórnar Stéttarsambands bœnda 7 7. apríl sl. gerðist m.a. þetta:
Starf Sjömannanefndar.
Formaður greindi frá áframhaldi
starfs Sjömannanefndar. Nefndin
vinnur nú m.a. að athugun á hag-
ræðingu í mjólkuriðnaði á grund-
velli nýrrar skýrslu stjórnskipaðrar
nefndar sem um þau mál fjallaði.
Einnig er unnið áfram að athug-
un á málefnum alifugla- og svína-
ræktar og stöðu fóðurinnflutnings
og innlendrar fóðurframleiðslu í
því sambandi.
Þá er að hefjast athugun á þeim
þáttum sem lúta að skattlagningu
búvöruframleiðslunnar og á hlut
verslunar í búvöruverði.
Fram kom gagnrýni á að nefndin
hefði til þessa ekki sinnt því verk-
efni sem henni væri ætlað á sviði
kostnaðareftirlits og lækkunar á
verði aðfanga.
Eftirfarandi var bókað:
„í skipunarbréfi Sjömannanefndar
dags. 21. mars 1990 kemur fram að
nefndinni sé m.a. ætlað að setja
fram tillögur er miði að því að
innlend búvöruframleiðsla verði
hagkvæmari og kostnaður lækki á
öllum stigum framleiðslunnar, í
búrekstri bóndans, á vinnslu og
heildsölustigi og í smásöluverslun.
Stjórn Stéttarsambands bænda
vekur athygli Sjömannanefndar á
að frá því nefndin var skipuð hafa
orðið óeðlilegar hækkanir á
nokkrum kostnaðarliðum bú-
rekstrar.
Má þar nefna að vorið 1990 var
hafin á vegum sýslumanna og bæj-
arfógeta innheimta hjá bændum á
sérstöku tryggingargjaldi vegna
ökumanna dráttarvéla sem nam á
árinu 1990 kr. 600 á hverja
dráttarvél og er á árinu kr. 675 á
hverja dráttarvél.
Þá hefur ökumannstrygging
dráttarvéla, sem fyrst var innheimt
1988 með um 1900 kr. iðgjaldi af
hverri dráttarvél og var á árinu
1990 um 2600 kr. af hverri
dráttarvél, nú hækkað í um 5000
kr. iðgjald af hverri dráttarvél
vegna ársins 1991.
Með breytingum á lögum um
Jöfnunarsjóð sveitarfélaga hefur
mörgum sveitarfélögum verið
þrýst til að hækka aðstöðugjöld af
búrekstri á síðustu árum.
Síðast en ekki síst voru sam-
þykkt í desember sl. ný lög um
sérstakt tryggingargjald. Lögin
komu til framkvæmda í ársbyrjun
1991 og fela í sér nýja mánaðarlega
innheimtu af búrekstri bænda sem
nemur vegna alls búrekstrar í land-
inu 60-80 milljónum á ársgrund-
velli.
Ljóst er að allar framantaldar
hækkanir á gjaldtöku af búrekstri
bænda stríða gegn þeim markmið-
um um lækkun kostnaðar sem fel-
ast í skipunarbréfi Sjömanna-
nefndar.
Því óskar stjórn Stéttarsam-
bands bænda upplýsinga um hvort
nefndar hækkanir samrýmast
markmiðum starfs nefndarinnar
og ef svo er ekki hverra tillagna
megi vænta frá nefndinni sem taka
á þessum hækkunum“.
Kostnaðareftirlit í landbúnaði.
Rætt um kostnaðareftirlit í land-
búnaði. í því sambandi var lögð
fram ný könnun Verðlagsstofnun-
ar á verði á aðföngum til landbún-
aðarframleiðslu.
Samþykkt að leita eftir því við
Hagþjónustu landbúnaðarins að
hún vinni að upplýsingaöflun um
verð á aðföngum til búvörufram-
leiðslu.
LánareglurStofnlánadeildar.
Rætt um þau viðhorf sem skapast
með tilkomu nýs búvörusamnings
varðandi lán til nýfjárfestinga í
nautgripa- og sauðfjárrækt. Bent
var á að eitt megin markmið þeirra
aðgerða sem nú hafa verið ákveðn-
ar sé að ná fram betri nýtingu þess
sem fyrir er. Því sé nauðsynlegt að
marka sem fyrst stefnu varðandi
lán til nýfjárfestinga og endurnýj-
unar í þessum greinum er falli að
markmiðum hins nýja búvöru-
samnings.
Endurgreiðslur vegna VSK.
Formaður lagði fram upplýsingar
um endurgreiðslu virðisaukaskatts
af matvörum. Ljóst er að endur-
greiðsla skattsins af svínakjöti,
sem verið hefur óbreytt að krónu-
tölu frá upphafi, nær ekki lengur
því hlutfalli, sem get er ráð fyrir.
Aukin félagsleg virkni
bœndakvenna.
Lögð fram fundargjörð frá fundi
bændakvenna sem haldinn var 4.
apríl.
Til fundarins var boðað af þeim
5 konum sem sæti eiga á Búnaðar-
þingi og aðalfundi Stéttarsam-
bands bænda, með tilstyrk þessara
aðila.
Fundinn sátu 14 konur frá jafn
mörgum búnaðarsamböndum
ásamt fundarboðendum. Fundar-
efnið var að ræða hvernig auka
mætti virkni og áhuga bænda-
kvenna búnaðarfélagsskapnum til
heilla og ræða hugsanlegt átak til
hvatningar meðal kvenna.
Niðurstaða fundarins var að
unnið yrði ítarlegt yfirlit um það
sem bar á góma á fundinum og
dreifa því til áhugafólks.
Einnig að fundakonur flyttu
upplýsingar inn í búnaðarsam-
böndin/búnaðarfélögin.
Ráðgert var að efna til annars
fundar sömu aðila á komandi
hausti.
Samstarfsnefnd um
endurmenntun bœnda.
Kynnt var eftirfarandi bréf frá
Bændaskólanum á Hvanneyri: