Freyr - 01.09.1998, Side 8
Sauðfjársœðingarnar 1997
Sæðingar sauðfjár hafa lengi ver-
ið hér á landi ómetanlegur þáttur
við að dreifa yfirburða erfðaefni í
stofninum og eiga þær því ómældan
þátt í þeim ræktunarárangri sem
orðið hefur í sauðfjárræktinni.
Um nokkurt árabil hafa verið
starfræktar tvær sauðfjársæðinga-
stöðvar hér á landi. Búnaðarsam-
band Suðurlands starffækir aðra stöð-
ina sem er í Laugærdælum, en sam-
vinna er með stöðvunum á Möðru-
völlum og Borgamesi þannig að þær
starfa sitt árið hvor. I desember 1997
var stöðin við Borgarnes starfrækt.
Hér á eftir verður gerð grein fyrir
hrútakosti stöðvanna, upplýsingum
um reynslu af hrútunum sem þar
voru í notkun og fjallað um umfang
starfseminnar í desember 1997.
Á stöðvunum voru í notkun 39
hrútar, 23 í Laugardælum og 16 í
Borgamesi. Frá fyrra ári höfðu fallið
eða verið felldir 15 hrútar en 12 nýir
hrútar komu nú í fyrsta sinn í notkun
á stöð.
Hrútar sem nú eru horfnir úr leik
frá því í desmeber 1996 voru: Klett-
ur 89-930, Bjöm 89-933, Búi 89-
950, Valur 90-934, Hnykill 90-976,
Váli 91-961, Gnýr 91-967, Stikill
91-970, Svanur 92-966, Fenrir 92-
972, Melur 92-978, Spakur 92-979,
Bloti 93-987, Penni 93-989 og
Frami 94-996.
Nýir hrútar til notkunar á stöðv-
unum voru eftirtaldir:
Bjartur 93-800 frá Hjarðarfelli á
Snæfellsnesi. Faðir er Fóstri 90-943
en móðir 89-957, en móðurfaðir
Dropi 86-469. Bjartur er hreinhvítur
og hymdur. Hann var í Borgamesi.
Hnoðri 95-801 frá Heydalsá í
Kirkjubólshreppi. Faðir er Steri 92-
327 en móðir hans 89-502 og móð-
urfaðir Hrói 87-101. Hnoðri er
hreinhvítur og hymdur. Hann var á
stöðinni í Borgamesi.
Bjálfi 95-802 er frá Hesti í Borg-
arfirði. Faðir hans er Bútur 93-982
en móðir 93-003 og móðurfaðir
Hörvi 92-972. Bjálfi er hvítur og
eftir Jón Viðar Jón- mundsson
búfjárræktar- ráðunaut hjá BÍ
hymdur. Hann var á stöð í Borgar-
nesi.
Bylur 94-803 frá Hafnardal við
ísafjarðardjúp. Faðir er Melur 92-
509 en móðir Hríð 93-228 og móð-
urfaðir Glámur 92-505. Hann er
hvítur og kollóttur. Bylur var notað-
ur frá stöðinni í Borgamesi.
Jökull 94-804 frá Brimilsvöllum
á Snæfellsnesi. Faðir er Bjöm 89-
933 en móðir 91-063 og móðurfaðir
Dropi 85-923. Jökull er hreinhvítur
og kollóttur. Hann var á stöðinni í
Borgamesi.
Héli 93-805 frá Ósabakka á
Skeiðum. Faðir er Valur 90-934 en
móðir Setta 89-294 og móðurfaðir
Broddi 85-892. Héli er svartur að lit
og kollóttur. Héli var á stöðinni í
Laugardælum.
Búri 94-806 er frá Norðurhjá-
leigu í Álftaveri. Faðir er Búi 89-
950 en móðir 90-752 og móðurfaðir
Kópur 87-396. Búri er hvítur og
kollóttur. Hann var á stöðinni í
Laugardælum.
Sveppur 94-807 frá Smáhömrum
í Kirkjubólshreppi. Faðir er Kubbur
91-005 í Árbæ í Reykhólasveit en
móðir 92-691 og móðurfaðir Gáski
91-259. Sveppur er hvítur og koll-
óttur. Sveppur var notaður í Laugar-
dælum.
Garpur 92-808 frá Lækjarhúsum
í Suðursveit. Faðir er Hrókur 88-198
en móðir Varta 89-829 og móður-
faðir Toppur 87-131. Garpur er hvít-
ur og hymdur. Hann var notaður í
Laugardælum.
Húnn 92-809 frá Hesti í Borgar-
firði. Faðir er Galsi 88-929 en móðir
4879 og móðurfaðir Þristur 83-836.
Húnn er hvítur og hymdur. Hann er
arfblendinn með frjósemiserfðavísi
(Þokugenið). Húnn var á stöðinni í
Borgamesi.
Peli 94-810 frá Tóftum við
Stokkseyri. Faðir er Naggur 93-042
en móðir 93-072 og móðurfaðir
Skrúður. Peli er hreinhvítur og
hymdur. Peli var notaður á stöðinni í
Laugardælum.
Serkur 95-811 frá Berserkseyri á
Snæfellsnesi. Faðir er Svali 91-660
en rnóðir Heiða 92-885 og móður-
faðir Dropi 91-975. Serkur er svart-
flekkóttur og hymdur. Hann var á
stöð í Laugardælum.
Mölur 95-812 er frá Hesti í Borg-
arfirði. Faðir er Svaði 94-998 en
móðir 5776 og móðurfaðir Deli 90-
944. Mölur er hvítur og hymdur.
Mölur var notaður í Laugardælum.
í annarri grein í blaðinu eru gefn-
ar allar nýjustu upplýsingar úr upp-
gjöri fjárræktarfélaganna fyrir hrút-
ana á stöðvunum. Þar sem fjárrækt-
arbúið á Hesti er ekki í því uppgjöri
skortir upplýsingar þar um hrútana
frá Hesti sem nú vora fyrsta sinni á
stöð.
í desember var tíðarfar til sæð-
ingarstarfsemi hagstætt og bændur
nýttu sér því mjög vel þá þjónustu
sem þar var boðin. Frá stöðinni í
Laugardælum vom sæddar samtals
8385 ær sem er að vísu örlitlu færra
en árið áður en samt með því mesta
sem hefur verið. Frá Borgamesi
voru sæddar 8011 ær sem er umtals-
verð aukning frá því sem þar hefur
verið áður.
Frekari skipting sæðinga frá
stöðinni í Laugardælum í einstök
héruð var eftirfarandi:
Ámessýsla 2278 ær
Rangárvallasýsla 1575 ær
Vestur-Skaftafellssýsla 2159 ær
Austur-Skaftafellssýsla 1286 ær
Múlasýslur 190 ær
Þingeyjarsýslur 395 ær
Isafjarðarsýslur 299 ær
Borgarfjörður 141 ær
Kjalames 62 ær
8 - Freyr 1 1/98