Freyr - 01.03.1994, Side 25
Ár 1993 Nr. 637
Borello - stjörnumúgavél
Gerð: Borello 4000S. Framleiðandi: Borello Stefano
C.s.n.c., Ítalíu. Innflytjandi: Orkutækni hf., Reykjavík.
YFIRLIT
Borello 4000S stjörnumúgavélin var reynd af Bútækni-
deild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið
1993 og notuð alls um 71 klst.
Stjörnumúgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og
knúin frá aflúttaki. Hún vegur um 515 kg. Múgavélin
reyndist raka vel og skilja eftir litla dreif við algengar
aðstæður. Magn dreifa í rakafari mældist að jafnaði um
85 kg þe/ha eða sem svarar 1,0 hb/ha við ökuhraða 5-10
km/klst. Við bestu aðstæður er dreifarmagnið um 60 kg
þe/ha. Þrátt fyrir mikla vinnslubreidd reyndist vélin
fylgja vel ójöfnum á yfirborði landsins. Hún getur rakað
frá girðingum og skurðbökkum. Liður í beislisbúnaði
vélarinnar gefur svigrúm til að vinna með vélinni í
beygjum. Rakstrarfar vélarinnar er allt að 3,1 m að
breidd. Hæfilegur ökuhraði var oftast um 8-12 km/klst.
og afköst að jafnaði um 2,4 hs/klst. Vélin rýrir fram-
þunga meðalstórra dráttarvélar talsvert og getur þurft
að þyngja þær til að uppfylla ákvæði um þungahlutföll á
dráttarvélum. Múgavélin er lipur í tengingu og notkun,
virðist traustbyggð og engar bilanir komu fram á
reynslutímabilinu.
Ár 1993 Nr. 638
Deutz-Fahr - sláttuþyrla
Gerð: Ðeutz-Fahr SM 324 SC. Framleiðandi: Green-
land Nieuw-Vennep BV, Hollandi. Innflytjandi: Þór
hf., Reykjavík.
YFIRLIT
Sláttuþyrlan Deutz-Fahr SM 324 SC með sambyggðum
heyknosara var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofn-
unar landbúnaðarins sumarið 1993. Hún var notuð alls
um 25 klst. sem er óvenju skammur prófunartími.
Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og lyft upp í
flutningsstöðu ýmist til hliðar eða aftan við dráttarvél.
Þyngd hennar er 800 kg. Sláttuþyrlan reyndist að jafnaði
slá hreint og jafnt og var stubblengd í sláttufari að
meðaltali 62 mm við ökuhraða 5-13 km/klst. Hægt er að
stilla sláttunánd bæði með meiðum undir skífubakka svo
og með lengd yfirtengis. Sláttubúnaður vélarinnar fylgdi
vel ójöfnum landsins þrátt fyrir mikla vinnslubreidd.
Vinnslubreidd sláttuþyrlunnar er allt að 2,45 m. Knosar-
inn er fasttengdur á burðargrind vélarinnar og má stilla
knosunarstigið með handföngum. Auka má verulega
þurrkunarhraða heysins með knosuninni. Ætla verður
að minnsta kosti 50 kW (68 hö) dráttarvél fyrir þyrluna
til að nýta afkastagetu hennar. Sláttuþyrlan er tiltölu-
lega lipur í stjórnun en þyngd hennar getur í flutningi
raskað þungahlutföllum meðalstórrar dráttarvéla.
Hnífaslit á reynslutímanum var innan eðlilegra marka.
Hlífðardúkar vélarinnar eru vel úr garði gerðir en
frákast knosarans er fremur mikið opið. Dagleg um-
hirða er fljótleg. í lok reynslutímans var ekki unnt að
merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiri háttar
bilanir komu fram á reynslutímanum. Sláttuþyrlan virð-
ist vera traustbyggð og vönduð að allri gerð.
5*94 • FREYR169