Freyr - 01.01.1999, Page 28
Keppt var í 350 og 800 metra
stökki á kappreiðum Fáks í sumar
og bættu hestar tima sina stöðugt.
Besti tími sumarsins í 300 metra
stökki fékkst á landsmótinu en
bestu tímamir í 350 og 800 metra
stökki á kappreiðum Fáks.
Kósi frá Efri-Þverá og Daníel I.
Smárason fengu bestu tímana í 300
og 350 metra stökki og vom mjög
sigursælir framan af sumrin, en
Vinur frá Stóra-Fljóti og Stígur
Sæland bættu sig stöðugt siðari
hluta sumarsins og fengu næst
besta tímann í 350 metra stökki og
þriðja besta timann í 300 metra
stökki.
Þrír bestu tímar sumarsins i 800
metra stökki fengust á kappreiðum
Fáks 29. ágúst.
Leiser frá Skálakoti og Axel
Geirsson fengu besta tímann en
Völsungur frá Lækjarskógi og
Stigur Sæland fylgdu fast á efitir.
Kólfur frá Axlarhaga og Hulda
Sigurðardóttir fengu þriðja besta
tímann en Kólfur þessi, þá með
knapann Ágúst Ásgrímsson, fengu
næst besta tima sumarsins í 300
metra stökki á kappreiðum Léttis.
Nari frá Laugarvatni fékk besta
tímann sem vitað er um í 300 og
800 metra brokki. Knapi var
Bergþóra Jósepsdóttir í báðum
tilvikum og í báðum tilvikum á
Geysismótinu í júní.
Áhugi á kappreiðum vaknaði á
ný eftir nokkum dvala og má búast
við mörgum kappreiðum á næsta
ári.
Kósi frá Efri-Þverá fékk besta tímann í 300 metra stökki á landsmótinu á
Melgerðismelum. Knapi er sem fyrr Daníel I. Smárason.
Bendill frá Sauðafelli og Ragnar Hinriksson fengu besta
tima sumarsins í 250 metra skeiði og sigruðu á helstu
mótunum, hér á landsmótinu á Melgerðismelum.
Leiser frá Skálakoti og Axel Geirsson fengu besta tíma
sumarsins í 800 metra stökki og sigruðu tvisvar sinnum
á kappreiðum Fáks í sömu keppnisgrein.
24- FREYR 1/99