Freyr - 01.01.1992, Síða 12
Frétt frá „Bœndaferðum"
Orlofsdagar á
Hótel Sögu
í síðustu orlofsviku, sem haldin
var á Hótel Sögu voru 52 þátttak-
endur. Þá voru í fyrsta sinn til-
nefndir heiðursgestir. Þau heppnu
voru hjónin Stefán Jasonarson og
Guðfinna Guðmundsdóttir í
Vorsabæ í Gaulverjabæjarhreppi.
Sami háttur verður hafður á aft-
ur, að tilnefndir verða heiðursgest-
ir, sem verður boðin þátttaka í
orlofsdögunum.
Næstu orlofsdagar verða að
þessu sinni frá og með þriðjudegi
7. apríl til sunnudags 12. apríl.
Dagskrá er ekki fullmótuð þegar
þetta er skrifað. Þó er eftirfarandi
ákveðið: Sameiginlegur kvöld-
verður fyrsta kvöldið og kynning-
arkvöldvaka. Þá verður farin ferð
austur í Rangárvallasýslu. Inni-
falið í þátttökugjaldinu verður
einnig skemmtun í Súlnasal á
Hótel Sögu. Þar verður góður
kvöldverður en skemmtiatriði
annast Húnvetningar. Þetta verð-
ur fyrsta „héraðsvaka" á Hótel
Sögu. Ef vel tekst til, þá getur
orðið framhald á þessum skemmt-
unum, þar sem fólk utan af landi
kemur til Reykjavíkur og heldur
uppi fjöri eina kvöldstund, sér og
öðrum til ánægju.
Farið verður í heimsóknir í fyrir-
tæki og stofnanir. Þá verða útveg-
aðir miðar í leikhúsin.
Það eitt er víst, að þessa daga
verður heilmikið um að vera.
Kostnaður á mann miðað við
gistingu í 2ja manna herbergi verð-
ur kr. 17.700.
Þeir sem hafa áhuga á þátttöku
eða nánari upplýsingum um tilhög-
un orlofsdaganna geta hringt í síma
19200 og haft samband við Agnar
eða Halldóru.
,, ,/ 1
11 _l
BÆNDASKÓLINN HDLUM
1 HJALTADAL
Námskeið við Hólaskóla
febrúar- maf 1992
Bœndaskólinn á Hólum hefur undanfarin ár staðið fyrir fjöl- breyttu námskeiðahaldi. Aðsókn hefur verið með ágœtum og t.d. komu um 400 manns á 2ja til 5 daga námskeið sl. skólaár. Hér er um mikilvœgan og vaxandi þátt í starfi skólans að rœða. Áherslurnar nú beinast m.a. að hrossarœkt, hestamennsku, tölvunotkun, bókhaldi og bleikjueldi. Þessi námskeið eru liður í
skipulagðri símenntun atvinnuvegarins, og njóta beins fjár-
stuðnings Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Hann styrkir m.a. útlagðan ferða- og dvalarkostnað þátttakenda. Starfsmenn skólans skipuleggja námskeiðin, en fá til liðs við sig sérfœrðinga á ýmsum sviðum, ef ástœða þykir til. Hér á eftir fylgir iisti yfir fyrirhuguð námskeið ásamt dagsetn- ingum. Nánari grein verður gerð fyrir einstökum námskeiðum
síðar.
Námskeiðstitili: Dagsetning:
Fimiœfingar (Hlýðniœfingar) 7. - 9. febr.
Járningar 17. - 18. febr.
Bœndabókhald 18.-19. febr.
Fóðrun hrossa 20.-21.febr.
Frumtamning/taumhringsvinna 28. febr. - 1. mars
Fóðrun jórturdýra (fyrir ráðunauta) 2. - 5. mars
Júgurbólga 10. mars
Frjósemi nautgripa 11. mars
ParadoxRun 3,5 (Gagnagrunnur) 10. - 12. mars
Bœndabókhald 1,1 (fyrir ráðunauta) 13. - 14. mars
Tölvunotkun (fyrir ráðunauta) 16. - 18. mars
Tölvunotkun 1 23. - 24. mars
Skattframtalsgerð 26. - 27. mars
Kynbótagildismat 30. mars - 1. apríl
Tölvunotkun II 6. - 8. apríl
Bleikjueldi 28. - 30. apríl
Fiskrœkt í ám og vötnum 3. - 5. maí
Kynbótadómaranámskeið 5. - 8. maí
Byggingadómar 13. - 15. maí
Heyverkun 25. - 27. maí
Nánari upplýsingar og skráning þátttöku er á skrifstofu skólans í
síma 95-35962.
Skólastjóri.