Freyr

Årgang

Freyr - 01.03.1994, Side 23

Freyr - 01.03.1994, Side 23
Rannsóknastofnun landbúnaðarins Bútœknideild, Hvanneyri BUVCLRPROFBNIR Ár1993 Nr. 633 Ár 1993 Nr. 634 Spennugjafar fyrir rafgirðingar REIME - mykjudreifari Samanburður á þrettán spennustöðvum fyrir rafgirðingar. YFIRLIT Sumarið 1993 voru spennustöðvar fyrir rafgirðingar reyndar við Bútæknideild Rannsóknastofnunar land- búnaðarins. Eftirfarandi stöðvar voru reyndar: AKO S6000 AKO S8000 Electric Shepherd, Model EMS 2000 Electric Shepherd, Model EMS 3000 Elefant M45 Elefant M90 Gallagher M800 Gallagher M1500 Spennustöðvarnar eru allar gerðar fyrir venjulegt veiturafmagn, þ.e. 220V riðspennu. Ýmsar mælingar voru gerðar og koma niðurstöður þeirra fram bæði í myndrænu formi og talnaformi í eftirfarandi prófunar- skýrslu ásamt almennum upplýsingum um hverja spennustöð. Tekið skal fram að ekki var notast við upplýsingar sem gefnar eru upp í bæklingum og hand- bókum með spennustöðvunum, sökum þess að þær tölur eru fengnar með ólíkum aðferðum og því erfitt að nota þær í beinum samanburði. Því var valin sú leið að birta einungis niðurstöður sem fengust með beinum mæling- um. Þetta gefur möguleika á að bera saman spennu- stöðvarnar við sömu aðstæður og með sömu mælitækj- um. í skýrslunni kemur fram hvernig slögin frá spennu- stöðvum líta út. Þar kemur fram að slög stöðva geta verið tiltölulega ólík milli tegunda. Nefna má að spenn- an fellur mishratt við aukið álag, og lögun slaganna og lengd er mismunandi eftir því hvaða spennustöð um er aðræða. Frh. ábls. 171. HOTLINE P600 HOTLINE P1000 PEL 605 PEL 610 REDSNAP Gerð: Reime 4250. Framleiðandi: Reime a.s., Noregi. Innflytjandi: Bújöfur hf., Reykjavík. YFIRLIT Reime 4250 mykjudreifarinn var prófaður af Bútækni- deild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins vorið 1993. Á reynslutímanum, sem var skammur, var dreifarinn notaður til dreifingar á 180 til 200 tonnum af mykju. Dreifarinn er ætlaður til flutnings og dreifingar á þunnfljótandi búfjáráburði. Hann rúmar um 4 tonn og er léttbyggður, m.a. vegna þess að mykjutankurinn er gerður úr trefjaplasti. Tómur vegur hann um 860 kg. Framan við tankinn er miðflóttaaflsdæla, tengd aflúttaki dráttarvélar með drifskafti. Hún dælir mykjunni út í tvo dreifistúta aftast á dreifaranum. Þunn mykja dreifist mjög vel en þykk mykja (>10% þe.) fremur illa. Til að lækka þurrefnismagnið svo að meðhöndlunin gangi við- unandi vel er algengt að þurfi auk þvagsins um 5-6 tonn af vatni á hvern grip í fjósi. Losun á þunnri mykju úr tankinum tekur 1,1 til 1,8 mín. en lengri tíma tekur að tæma dreifarann af þykkari mykju. Afköst við útakstur eru mjög háð þykkt mykjunnar en eru oft á bilinu 6-12 tonn á klst. Ætla verður 40-50 kW (55-68 hö) dráttarvél fyrir dreifarann. Á prófunartímanum komu ekki fram neinar bilanir eða óeðlilegt slit. Hann er auðveldur í notkun og virðist traustbyggður. 5*94 - FREYR167

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.