Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 47
frumvarpi um dýrasjúkdóma sem
unnið hefur verið að að forgöngu
landbúnaðarráðuneytisins.
Guðmundur Jónsson, sem sat í
nefnd þeirri er vann frumvarps-
drögin, skýrði frekar tilurð frum-
varpsins. Pað á að koma í staðinn
fyrir sértæk lög af ýmsu tagi sem
rammalög. Síðan á að taka á ein-
stökum málum með útgáfu reglu-
gerða.
Drögin voru rædd ítarlega og
ákveðið að framkvæmdastjóri,
Guðmundur Stefánsson og Guð-
mundur Jónsson taki saman fram-
komnar athugasemdir og komi
þeim til landbúnaðarráðuneytis-
ins. Almennt var stjórnin ánægð
með þá stefnu sem tekin er í þess-
um frumvarpsdrögum.
Bréf Geitfjárrœktarfélags
íslands.
Framkvæmdastjóri kynnti stofnun
Geitfjárræktarfélags íslands, sem
stofnað var í Bændahöllinni í nóv-
ember sl. Markmið þess er að
vinna að ræktun geitfjár og auka
verðmæti geitfjárafurða með
kynningu og markaðsleit.
Félagið óskar eftir aðild að
Stéttarsambandi bænda sem bú-
greinafélag samkvæmt ákvörðun
stofnfundar.
Stjórnin taldi að svo komnu máli
ekki fært að veita Geitfjárfélagi
íslands fulla aðild að Stéttarsam-
bandi bænda og fól framkvæmda-
stjóra að rita formanni félagsins
bréf þar að lútandi.
Úðalyf menga grunnvatn
Grunnvatn í flestum EB-löndum
er mengað af eitruðum úðunarlyfj-
um, segir í skýrslu sem lögð var
fram á jólaföstu á fundi umhverfis-
ráðherra EB í Haag í Hollandi. I
þeirri skýrslu segir að notkun úð-
unarefna (jurtlyfja o.þ.h.) sé kom-
in yfir öryggismörk í þremur fjórðu
hlutum alls ræktaðs lands í EB-
löndum.
DRAITARVEIA
KEÐjUR
Smíöum keðjur samdœgurs eftir óskum hvers
og eins. Eigum einnig keöjur ó lager.
Sendum hvert d land sem er.
CAP
G.A. Pétursson hf
snjókeðjumarkaðurinn
Nútíöinni Faxateni 14, sími 68 55 80