Freyr - 01.01.1992, Síða 33
1.’92
FREYR 25
Ár1991
Nr. 618 Ár 1991
Nr. 619
DEUTZ-FAHR - rúllubindivél
KRONE - rúllubindivél
Gerð: Deutz-Fahr GP 2.30 OPTICUT. Framleið-
andi: Deutz-Fahr, Þýskalandi. Innflytjandi: Þór hf.,
Reykjavík.
YFIRLIT
Deutz-Fahr GP 2.30 OPTICUT er rúllubindivél með
hnífabúnaði. Hún var reynd af Bútæknideild Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1991. Við
prófun vélarinnar voru bundnir 449 baggar. Auk þess
voru bundnir um 1500 baggar með henni á reynslutím-
anum.
Bindivélin er dragtengd, knúin frá vinnudrifi drátt-
arvélar. Hún vegur 1940 kg. Hún tekur hey og græn-
fóður á öllum þurrkstigum upp úr múgum eða sláttu-
skárum og vefur í þétta, sívalningslaga bagga. Þeir eru
1,22 m breiðir og um 1,24 m í þvermál, þannig að
rúmmál þeirra er um 1,47 m3. Þyngd bagga er breyti-
leg, einkum eftir þurrkstigi; oft um 600-650 kg af
nýlega slegnu grasi og 500 kg af forþurrkuðu heyi
(50-60% þe.). Þetta svarar til 150-160 og 330-340 kg
af fullþurru heyi. Afköst má ætla 22-26 bagga á klst.
og mældust 6,8 tonn af þurrefni á klst. við bindingu á
forþurrkuðu heyi. í vélinni eru hnífar sem skera heyið
við mötun. Vélin er lipur í notkun og vinnur örugglega
við allar venjulegar aðstæður. Aflþörf vélarinnar með
skurðbúnaði er um 45 kW (61 hö) ef miðað er við
algenga þjöppun heysins, um 160 kg þe/m3. Ef nýta á
afkasta- og þjöppunargetu vélarinnar til fulls verður
að ætla henni 60-70 kW dráttarvél (82-95 hö).
Vélin virðist traustbyggð og vönduð. Bilanir voru
engar og ekkert óeðlilegt slit kom fram.
Gerð: KRONE 130. Framleiðandi: KRONE, Þýska-
landi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf., Reykjavík.
YFIRLIT
Rúllubindivélin KRONE KR 130 var reynd af Bú-
tæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
sumarið 1991. Með henni voru bundnir 550 baggar á
reynslutímanum.
Bindivélin er dragtengd, knúin frá vinnudrifi drátt-
arvélar. Hún vegur 1690 kg. Hún tekur hey og græn-
fóður á öllum þurrkstigum upp úr múgum eða sláttu-
skárum og vefur í sívalningslaga bagga. Þeir eru 1,21
m breiðir og um 1,27 m í þvermál, þannig að rúmmál
þeirra er um 1,53 m'. Þyngd bagga er breytileg,
einkum eftir þurrkstigi, en gæti verið 550-650 kg af
nýlega slegnu grasi og 400-500 kg af forþurrkuðu heyi
(50-60% þe.). Þetta svarar til 150-170 og 260-280 kg
af fullþurru heyi. Afköst má ætla 28-32 bagga á klst.
við góðar aðstæður og mældust 7,0 tonn af þurrefni á
klst. við bindingu á forþurrkuðu heyi. Við vissar
aðstæður reyndust festur við mötun tíðar og binding
því tafsöm1’. Bindibúnaður vann ekki af öryggi og
voru tafir af hans völdum alltíðar:). Vélin er lipur í
notkun, en ökumaður þarf að fylgjast vel með mötun
hennar. Ætla verður 35-45 kW (48-61 hö) dráttarvél
fyrir bindivélina. Engar bilanir urðu á reynslutíman-
um. Festing botnplötu reyndist ótrygg, en að öðru
leyti virðist vélin traustbyggð.
Umboðsaöili upplýsir að eftirfarandi breytingar hafi verið gerðar á
vélinni:
1 Viðbótarhlíf við sópvindu til að hindra að hey dragist upp framan við
baggahólf.
2) Gamleiðari með öruggari aðfærslu garns.