Freyr - 01.01.1992, Page 42
34 FREYR
1.’92
Arnaldur Bjarnason,
atvinnumálafulltrúi
Námsstefnur vettvangur
upplýsinga
frœðslu og skoðanaskipta
Einn mikilvœgur þáttur í þeirri viðleitni að skapa umrœðu um nauðsyn þess að efla
fjölþreytt atvinnulíf í sveitum og strjálbýli, er að miðla upplýsingum og frœðslu.
Á árinu 1991 hefur verið efnt til
svokallaðra námsstefna á 4 stöð-
um; Hvanneyri, Húnavöllum,
Vopnafirði og í Suðursveit.
Námsstefnurnar hafa byggst upp
á stuttum erindum um efni sem
snertir á einn eða annan veg at-
vinnustarfsemi í sveitum og ný-
sköpun atvinnu. Par er rætt um
hlutverk sveitarfélaga í atvinnu-
málum, hlutverk búnaðarsam-
banda og ráðunauta þeirra á þess-
um vettvangi. Verkefni og viðhorf
atvinnumálafulltrúa bænda, starf-
semi og verkefni atvinnuþróunar-
félaga og átaksverkefna. Sagt er
frá reglum og þjónustu Fram-
leiðnisjóðs landbúnaðarins og
annarra sjóða sem styðja við at-
vinnuuppbyggingu og nýsköpun.
Upplýst er um ferðaþjónustu-
möguleika í sveitum og hlunninda-
möguleika. Þá er smá kennslu-
stund f nýsköpunarvinnubröðgum
og stofn- og rekstraráætlunum. Al-
mennt hafa námsstefnurnar mælst
vel fyrir og verið vel sóttar. Þær
miða fyrst og fremst að því að
vekja til umhugsunar um atvinnu-
mál og möguleika og að upplýsa,
en einnig að stuðla að beinni sam-
skiptum þeirra ráðgjafa og fyrirles-
ara sem erindin flytja og einstak-
linga sem vilja afla sér frekari upp-
lýsinga og ráðgjafar.
Árni Snæbjörnsson tók mynd-
irnar á síðustu námsstefnu að
Hrolllaugsstöðum í Suðursveit
þann 26. nóvember.