Freyr - 01.09.1998, Qupperneq 16
Tafla 6 Pungi lamba á fæti, fallþungi og fituþykkt á síðu í vetrarslátrun
1997-98.
Vigtardagar
Sláturdagar Tala Fæð.- þungi 2/7 29/9 14/10 4/11 17/11 1/12 16/12 7/1 16/2 24/3 Fall kg Síðu fita
Gimbrar 18. des. 22 3,58 13,5 30,8 32,6 31,2 35,1 36,8 36,2 13,5 6,1
Geldingar 24. mars 9 3,20 12,4 24,8 29,3 29,3 32,9 32,9 31,2 24,2 35,4 38,3 13,6 3,2
Gimbrar 24. mars 12 3,58 11,5 23,9 26,7 26,1 28,7 28,8 29,7 32,1 33,4 35,3 12,7 4,2
20. ágúst. í töflu 5 er sýndur fæðing-
arþungi, vaxtarhraði, þungi á fæti
fyrir slátrun og fallþungi og kjöt-
hlutfall.
Eftir burðinn gengu ærlömbin
(einlembingar) með mæðrum sínum
í úthagahólfi, þar sem þeim var
gefið rúlluhey til 8. júní, en þá var
farið að sleppa þeim í heimalandið,
þar sem þau gengu til 28. júlí, er þau
voru vigtuð og sett á tún. Gemlings-
lömbin voru aftur á móti á túnum
fram til 2. júlí en þá var þeim sleppt
í heimalandið en síðan sett aftur á
tún 28. júlí. Lömbin uxu ágætlega til
júlívigtunar en eftir þann tíma, er
þau komu á túnið, hægði verulega á
vextinum, einkum hjá gimbrunum.
Túnið, sem lömbin gengu á með
mæðrum sínum, var slegið 8. júlí og
borið á það strax eftir hirðingu og
spratt háin mjög hratt, og var ágæt
beit komin á það, er ám og lömbum
var sleppt á það 28. júlí. Það virðist
því sem hin fljótsprottna há hafi
ekki verið jafn næringarríkt fóður
eins og vænta mátti, þar sem fallið í
vaxtarhraða er tiltölulega meira en
gengur og gerist á þessu tímabili.
Meðalfallþungi nam 13,6 kg og fóru
17,3% fallanna í DIU en afgangur-
inn í DIA.
Hinn 17. desember var slátrað 22
lömbum, 20 gimbrum og 2 gelding-
um og 24. mars 9 geldingum og 12
gimbrum. Af gimbrunum, sem slátr-
að var í desember, voru 16 gimbrar
af Þokuættinni, sem voru í sérstakri
rannsókn á fijósemi þessa stofns,
þar sem egglos þeirra var talið. Önn-
ur lömb í þessum slátrunum voru
vanmetaskepnur, sem af ýmsum or-
sökum þrifust ekki eðlilega yfir
sumarið. í töflu 6 er sýndur þungi
þeirra á ýmsum tímum frá fæðingu
til slátrunar og jafnframt fallþungi
þeirra og fituþykkt á síðu.
Gimbrunum, sem slátrað var 18.
desember, var beitt á há eftir fyrstu
lambavigtum 29. september og til
14. október, en frá þeim tíma til 4.
nóvember, er öll lömbin voru tekin á
hús, voru þær á káli og rýgresi með
vanþroskalömbunum, sem þar
höfðu verið frá 29. september og
voru langt komin með grænfóðrið,
enda stóðu þær í stað í þunga á
þessu tímabili. Hins vegar þroskuð-
ust afbrigðilegu lömbin vel á græn-
fóðrinu, einkum geldingarnir, sem
þyngdust um 4,5 kg en gimbrarnar
aðeins um 2,2 kg að meðaltali. A
húsi fengu lömbin töðu eingöngu en
hún var úr sér sprottin og því fremur
léleg að gæðum og þótt gimbramar
hafi þyngst um 5 kg á fæti til slátr-
unar 18. des. og vanþroskalömbin
um 9 kg til 24. mars hefur fallaukn-
ing verið tiltölulega lítil eins og hið
lága kjöthlutfall ber með sér. Enda
þótt vanþroskalömbin hafi fengið
130 g af háproteinkögglum frá ára-
mótum hefur það ekki nægt til að
bata þau að neinu ráði eins og fitu-
þykktin á síðu sýnir greinilega. Það
er því augljóst að hagkvæm inni-
fóðrun sláturlamba krefst mikilla
heygæða eins og fram kom í vetrar-
slátruninni sl. vetur og getið er um í
Hestgreininni í 5. tölublaði Freys
1997 en þá bættu sambærileg lömb á
innifóðri, sem slátrað var 9. apríl,
um 2 kg meira við fallþunga sinn en
lömbin í ár með minni þyngingu á
fæti.
92 lömbum (85 gimbrarlömbum
og 7 hrútlömbum), sem biðu haust-
slátrunar, var beitt á óáboma há í
u.þ.b. tveggja vikna tíma. Á þeim
tíma þyngdust þau um 0,93 kg á fæti
að meðaltali. Miðað við að þeim
hefði verið slátrað beint af úthaga í
fyrstu slátrun, má gera ráð fyrir,
samkvæmt reynslu undanfarinna
ára, að fallþungaaukning nemi
u.þ.b. 0,20 kg að meðaltali, og er
sennilegt að hér sé að mestu leyti
um fitusöfnun að ræða.
Meðalkjöthlutfall sláturlamba,
sem gengu á úthaga til slátrunar,
reyndist (svigatölur frá 1996):
29 þríl. hrútar
6 þríl. gimbrar
250 tvíl. hrútur
50 tvfl. gimbur
20 einl. hrútar
11 einl gimbrar
(39,40)
(39,84)
39,29 (39,49)
39,90 (39,89)
41,17 (42,15)
43,70 (43,50)
Hér er sleppt öllum afbrigðileg-
um lömbum og þeim, sem ekki
gengu undir eðlilega, þ.e. fleirlemb-
ingum, sem ekki gengu allir undir
mæðrum sínum. Meðalkjöthlutfall
hrútlamba er nokkuð lægra en sl.
haust en gimbra svipað.
Reiknaður meðalfallþungi allra
lamba undan ám (lömbum úr sumar-
og vetrarslátrun sleppt) var sem hér
segir (svigatölur frá 1996):
310 tvfl. hrútar 15,14 kg (15,32)
273 tvfl. gimbrar 14,32 kg (14,20)
36 einl. hrútar 17,14 kg (17,86)
37 einl. gimbrar 16,46 kg (17,09)
Reiknaður veginn meðalfall-
þungi 656 lamba reyndist 14,98 kg,
sem er 0,04 kg meiri en 1996.
Reiknað dilkakjöt eftir æmar
reyndist:
16-Freyr 1 1/98