Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1999, Side 7

Freyr - 01.09.1999, Side 7
Bændur verða að trúa á eigin framtíð Viðtal við Arnór Karlsson, bónda í Arnarholti í Biskupstungum, og fyrrverandi formann Landssamtaka sauðfjárbænda Arnór Karlsson er trúlega kunnastur fyrir störf sín fyr- ir Landssamtök sauðQár- bænda, en hann var formaður þeirra um 6 ára skeið, frá 1991-1997, en áður hafði hann setið þar í stjóm í tvö ár og er nú fulltrúi þeirra á Bún- aðarþingi. Auk þess hefur hann lengi stundað fjárbúskap og sinnt kennslu. Blaðamaður Freys og Jón Viðar Jónmundsson, ráðunautur, lögðu nýlega leið sina í Amarholt til að ræða við hann og fyrst var hann beðinn um að segja á sér deili. Ég er fæddur í Efstadal í Laugar- dal árið 1935. Foreldrar mínir voru Karl Jónsson, sem var upprunninn í Laugardal, og Sigþrúður Guðna- dóttir, sem var frá Gýgjarhóli hér í sveit. Bæði vom þau ættuð héðan úr uppsveitum Árnessýslu og raunar Flóanum líka. Ég hef átt lögheimili á fjómm stöðum, og þeir sjást allir héðan af bæjarhólnum í Amarholti. Efsti- dalur blasir við í vestri, Gýgjarhóls- kot, þar sem foreldrar mínir bjuggu eftir að þau fóm frá Efstadal, er hér nokkm austar og þar átti ég heima í 17 ár, síðan Ból, sem er hér næsti bær fyrir vestan, þar sem ég bjó í 20 ár og er raunar stundum enn kennd- ur við, og síðustu 19 árin hef ég búið hér. Náms- og starfsferillþinn? Ég hóf námsferil minn í farskóla í Laugardalnum, þá sjö ára, en kennarinn fór þar á milli bæja. Eft- ir það var ég í bamaskólanum í Reykholti hér i Tungunum, en þar var heimavist. Eftir það fór ég í Iþróttaskóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal, veturinn 1951-52, og síðan haustið 1952 að Laugarvatni, í Héraðsskólann. Ég fékk að ljúka honum á tveimur ámm af því að ég hafði verið í Haukdal. Ég fór svo i Menntaskólann á Laugarvatni og varð stúdent úr stærðfræðideild vorið 1958. Það var ákaflega mikið lán fyrir okkur unga fólkið á þessu svæði að fá Menntaskólann hingað að Laug- arvatni. Það er mjög hæpið að við hefðum haft aðstæður til að fara i burtu í menntaskóla. Haustið 1958 fór ég svo til Þýskalands til náms í dýralækning- um í borginni Giesen í Hessen í Mið-Þýskalandi. Fyrst er ég þar fram í febrúarlok 1959, en um það leyti árs hefst tveggja mánaða námshlé í þýskum háskólum. Þann tíma notaði ég til að fara á vertíð í Vestmannaeyjum. í byrjun maí fór ég aftur utan og er fram í júlílok en þá hefst annað námshlé í Þýska- landi. Þá um haustið ákveð ég að hætta þessu námi og snúa mér að búskap. Var þaö eitthvað utanaðkomandi sem þrýsti á þig um það? Nei, þetta var mín eigin ákvörð- un. Að vísu sá ég tæplega fram á að komast í gegnum námið íjár- hagslega. Ég hafði alltaf unnið fyrir mér í skóla og sá ekki að ég gæti það í þessu námi. Ég er úr níu systkina hópi og foreldrar mínir voru famir að reskjast þegar þetta var og vart aflögufær, þótt þau hefðu haft fullan vilja til að styrkja mig, en ég kærði mig ekki Arnór Karlsson, bóndi i Arnarholti í Biskupstungum. FREYR 10/99 - 7

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.