Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1992, Page 43

Freyr - 01.01.1992, Page 43
1.’92 FREYR 35 Hagþjónusta landbúnaðarins Ársskýrsla 1990 Rit 1: 1991 Freyr hefur borist Ársskýrsla Hag- þjónustu landbúnaðarins fyrir árið 1990. Þar er greint frá starfi stofn- unarinnar fyrsta starfsár hennar og viðfangsefnum í þjónustu landbún- aðarins. Starfsemi Hagþjónustunnar hófst formlega með athöfn á Hvanneyri 5. apríl sl., en þar er stofnunin til húsa. Hagþjónustan hefur tekið við verkefnum Bú- reikningastofu landbúnaðarins en að auki eru henni ætluð mjörg önn- ur viðfangsefni. Bændasamtökin áttu hugmynd að því að koma Hagþjónustu land- búnaðarins á fót. I ályktunum frá þeim var lagt til að hagstofnunin sæi einkum um yfirumsjón með búreikningahaldi bænda, að hafa frumkvæði að áætlanagerð fyrir bændur og einstakar búgreinar, að safna hagtölum landbúnaðarins og vinna úr þeim, að hafa yfirumsjón með hagrannsóknum í landbúnaði og undirbúa verðlagningu. Lagafrumvarp um Hagstofnun landbúnaðarins var lagt fram á Al- þingi 1989. í því var verksvið stofn- unarinnar aukið frá því sem að ofan greinir. Með lögum nr. 63/ 1989 var svo Hagþjónusta land- búnaðarins stofnuð. Hún hefur að- setur á Hvanneyri sem áður sagði og heyrir undir landbúnaðarráð- herra. Stofnunin starfar fyrir fé úr ríkissjóði og fyrir eigin tekjur. For- stöðumaður hennar er Magnús B. Jónsson, en fulltrúar frá Búnaðar- félagi íslands, Búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri, Hag- stofu Islands og Þjóðhagsstofnun skipa stjórn hennar. I þessa fyrstu starfsskýrslu Hag- þjónustunnar ritar Magnús B. Jónsson skýrslu um störf hennar. Hann getur þess að starfsemin hafi verið í mótum en sé að festast í sessi. Starf Hagþjónustunnar að búreikningum var tvíþætt: að taka þátt í endurskipuleggja búreikn- ingakerfið og að meta afkomu bænda í nokkrum búgreinum. Samstarf var eflt við búnaðarsam- Að gefnu tilefni. Frh. afbls. 36. í umsögn ráðstefnu Alþjóða- sambands búvöruframleiðenda, sem að framan getur er staðreynd- um snúið við. Nóg hefði verið að viðurkenna það forystuhlutverk sem landbúnaðurinn hefir haft um verndun og græðslu landsins, eink- um um síðasta hálfrar aldar skeið. böndin. Síðari hluta ársins var far- ið að safna hagtölum landbúnaðar- ins. Fleiri voru viðfangsefni stofn- unarinnar þótt ekki verði rakið hér. Auk starfsskýrslna þeirra er vinna hjá stofnuninni eru birt ávörp og erindi er flutt voru við opnun Hagþjónustunnar eftir Þórð Friðjónsson, stjórnarformann, Steingrím J. Sigfússon, þáverandi landbúnaðarráðherra, Hallgrím Snorrason, hagstofustjóra, Magnús B. Jónsson, forstöðu- mann Hagþjónustunnar, Ketil A. Hannesson, hagfræðiráðunaut og Ernu Bjarnadóttur búnaðarhag- fræðing. Þá er birt rekstrar- og efnahags- yfirlit átta greina landbúnaðar eftir Ernu Bjarnadóttur. Niðurstöður úr vinnuskýrslum eftir Gunnar Rúnar Kristjánsson og Chabani Ramdani og loks er skrá um rit starfsmanna Hagþjónustu land- búnaðarins 1990. Margt er athygl- isvert að finna í þessari fyrstu ársskýrslu Hagþjónustunnar og fróðlegt þótti undirrituðum að lesa um niðurstöður úr vinnuskýrslum. ' J.J.D. En að því þurfa allir sem einn að vinna. Athuga ber að grein þessi er einvörðungu miðuð við íslenskar aðstæður. Grímur Gíslason, Blönduósi.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.