Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 14

Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 14
Alþjódaleikar á íslenskum hestum hafa verið haldnir alltfrá árinu 1970. Leikarnir, sem haldnir eru á tveggja ára fresti, voru fyrst einskorðaðir við þátttöku ýmissa Evrópuþjóða, en síðustu árin er þátttakan orðin meiri. Myndin að ofan sýnir mjög venjulegar aðstœður til þessa móthalds erlendis og erfrá EM í Pýskalandi 1983. Heimsleikarnir á íslenskum hestum Kristinn Hugason, hrossarœktarráðunautur Búnaðarfélags íslands Undirbúningur í samræmi við núverandi stefnu leiðbeiningaþjónustunnar, að auka alþjóðlegt samstarf um ræktun ís- lenska hestisins, tóku íslendingar þátt í kynbótasýningu Heimsleik- anna á íslenskum hestum og sendu tvo kynbótadómara til starfa á leik- unum. Vali íslensku þátttökuhrossanna var hagað á þann veg að haldnar voru tvær sýningar vegna forskoð- unar fyrir heimsleikana. Ein í Mið- Þýskalandi, hún var haldin í þorpi sem heitir Kaufungen og hin var haldin í Víðidal í Reykjavík. Auk þess voru hross dæmd á héraðssýn- ingum víða um land og á Fjórðungs- mótinu með þátttöku í Heimsleik- unum í huga. Dæmt var í öllum atriðum í samræmi við íslenskar dómareglur, einungis var bætt við að dæma fet. Dómarnir voru síðan reiknaðir út með tveimur aðferðum; með núgildandi vægjum, án fetsins vegna aðaluppgjörsins og með Kristinn Hugason. FEIF-vægjum, nteð fetið inni þegar þátttökuhrossin voru valin til sýn- ingarinnar á Heimsleikunum. Forskoðun á erlendri grundu í Kaufungen voru einungis tekin til dóms hross sem fædd voru á ís- landi, alls voru dæmdir sjö stóðhest- ar fullorðnir (sjö vetra og eldri), fjórir stóðhestar fimm og sex vetra, 16 hryssur fullorðnar og átta hryssur fimm og sex vetra en á Heimsleikun- um er aldursflokkaskipting sýninga- hrossa á kynbótasýningum einmitt sú sem fram kom hér á undan. Stóðhestar, fullorðnir. Petta var afar sterkur flokkur en hestarnir náðu allir nema tveir yfir 8,00 í aðaleinkunn og enginn hlaut lægri aðaleinkunn en 7,75. Efstur í flokknum samkvæmt íslensku upp- gjöri var Náttar frá Miðfelli (85187016), (7,85 8,47 8,16). Náttar er mjúkbyggður og reiðhestslegur en of snúinn í fótum, hann er flug- vakur og fjölhæfur gæðingur. For- eldrar Náttars eru Náttfari frá Ytra- Dalsgerði og Vika frá Vatnsleysu. Gammur frá Tóftum (86187020) var í öðru sæti (7,85 8,46 8,15). Gamm- ur er farinn að sverna t.d. um háls og haus og lækkaði því lítillega í bygg- ingu en hann er skörungur; flugvak- 158 FREYR • 5*94

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.