Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1998, Síða 33

Freyr - 01.12.1998, Síða 33
má af fjölda ffamleiddra lítra eru búin að meðaltali lítil og ná ekki að nýta sér þá hagkvæmni sem aukin stærð hefur í för með sér en einungis nythæstu búin sýna hagnað að meðal- tali. Aukin nythæð stuðlar að því að hægt er að ffamleiða sama magn mjólkur með færri mjólkurkúm. Avinningur af aukinni nythæð kemur þvi ffam í minni launakostnaði á ffamleiddan lítra. Gert er ráð fyrir að annar kostnaður sem til verður með aukinni nythæð sé innifalinn í breyti- legum og hálfföstum kostnaði búanna og er því meðtalinn í meðalkostnaði í lið 9 í töflu 1 og töflu 2. 3 Afkoma fiokkuð eftir framleiðslumagni Fróðlegt er í framhaldi af umræðunni um nythæð hér að ffaman að skoða afkomu þessara sömu búa, flokkuð eftir fram- eiðslumagni. Það verður til þess að minnstu búin verða að meðaltali minni [talið í ffamleiddum lítrum] og stærstu búin stærri en ef þau eru flokkuð eftir nythæð. Þegar þessi sömu bú em flokkuð eftir ffamleiðslumagni eins og sýnt er í töflu 2 má sjá að meðalkostnaður og tap minnkar einnig eftir því sem ffamleiðslan eykst í lítrum talið. Stærstu búin flokkuð eftir ffam- leiðslumagni framleiða að jafnaði 187.776 lítra og hafa meðalnyt sem nemur 4.357 lítra á kú. Næst stærstu búin ffamleiða 147.196 lítra að jafnaði og hafa minni meðalnyt eða 4.100 lítra á kú en meiri hagnað fyrir skatta sem ræðst af miklum öðrum tekjum. Nythæstu búin flokkuð eftir nythæð hafa meðalnyt sem nemur 4.415 litmm og hagnað sem nemur 1,28 krónum á lítra. Sé þessi hópur búa borinn saman við bú flokkuð eftir framleiðslumagni sem ffamleiða sambærilegt magn (120-140 þúsund lítra), þá má ótvírætt greina hag- kvæmni aukinnar nythæðar á afkomu búanna. Munur á aflcomu þessara búa felst m.a. i launakostnaði sem ræðst af mismunandi fjölda mjólkurkúa við ffamleiðslu á sambærilegu magni. Ut frá jöfnu 3 má fmna áhrif fjölda mjólkurkúa á launakostnað á lítra eins og fram kemur á mynd 2. Minnkandi jaðaráhrif af fjölgun mjólkurkúa á vinnustundir er til þess að launakostnaður á hvem lítra minnkar eftir því sem framleiðslan eykst í lítrum talið. Einnig má sjá að mismunandi afurðasemi gerir það að verkum að búin standa ffammi fyrir ólíkum launakostaði á lítra með sama fjölda mjólkurkúa. 4. Áhrif aukins framleiðslumagns Til að sjá hvaða áhrif aukið ffamleiðslumagn hefur á heildar- og meðalkostnað í mjólkurffamleiðslu var leitast við að meta með aðhvarfs- greiningu kostnaðarfall fyrir ofan- greind 103 kúabú. Mynd 3 sýnir hvemig heildarkostnaðurinn vex með ffamleiddu magni í lítrum talið. Með línulegri aðhvarfsgreiningu fekkst eftirfarandi jafna: (4) C= 1.702.660 + 56,10X (r2 = 0,70; p<0,01 ) Jafnan em tölffæðilega marktæk og sýnir jákvætt samband á milli ffam- leiðslumagns í litrum talið (X) og heildarkostnaðar (C). Fastur kostn- w ■- 3 ■O 3 B W5 O « B 3 « -J — Meðalnyt 2.177 lítrar — Meðalnyt 3.759 lítrar -----Meðalnyt 4.415 lítrar Mynd 2: Launakostnaður á lítra eftir nythœð og jjölda mjólkurkúa; 103 kúabú. FREYR 14/98 - 33

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.