Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.1998, Qupperneq 17

Freyr - 01.12.1998, Qupperneq 17
byggja á málamiðlun sem menn kæmust að á grunni umræðu. Hann rakti þama t.d. á hvem hátt hefði i kjölfar slíkrar umræðu verið mótuð stefna um nýtingu erfðatækni í dönskum landbúnaði. Þróun nútíma mjólkurframleiðslu A síðdegisfundi á þriðjudeginum lýstu nokkrir ræðumenn sjónar- miðum sínum á þróun nútíma mjólkurffamleiðslu. Þar lýsti Pétur Diðriksson á Helgavatni sjónar- miðum bóndans, þar sem hann lagði áherslu á nauðsyn þess að bóndinn fylgdist vel með þróun í þjóð- félaginu og lagaði sig að breyti- legum kröfum. Krafa tímans væri um aukna hagkvæmni í fram- leiðslunni en bóndinn mætti um leið ekki missa sjónar af mikilvægi þess að ffamleiða hágæða afurðir. Finnskur dýralæknir rakti ýmis sjónarmið aðila úr þeirri stétt. Hann lagði mikla áherslu á að aukið framleiðsluálag á kýmar hefði viða leitt til vissra heilsufarslegra vandamála, sérstaklega í sambandi við júgurheilbrigði. Þá hefði kúa- riðan kennt mönnum mikið í sambandi við mikilvægi þess að leggja aukna áherslu á rekjanleika í framleiðsluferlinum og vottaða framleiðsluhætti, eins og áður hefur verið vikið að. Sænskur hagffæðingur dró ffam ýmsar þekktar stærðir í sambandi við stöðu og þróun mjólkurffam- leiðslu bæði á heimsvísu og í Svíþjóð. Evrópulöndin eru með langmesta mjólkurframleiðslu að umfangi, auk Norður-Ameríku. Ástralía og Nýja-Sjáland em með nokkuð innan við f0% af heims- ffamleiðslunni, þó að þessar þjóðir móti mikið umræðu um verðlag á mjólk og mjólkurvörum. Stærstu aðilar í neyslu á mjólk og mjólkur- vömm em ýmis háþróuð iðnaðar- lönd, auk Indlands. Þá benti hann á hinn ótrúlega mun sem væri á milli landa í ffamleiðslu eftir hvem grip og sagði að á heimsvísu væru meðalafurðir aðeins um 2000 kg eftir hveija kú. í Svíþjóð hefur þróun í átt til stærri framleiðslueininga verið mjög hröð, meðalbúið er nú um 37 kýr, og sem svarar til ffamleiðslu upp á nær 250 þúsund lítra mjólkur á meðalbúinu. Hann taldi að ekki sæi fyrir endann á þessari þróun, hún mundi halda áffam með líkum hraða. Mjólkur- verð hefði farið lækkandi og þrátt fyrir að því sé spáð að verð mjólkur á heimsmarkaði fari hækkandi muni þeirrar þróunar ekki gæta á Norður- löndunum. Aukin alþjóðavæðing í viðskiptum leiði þvert á móti til að hið háa mjólkurverð þar fari ffekar lækkandi. Reynslan sýni hins vegar að feikilegur munur sé á rekstrar- afkomu þeirra sem séu í framleiðslu í dag og aðeins þeir sem hafi þar styrka stöðu verði með í framtíðinni. Hann vænti þess einnig að sérhæfing í úrvinnslu mundi aukast og í ffamtíðnni muni koma í meira mæli beinir samningar afurðastöðva og bænda um framleiðslu mjólkur sem uppfyllti skilgreindar (en breytilegar) gæðakröfur. Síðasta erindið flutti sænskur markaðsfræðingur sem fjallaði um hvaða þættir stýrðu vali neyenda i kaupum á matvælum. Ákaflega margt forvitnilegt kom ffam i því erindi og á þessu sviði er tvímæla- laust mikla þekkingu að sækja fyrir mjólkuriðnaðinn til þess að geta enn betur í framtíðinni mætt sí- breytilegum og Qölbreyttum kröfum neytenda. Jóhannes Torfason formaður NÖK Á aðalfundi samtakanna, sem haldinn var síðdegis á þriðju- Pétur Diðrikssoit flytur erindi á NÖK ráðstefnunnL FREYR 14/98 - 17

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.