Freyr - 01.01.1992, Síða 10
Samningur alifugla-
framleiðenda og Norsk
Fjörfeavlslag um inn-
flutningtil íslands
í norska tímaritinu Bondevennen er sagt frá því að
Norsk Fjörfeavlslag hafi gert samning við Félag
eggjaframleiðenda og Félag kjúklingabænda á Is-
landi um útflutning á sn. foreldradýrum af bæði
varphænsna- og holdakjúklingastofnum til Islands.
Greint var nokkuð frá aðdraganda þessa máls í 10.
tbl. Freys 1991.
Samningurinn hljóðar upp á að Norðmenn selji
íslenskum alifuglaframleiðendum í þessu skyni ár-
lega um 20 000 egg af varphænsnastofni og 50 000
egg vegna framleiðslu á holdakjúklingum. Fram-
kvæmdastjóri í Norsk Fjörfeavlslag, Einar J. Ein-
arsson, segist vera mjög ánægður með þennan
fyrsta útflutningssamning sem norsku samtökin
hafa gert um útvegun á foreldradýrum. Þetta sé
langtímasamningur sem tryggi Islendingum hinar
sömu og miklu framfarir í kynbótum, sem orðið
hafa í norskri alifuglarækt.
Kýrnar skíta ekki
á stéttina
Eg kom að Tunguhálsi í Skagafirði í haust og
fylgdist með morgunmjöltum. Eftir þær leysti
Líney, 12 ára dóttir hjóna, kýrnar út, rúmlega 20
að tölu. Hún leysti eina í einu og fylgdi henni út að
dyrum, áður en hún leysti þá næstu. Það þóttu mér
sérkennilegar aðfarir. Mér sýndist þetta seinlegt,
en það er ekki víst, að svo hafi reynst, því að fyrir
vikið gengu kýrnar greiðlega á leið í haga. Það sem
vinnst er að kýrnar skíta ekki að leiðinni út og
óhreinka því ekki stéttir og veggi. Þórey húsfreyja
sagði mér, að vel mætti venja hund á að fylgja
kúnum út.
Danir byggja upp
í Póllandi
Alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki, Danagro Adviser
A/S að nafni, sem dönsku bændasamtökin reka, er
í fararbroddi í stórbrotinni áætlun um að reisa við
pólskan landbúnað.
Evrópubandalagið hefur útnefnt þetta danska
fyrirtæki, ásamt með sex öðrum evrópskum ráð-
gjafarfyrirtækum, til að stjórna nýsköpun allrar
atvinnu- og viðskiptastarfsemi sem rekin er með
samvinnusniði í pólskum landbúnaði, en hann var
áður ríkisrekinn.
Ætlunin er að stofna 12 svæðisstöðvar víðsvegar
um Pólland. Þar eiga bændur að læra að skipu-
leggja og reka fyritæki með vinnusniði. Svæðis-
stöðvarnar eiga á tveimur árum að aðstoða helm-
inginn af 5000 samvinnufyrirtækjum Póllands við
að breyta sér í lýðræðisleg og markaðssækin sam-
vinnufélög. Stór þáttur í þessari breytingu er að
þjálfa 10.000 verðandi leiðtoga í samvinnuhreyf-
ingunni.
Selskinn í gagnið á ný?
Eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá Sam-
tökum selabænda eru nú ýmis teikn á lofti um það,
að selskinn verði á ný verðmæt og eftirsótt vara
bæði til að framleiða flíkur og ýmsa smámuni. í
samtali við Árna Snæbjörnsson hlunnindaráðu-
naut B.í. kom fram að Samtök selabænda vilja
gjarnan heyra í fólki sem vill fara út í að vinna ýmsa
smámuni úr selskinni. Muni eins og skó, vettlinga,
peningabuddur og veski, gleraugnahulstur, slaufur
og bindi, skjalamöppur, hlífar utan um gestabækur
og símaskrár eða annað sem fólki dettur í hug. Það
eru ýmsir þeirrar skoðunar að nú vanti á íslenskan
markað ósvikna, íslenska muni, sem t.d. ferða-
menn geta með góðri samvisku sagt að sé sérfram-
leiðsla þessa lands, en ekki eitthvert drasl sem ef
betur er að gáð sést að er „Made in Tailand“ eða
eitthvað í þá átt. Þeir sem hafa áhuga, eru beðnir
að hafa samband við Árna í síma 91-19200.
Björn Stefánsson.