Freyr - 01.01.1992, Qupperneq 35
1.’92
FREYR 27
Ár 1991 Nr. 622
KVERNELAND - rúllupökkunarvél
Gerð: Kverneland, Silawrap UN7581. Framleiðandi:
Kverneland-Underhaug AS, Noregi. Innflytjandi:
Jötunn hf., Reykjavík.
YFIRLIT
Kverneland UN7581 rúllupökkunarvélin var prófuð
af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðar-
ins sumarið 1991. Var hún notuð alls við pökkun á um
630 rúlluböggum.
Vélin er ætluð til að pakka rúlluböggum af öllum
algengum stærðum inn í plastfilmu. Hún er tengd á
þrítengi dráttarvélar og knúin af vökvakerfi hennar og
vegur um 725 kg. Vélin er með lyftibúnaði sem tekur
baggana upp frá jafnsléttu upp á pökkunarborð. Á
borðinu er bagganum snúið og velt um Ieið. Þannig er
plastfilmu vafið utan um hann. Veltuhraðanum má
breyta í hlutfalli við snúningshraða og fá þannig fram
mismunandi þétta vafninga. Þegar bagginn er full-
pakkaður er pallinum snúið í upphafsstöðu, griparm-
ur lagður að bagganum, pallinum velt svo að bagginn
leggst til hliðar á jörðina og griparmi lyft frá baggan-
um. Vélin er með sjálfvirkan skurðbúnað fyrir plast-
filmuna. Afköst vélarinnar mældust á bilinu 25-29
baggar á klst miðað við sexfalt filmulag á böggum.
Þungamiðja pökkunarvélar er í um 2,3 m fjarlægð frá
afturöxli dráttarvélar og því má ætla að 45 kW (60 hö)
dráttarvél sé lágmarksstærð fyrir pökkunarvélina. Við
fjórfalt filmulag var plastfilmunotkunin 0,9-1,0 kg á
bagga (þvermál 1,2 m) eða sem svarar 70-80 m af
filmu á hvern bagga. Auðvelt er að ná böggunum inn á
pökkunarborðið og þeir skorðast þar örugglega af.
Hey sest ekki fyrir á borðinu. Skurðbúnað fyrir filmu
Ár 1991 Nr. 623
JET - mykjudæla
Gerð: Jet 2000. Framleiðandi: Jæren Landbruks-
senter, Varhaug, Noregi. Innflytjandi: Hannes Sig-
urðsson, Reykjavík (s.91-654774).
YFIRLIT
Jet 2000 mykjudælan kom til prófunar í júnímánuði
1991. Dælan var notuð alls í 53 klst., þar af til
áfyllingar í tanka um 535 tonn. Dælan er miðflóttaafls-
dæla tengd á þrítengi dráttarvéla og knúin frá aflúr-
taki. Hún vegur um 470 kg. Hún er ætluð til dælingar á
þynntum búfjáráburði hvort heldur er í flutningatæki
eða til blöndunar í áburðargeymslum. Halla dælunnar
má breyta frá nær láréttri stöðu í vinnu upp í nær
lóðrétta stöðu. Þá má einnig breyta hæð hennar á
burðarramma. Það gefur breytilega möguleika á dæl-
ingu um lúgur á áburðargeymslum án þess að hafa
sérstaka dælubrunna. Þá má víða koma henni að við
losun úr fjárhúsum. Afköst hennar eru verulega háð
þykkt áburðarins en voru allt að 3700 1/mín við mjög
lágt þurrefnisinnihald áburðarins. Við algenga þykkt,
5-8% þurrefni voru afköst dælunnar 2400-32001/mín.
Aflþörf dælunnar mældist mest um 23 kW (31 hö).
Álagsöryggi stöðvar dæluna ef fastir aðskotahlutir
komast í inntaksop hennar og valda því ekki skemmd-
um. í lok reynslutímans bilaði lega á dæluöxli við
drifhús1). Að öðru leyti varð ekki unnt að merkja
óeðlilegt slit á dælunni í lok reynslutímans. Hún er
tiltölulega auðveld í meðförum og virðist traustbyggð.
11 Framleiðandi upplýsir að legubúnaðurinn hafi verið endurbættur.
þarf að stilla af töluverðri nákvæmni og afstöðumerk-
ingum á vélinni er ábótavant. í lok reynslutímans var
ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar
meiriháttar bilanir komu fram. Vélin er traustlega
smíðuð og dagleg hirðing einföld.