Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1998, Side 29

Freyr - 01.09.1998, Side 29
INTERNORDEN-fundu r á Grænlandi um sauðfjárrækt á IXIorðurlöndum Allt frá árinu 1949 hafa sauðfjár- ræktarráðunautar á Norður- löndum fundað og borið saman bækur sínar á tveggja ára fresti. Lengi vel sóttu aðeins landsráðu- nautar þessar samkomur en undan- farinn áratug hafa fleiri bæst í hóp- inn, bæði aðrir fræðimenn og bænd- ur. Dagana 29. júlí - 2. ágúst sl. var 25. INTERNORDEN fundurinn haldinn í Narsarsuaq á Grænlandi, sá fyrsti þar í landi, og sátu hann 33 fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum nema Finnlandi. Fulltrúi Islands, og sá eini þaðan, var höfundur þessa pistils. Fundurinn í Narsarsuaq Allan B. Holm, tilraunastjóri í Uper- naviarsuk, stjómaði undirbúningi fundarins sem haldinn var á Hótel Narsarsuak við prýðilegar aðstæður. Jakob Sehested frá Danmörku, ritari INTERNORDEN, annaðist fundar- stjórn og stóðst dagskráin með ágætum frá upphafi til enda. Hún hófst með yfirlitserindum um stöðu og horfur í sauðfjárrækt á Græn- landi og Islandi og í Færeyjum, Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Framleiðslan er að aukast nokkuð á Grænlandi og Islandi en stendur nokkurn veginn í stað í hinum lönd- unum. Samkeppni við aðrar bú- Sauðfjárframleiðslan er að aukastnokkuð á Grœnlandi og íslandi en stendur nokkurn veginn í stað á hinum Norðurlöndunum. eftir Ólaf R. Dýr- mundsson ráðunaut hjá Bændasam- tökum íslands I í I greinar er vaxandi en þegar á heild- ina er litið hafa verið litlar breyting- ar á markaðnum undanfarin tvö ár. A meðal efnis sem fjallað var um á fundinum vom skýrsluhald, kyn- bætur, vetrarfóðrun, beit og sauð- fjárrækt í jaðarbyggðum. Þá var ijallað töluvert um vanhöld fjár á sumarbeit vegna ágangs rándýra sem er orðið mikið vandamál í Nor- egi. Sýnd vom fróðleg myndbönd þaðan um úthagabeit og riðuveiki sem hefur verið að breiðast út í Nor- egi síðustu árin. Samtals voru flutt 20 erindi, þar af tvö frá íslandi, og kynntar vom rannsóknaniðurstöður á fjómm veggspjöldum. Eg notaði tækifærið til að kynna veggspjaldið með íslenska sauðfénu sem kom út í fyrrasumar og var því vel tekið, einkum vegna þess hve litirnir eru fjölbreyttir. Á stjórnarfundi var Erling Skurdal beitarráðunautur frá Noregi kjörinn ritari INTERNORD- EN og ákveðið var að halda fundinn árið 2000 á Tjptta landbúnaðar- stofnuninni í Noregi, árið 2002 á ís- landi og 2004 í Svíþjóð. Kynnisferðir um Suður- Crænland Skipuleggjendur sáu vel til þess að þátttakendum gæfist tækifæri til þess að kynnast sögu og búskapar- háttum á Grænlandi. Fyrst var farin hálfsdagsferð með þyrlum suður til Upemaviarsuk tilraunastöðvarinnar Þátttakendur skoða grœnfóðurtilraun á tilraunastöðinni í Upernaviarsuk. Langa húsið í baksýn, fyrir miðju, hýsir bœndaskóla Grœnlendinga. (Ljósmyndir 01. Dýrm.) Freyr 1 1/98 - 29

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.