Freyr - 01.01.1992, Qupperneq 17
1.’92
FREYR 9
Fiskeldisstöðjn Silfurstjarnan hf.
í Öxarfirði
Viðtal við Björn Benediktsson stjórnarformann Silfurstjörnunar hf.
Björn Benediktsson bóndi íSandfellshaga í Öxarfirði er formaður stjórnar fiskeldisstöðv-
arinnar Silfurstjörnunnar hf. í Öxarfirði. Ýmislegt hefur gengið á í rekstri fiskeldisstöðva
hér á landi að undanförnu og sumar hœtt rekstri vegna gjaldþrota. í þeirri umrœðu
hefur þó verið nefnt að meðal fiskeldisstöðva sem héidu sjó vœri Silfurstjarnan og því
þótti fréttamanni Freys fróðlegt að heyra af rekstri stöðvarinnar þegar hann var þar á
ferð á sl. sumri.
Hann leitaði því eftir viðtalið við
Björn Benediktsson stjórnarfor-
manns sem ólíkt mörgum stjórnar-
formönnum fyrirtækja vinnur hjá
fyrirtækinu í fullu starfi.
Hvert má rekja tildrög að
stofnun þessa fyrirtœkis?
Það var um 1983-1984 að nokkrir
heimamenn fóru að ræða það að
hér kynnu að vera ekki lakari skil-
yrði til fiskeldis en víða annars
staðar á landinu. Þar var það eink-
um haft í huga að hér er gnótt
ferskvatns í jarðlögum þar sem
mikið er um sprungur og eins hitt
að hér er víða að finna jarðhita í
nágrenni við sjó.
Niðurstaðan af þessum umræð-
um varð sú að það var skrifað bréf
og sent á hvert heimili hér í þremur
hreppum í vestanverðri sýslunni,
sem eru reyndar orðnir tveir núna,
þar sem menn voru spurðir að því
hvort þeir hefðu áhuga á að leggja
fram fé til að þessir möguleikar
yrðu kannaðir. Við sem að þessu
stóðum töldum okkur þurfa til þess
þrjár til fjórar milljónir kr.
Það var tekið fram í þessu bréfi
að færi svo að þessar rannsóknir
leiddu ekki til neins áframhalds þá
væri þetta fé tapað og yrði ekki
endurgreitt eða bætt með neinum
hætti. Ef þetta leiddi hins vegar til
einhverra aðgerða, þá yrðu þessi
framlög metin sem hlutafé í vænt-
anlegu hlutafélagi, sem þá yrði að
líkindum stofnað.
Móttökur við þessu bréfi voru
svo góðar við við stóðum uppi með
10,3 milljónir kr. af framlögum
heimamanna og Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins, í gegnum búnað-
arfélög á svæðinu, og reyndar kom
Byggðastofnun einnig inn í dæmið.
I framhaldi af þessu var stofnað
hlutafélagið Seljalax. Hlutverk
þess var að eyða þessu fé í sjálfsagt
misjafnlega skynsamlegar aðgerðir
til að kanna möguleika á fiskeldi á
svæðinu.
Fyrsta árið, 1985, gekk allt mjög
illa. Allar niðurstöður úr rann-