Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1992, Qupperneq 24

Freyr - 01.01.1992, Qupperneq 24
16 FREYR 1.’92 Tafla 1. Fosfór (mg/100 g í þurri mold), kalí, kalsíum og magníum (meq/100 g í þurri mold) í sýnum úr rœkf og órœkf teknum víða um Norðurland 1970-1973. Fosfór Kalí Kalsíum Magnesíum mg/100 gjörð meq/100 gjörð Rækt Órækt Rækt Órækt Rækt Órækt Rækt Órækt Mýri..................... 7.89 1.82 1.33 1.94 12.85 16.18 4.09 6.74 Grasmói ................. 7.01 1.92 0.89 1.60 15.82 16.93 5.49 7.81 Hrísmói.................. 6.11 1.15 0.80 1.58 14.74 17.16 4.01 7.24 Sandur .................. 2.74 0.78 1.30 1.10 9.00 7.70 4.02 5.18 Ef við aftur á móti skoðum inni- hald af kalí kemur í ljós að í rækt- aða landinu er kalí mun lægra en í óræktinni (burtséð frá sandinum). Er hér á nokkur skýring. í fyrsta lagi er oftast borið á minna af kalí en fjarlægt er með uppskerunni. Af þeim sökum einum er ljóst að á forða jarðvegs af kalí gengur. Veðrun og losun kalís úr moldinni á þann máta gerir það að verkum að kalískortur grasa er þó ekki meiri en raun ber vitni. í þessu sambandi er rétt að hafa í huga að líparíthluti jarðvegs (fyrst og fremst líparítaska frá eldgosum) er ríkur á kalí. í öðru lagi er ástæðan fyrir hærra kalí í órækt en rækt sú, að rætur plantna sem ná að nokkru lengra niður en sýni er tekið (5 sm) færa kalí frá neðri lögum jarðvegs til plöntuhluta ofan jarðar. Á túnum er þetta kalí sem annað fjarlægt með uppskerunni, en í óræktinni fellur meira af jurtum til jarðar aftur (þó eitthvað hverfi með beit) og kalíið safnast fyrir í yfirborðið. Að kalí er lægra eða svipað í órækt og rækt í þeim jarð- vegi sem í þessari athugun er nefnt sandur, getur skýrst bæði af því að gróður er spar hér á óræktinni, rætur ná grunnt niður og útskolun e.t.v. meiri í órækt þar sem ítúninu hefur að líkum myndast örlítið meira jarðvegstorfa samfara sterk- ari grasrót. í töflu 1 eru tölur um innihald af kalsíum og magnesíum og sést að hegðan þeirra er lík og hjá kalí. Sömu rök eru því uppi höfð við að skýra þennan mun á rækt og órækt. Mikið aukin uppskera samfara ræktuninni og burtfærslu á næring- arefnum með töðunni valda að líkum mestu um lægra magn í rækt en órækt. Reynt hefur verið að sporna gegn áframhaldi þessarar þróunnar með því að í áburði er nú á allnokkrum síðustu árum svolítið kalsíum. Það magn er þó ekki meir en svo að sífellt þarf að vera á verði gagnvart því hvort kalsíum muni orðið hættulega lágt í túnum. All- nokkur munur er á magníummagni í rækt og órækt, en er samt nokkuð hátt í ræktinni. Uppruni þessa efn- is er að verulegu leyti úr basalti og basaltösku sem eru mjög rík af magnesíum. Tafla 2. Fjöldi sýna, glœðitap, sýrustig og natríum (meq/100 g jörð) í sýnum fró nokkrum bœjum ó Norðurlandi 1970-1973. Fjöldi Sýrustig Natríum Glæðitap sýna Rækt Órækt Rækt Órækt % meq/100 g jörð Mýri................................... 14 5.39 5.57 0.92 0.89 38.1 Grasmói................................ 11 5.71 5.79 0.74 0.66 26.3 Hrísmói................................. 8 5.79 6.05 0.53 0.65 26.9 Sandur.................................. 5 5.80 5.78 0.73 0.81 20.9 Sýrustig moldarinnar er eins og tafla 2 sýnir örlítið hærra í órækt- inni. Nokkurt samhengi er gjarna milli katjóna í jarðvegi og sýru- stigs. Samkvæmt mælingum Björns Jóhannessonar og Kristínar Kristjánsdóttur (Björn og Kristín 1954) kom í ljós að basamettun jarðvegs jókst mjög við hækkandi sýrustig (frá u.þ.b. 10% basamett- un jarðvegs við pH 5 til næstum 60% við pH 6). í þeirri athugun sem hér er sagt frá er einnig allmik- ill munur á málmjónum í rækt og órækt við tiltölulega litla breytingu á sýrustigi. í töflu 3 eru sýndar niðurstöður á magni snefilefna í moldinni. Járn er mjög svipað í rækt og órækt, en járn er hins vegar mun meira í mýrarjarðvegi en í móanum. Mangan er einnig mun hærra í mýrarjarðvegi en í móa og sérstak- lega í mýrinni mun hærra innihald í

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.