Freyr - 01.01.1992, Side 37
1.’92
FREYR 29
Frá Búvísindadeild á Hvanneyri
Tíu nýir búfrœðikandidatar frá
Hvanneyri
Hinn 1. desember sl. voru brautskráðir 10 kandidatar frá Búvísindadeild Bœndaskói-
ans á Hvanneyri. Þetta er tuttugasti og annar hópurinn, sem þaðan útskrifast, frá því
að deildin hóf stört árið 1947.
Brautskráning fór nú fram á
óvenjulegum tíma, þar eða verk-
fall BHMR vorið 1989 tafði nám
þessa hóps verulega.
Bestum heildarárangri á kandí-
datsprófi náði Sigríður Jónsdóttir
frá Gýgjarhólskoti í Biskupstung-
um og hlaut hún fyrir viðurkenn-
ingu frá Félagi íslenskra búfræði-
kandídata. Sigríður hlaut einnig
viðurkenningu Rannsóknastofn-
unar landbúnaðarins fyrir bestu
lokaritgerð (aðalverkefni).
Búnaðarfélag íslands veitti við-
urkenningu fyrir besta árangur í
jarðræktar- og búfjárræktargrein-
um, þeim Sigurði Kristjánssyni frá
Skuggahlíð í Norðfirði og Guðrún
J. Stefánsdóttir frá Kagaðarhóli í
A.-Húnavatnssýslu. Þá veitti
Stofnlánadeild landbúnaðarins
Guðrúnu Lárusdóttur frá Kirkju-
bæjarklaustri II viðurkenningu fyr-
ir besta árangur í hagfærði- og bú-
stjórnargreinum, en þetta er fyrsti
hópurinn sem námi lýkur eftir
nýrri skipan þeirra. Hagfræði- og
bústjórnarkennslu við Búvísinda-
deild hefur verið aukin að mun, og
nýtur deildin góðs af nábýli við
nýstofnaða Hagþjónustu landbún-
aðarins í þeim efnum.
Margir gestir voru viðstaddir
brautskráninguna og mörg ávörp
flutt. Landssamband kúabænda af-
henti Búvísindadeild 100 þús. kr.
til kaupa á hugbúnaði eða tækjum
við bókasafn skólans. Var það við-
urkenning fyrir skoðanakönnun
meðal kúabænda, sem hinir nýút-
skrifuðu kandídatar höfðu unnið
að fyrir Landssambandið, en verk-
ið var liður í tölfræðinámi þeirra.
Hinir nýbökuðu kandídatar eru
allir komnir til starfa innan land-
búnaðarins; tveir við búrekstur, en
átta við kennslu ráðgjafar- og
rannsóknastörf. Atvinnumögu-
leikar fólks með búvísindamennt-
un virðast því vera mjög góðir.
Nú eru 13 nemendur á öðru
námsári við Búvísindadeild, en
nám við deildina tekur þrjú ár að
afloknu stúdentsprófi og eins árs
almennu búnaðarnámi. Gert er
ráð fyrir að taka nýjan námshóp
inn í deildina næsta haust, - 1992.