Freyr - 01.12.1998, Page 35
fóðraðar kindur. Búin voru flokkuð
eftir nythæð mjólkurkúa og eftir
framleiðslumagni í þeim tilgangi að
fá fram samanburð á þeim þáttum á
meðalkostnað og afkomu. Þar sem
reiknuð laun eigenda gefa ekki
raunhæft mat á vinnuffamlagi reynd-
ist nauðsynlegt að meta vinnuffamlag
á búunum samkvæmt vinnumæling-
um á kúabúum. Því til grundvallar
vorunotaðarmælingarfrá 121 kúabúi
árið 1982 og út ffá þeim lagt mat á
samband vinnustunda við fjölda
mjólkurkúa. Við ákvörðun á launa-
kostnaði á tímaeiningu var notast við
launalið í verðlagsgrundvelli kúabúa.
Þegar búin eru flokkuð eftir
nythæð kemur i ljós að meðal-
kostnaður þeirra minnkar með
aukinni nythæð sem hefúr jákvæð
áhrif á afkomu þeirra. Há afúrðar-
semi leiðir til minni launakostnaðar
búanna og betri afkomu. Greina má
sömu áhrif þegar búin eru flokkuð
effir ffamleiðslumagni sem bendir til
þess að meðalkostnaður þeirra
minnkar með aukinni ffamleiðslu.
Fram kom að launakostnaður á lítra
fer minnkandi eftir því sem
framleiðslan eykst í lítrum talið.
Athyglisvert er hins vegar ef borin er
saman afkoma búa með sambærilegt
ffamleiðslumagn en ólíka nythæð, þá
má ótvírætt greina hagkvæmni
aukinnar framleiðni mjólkukúa á
meðalkostnað og afkomu þeirra.
Leiddar hafa verið líkur að því að
ofangreind bú séu að meðaltali of
lítil og ffamleiði þess vegna með of
miklum meðalkostnaði. Að
óbreyttum tekjum á lítra þurfa búin
að framleiða a.m.k. um 138.000
lítra að jafnaði svo að meðal-
kostnaður sé ekki hærri en tekjur á
hvem framleiddan lítra.
Að lokum skal áréttað að val á
bústærð er langtímaákvörðun þar
sem vega þarf hvortveggja hið ytra
og innra rekstrarumhverfi búsins.
Ytra umhverfi búsins tekur til alls
þess sem gerist utan þess og markar
rekstrargrundvöll greinarinnar.
Hagkvæm bústærð í dag getur orðið
önnur ef ytra umhverfi greinarinnar
breytist. Greining á innra umhverfi
felur hins vegar í sér mat á þáttum
innan búsins og beinist m.a. að
kostnaðargreiningu og innra skipu-
lagi. Við kostnaðargreiningu er, eins
og ffam hefúr komið, mikilvægt að
greina í sundur skammtíma- og
langtímaáhrif kostnaðar á rekstur
búsins. í því sambandi má benda á
að skammtímameðalkostnaður getur
aukist meira en langtímameðalkostn-
aður við ffamleiðsluaukningu þegar
það kallar á aukna fjárfestingu og
heildaraðlögun framleiðsluþátta.
Þess vegna er mikilvægt að bóndinn
búi yfir vitneskju um hegðun
heildarkostnaðar búsins sem og ytri
aðstæður og miði rekstur og fjár-
festingar við að auka hagkvæmni
með það markmið að lágmarka
meðalkostnað til langs tima.
Heimildaskrá:
Ágúst Einarsson. 1994. Þcettir i
rekstrarhagfrceði. 1. útgáfa. Reykjavík.
Framtíðarsýn.
Ámý Elfa Helgadóttir. Birgitta Helga
X Meðalkostnaður 103jabúa — Aðhvarfslína (jafna 5)
Mynd 4. Meóalkostnaóur 103 kúabúa.
FREYR 14/98 - 35