Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1994, Qupperneq 9

Freyr - 01.03.1994, Qupperneq 9
Músahögninn, háríðnitcekið sem Baldvin heldur á, heldur fjárhúsum og hlöðu hreinum afmúsum. þýðir ekkert fyrir mig að ætla að stökkva úr eigin verkum og þar að auki eru miklu betur búin verkstæði hér nærlendis heldur en það sem ég ræð við fyrir sjálfan mig. En ég hef verið svolítið með snjóblásara hérna á veturna svo og tekið alla þá vinnu sem fengist hefur á þessi tæki sem ég á. Ég er líka með ólæknandi byssu- og sleðadellu. Svo á ég bát og fer á sjó ef stund gefst. Þetta er lítil trilla. Hvar geymirðu hana milli róðra? Ég er með hana á vagni; gerði veg niður í fjöru og vör í hana af því að fjaran hér er ekkert nema stórgrýti, fer svo með trilluna og vagninn og bakka út í sjó. Er eitthvað að hafa úr sjónum hérna? Ja, aðallega ánægjuna, en það má nú eiginlega segja að við kaupum engan fisk til heimilis. Þarttu að fara langt til fiskjar? Nei, nei, svona rétt þannig að fljóti, á vorin sérstaklega. Þá gengur þorskur hérna á víkina til að hrygna. (Þetta hefur Hámundur heljarskinn fundið; innsk. blm.) Þetta er eitt af því sem fiskifræð- ingar vilja ekki viðurkenna að sé til. Maður getur fengið sæmilega vænan fisk hérna á vorin og hann er saltað- ur og hertur og frystur; en þetta er eingöngu til heimilis. Og svo er farið í fugl og sel. Hvað gerirðu við selinn? Hann fer nú mest í smábútum til kunningjanna. Þú hefur ekkert reynt við hnísur? Nei, það er lítið um hnísur hérna, það er helst á vorin og þá er sauð- burður og maður fer ekkert á sjó um sauðburð. í íbúðarhúsinu á Stóru-Hámund- arstöðum er símtól nokkurt, nefnt „vígvallasími". Þetta er handsnúið tæki sem framleiðir eigið rafmagn. Þaðan er bein símalína út í fjárhús og auk þess kalltæki við hjónarúmið og annað eins úti í fjárhúsi. Frjósemi er mikil í sauðfé Bald- vins og í fyrravor vantaði 7 lömb upp á að allar ær hefðu borið tveim lömb- um að jafnaði; átján voru þrílembd- ar, og 25 einlembur. Þegar blaða- maður átti viðtalið við Baldvin snemma sumars var vitað um aðeins eitt lamb sem hefði drepist eftir sauðburð í vor. Notið þið sœðingarþjónustu? Við eigum kost á að fá sætt annað hvert ár og það höfum við reynt að nota til þess að fá nýtt blóð í stofn- inn. Gólf votheyshlöðunnar eða flat- gryfjunnar á Stóru-Hámundarstöð- um er í sömu hæð og garðabotnar í fjárhúsunum. Baldvin losar vothey- ið úr stálinu með rafmagnsskera og flytur það í hjólbörum fram í garð- ana. Dauf votheyslykt var í hlöð- unni. Bil eru á milli garða og hlöðu- veggs og lausar brýr á. Hægt er að hringreka í öllum húsunum því gangur er við garðahausa fremst líka og lausir garðar þar til þess að nota á sauðburði. Moðið fer niður í kjall- ara, er sópað niður. - Afskapíega þægilegt, segir Baldvin. Gólfrimlareru úr járnbentri stein- steypu; þau hjónin handsteyptu þá alla, rúmlega 1400 stykki og notuðu til þess 18 mót. Bil á milli rimlanna er 20 mm. Halli landsins er þaulnýtt- ur, eins og áður sagði, til þæginda við vinnu við fjárhúsin. Dráttarvél keyrt beint inn í áburðarkjallara, henni má líka aka beint inn á fjárhúsgang um hliðardyr og loks er heyvagni bakkað inn eða upp á stæð- ____________________________________ Símtól og kalltœki í fjárhúsunum. Kalltcekið er tengt við annað heima í hjónaherbergi. una í hlöðunni og svo troðið með dráttarvél jafnóðum. Þau Baldvin og Elín vinna mikið ein að heyskapnum; hann gengur fljótt og vel. Þau eiga þrjá syni, Harald Lárus, rafeindavirkja, bú- settan á Akureyri, Brynjar Orn, við nám í rafeindavirkjun í Reykjavík og Bjarka Þór, nema í Verkmennta- skólanum á Akureyri. Þeir yngri eru yfirleitt í vinnu af bæ á sumrin til að Gólfið á garðanum og hlöðunni eru í sömu hœð. Votheyinu hjólað fram í garðann um lausa brú sem lögð er á ganginn. 5*94 • FREYR153

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.