Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 26
18 FREYR
1.’92
Verðkönnun á aðföngum til
landbúnaðarframleiðslu
Verðlagsstofnun hefur annast eft-
irlit með verði á aðföngum til
bænda frá gerð kjarasamninga í
febrúar 1990. Stofnunin hefurm.a.
fylgst með og birt verð á allmörg-
um fóður- og byggingavörum.
ásamt varahlutum í heyvinnuvélar
og vörum til heyvinnu.
Um miðjan desember 1991 var
gerð könnun á fóðri og bygginga-
vörum og hún borin saman við
könnun sem gerð var í apríl sl.
Könnunin náði til 27 sölustaða víðs
vegar á landinu og leiddi m.a. eftir-
farandi í ljós:
• Meðalverð á fjórum vöruteg-
undum lækkaði á áðurnefndu
tímabili. T.d. lækkaði verð á
mótatimbri að meðaltali um
12,3% og verð á hreinsuðu fóð-
urlýsi lækkaði að meðaltali um
5,5%. Aðrar vörutegundir
hækkuðu um 0,9-3,8%.
• Verulegur verðmunur er á ein-
stökum vörutegundum. Sem
dæmi má nefna að 100 m af
girðinganeti kosta 4.520 kr. þar
sem það er ódýrast en 7.545 kr.
þar sem það er dýrast og er
verðmunur því 67%. Fimm lítra
brúsi af hreinsuðu fóðurlýsi
kostar 535 kr. þar sem það er
ódýrast en 55% meira eða 830
kr. þar sem það er dýrast.
• Eitt tonn af fiskimjöli kostar
33.000 - 46.065 kr. (40% verð-
munur) og eitt tonn af kúafóð-
urblöndu kostar 39.790 - 50.236
kr.
(Fréttatilkynning frá Verðlagsstofnun
6. janúar 1992).
SUNBEAM / OSTER
HSW búfjársprautur með
sjálfvirkri skömmtun.
Ormalyfsinngjafardœlur.
Ýmis verkfœri. Hverfisteinar,
hleðslutœki o.fl.
Nýir og notaðir varahlutir
í Volvo og Scania.
Mótorar, gírkassar o.fl.
SHEARMASTER fjárklippur,
CLIPMASTER stórgripaklippur,
sami mótor fyrir báðar gerðir.
SUNBEAM barkaklippur.
Hásingar o.fl. efni
til vagnasmíði.
VERKFÆRAMARKAÐUR
Vesturvör 26, Pósthólf 395, 200 Kópavogi, Sími (91)46005