Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 36

Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 36
28 FREYR 1.’92 Ár 1991 Nr. 624 KR - afrúllari Gerð: KR-afrúllari. Framleiðandi: Kaupfélag Rang- æinga, Hvolsvelli. YFIRLIT KR afrúllarinn var reyndur af Bútæknideild Rann- sóknastofnunar landbúnaðarins fyrri hluta árs 1991 og notaður við dreifingu á um 805 votheysrúllum og 48 þurrheysrúllum við breytilegar aðstæður. Afrúllarinn er ætlaður til að mata hey úr rúllubögg- um af öllum stærðum á öllum þurrkstigum. Hann er ýmist tengdur á þrítengi dráttarvéla eða ámokst- urstæki og vegur 175 kg. Veltibúnaðurinn er knúinn ■- RITSTJÓRNARGREIN GATT-viðrœðurnar. Frh. afbls. 8. verði gert. Endurskoðun núgildandi sam- komulags er eina færa leiðin til þess að koma heimsverslun með landbúnaðaraf- urðir í viðunandi horf. Aðeins var á það bent að drögin væru óaðgengileg fyrir líslenskan landbúnað og þess krafist að stjórnvöld neyttu samningsréttar síns með því að gera fyrirvara við drögin eða höfn- uðu að öðrum kosti landbúnaðarhluta þeirra. Þá er það ennfremur mikill mis- skilningur að „landbúnaðarmafían“ svo- kallaða hafi farið með sigur af hólmi og neytendur sitji eftir með allan „stríðs- kostnaðinn“, eins Neytendasamtökin hafa látið að liggja. Það er ekki neytendum þessa lands til hagsbóta að senda landbún- aðinn í harla vonlausan lífróður undan frá vökvakerfi dráttarvélar. Með tækinu má taka rúllur beint úr stæðum og dreifa úr þeim t.d. á fóðurgang. Mælingar á afköstum við gjafir við algeng- ar aðstæður sýndu að vélavinnan er um 6 mín/hb en það svarar til um 39 mín/tonn þurrefnis. Heildarvinn- an við heyfóðrun með tækinu var um 80 mín/tonn þurrefnis. Dreifigæði eru mjög háð þurrkstigi heys, bagga- og heygerð. Á grófu forþurrkuðu heyi í fast- kjarna böggum matast heyið í nokkuð samfelldum streng en á smágerðu heyi úr lauskjarna böggum matast aðeins hluti af böggunum jafnt. Á tækið má einnig tengja staurabor og hræritunnu fyrir stein- steypu en ekki gafst færi á að reyna þau með viðeig- andi mælingum. Frumathuganir benda til að þau skili vel sínu hlutverki. í heild má segja að KR afrúllarinn sé einfalt, sterkbyggt tæki sem létti verulega vinnu við flutning og dreifingu heys úr rúlluböggum. Engar bilanir komu fram á reynslutímanum. Athugið. Bútœknideild Rala býður upp ú úskrift að Búvélapróf- unum gegn vœgu úrgjaldi. Áskrifendur fú sendar skýrslurnar í heild um leið og þœr koma út en í mörgum tilvikum er óskað eftir ítarlegri upplýsingum en birtist hér í blaðinu. Þeir sem óska eftir að gerast úskrifendur eða fú núnari upplýsingar hafi samband við skrifstofu Bútœknideildar ú Hvanneyri, síma 93-70000. niðurgreiddri fjöldaframleiðslu. GATT- yfirlýsing stjórnvalda sýnir glöggt að þau eru á þessu máli og eru þar gerðir nauðsyn- legir fyrirvarar við þá þætti samningsdrag- anna sem hefðu komið verst niður á land- búnaðinum. Þessir fyrirvarar verða hvorki til þess að eyðileggja fyrir samningunum né draga þá á langinn og ljóst er að íslensk- ur landbúnaður á afar erfiða tíma í vænd- um við að laga sig að því breytta rekstrar- umhverfi sem nýtt GATT-samkomulag mun hafa í för með sér. Vonandi verður þessi umræða til þess að sem flestir geri sér grein fyrir að GATT- viðræðurnar fela ekki í sér stríð neytenda og bænda heldur hringiðu alþjóðlegra við- skiptahagsmuna. Það getur enginn nema þjóðin sjálf gætt þess að hún sogist ekki niður á botn hennar. Helga Guðrún Jónasdóttir.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.