Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 18
Frá Fjárrœktarbúinu
á Hesti
1997-1998
Haustið 1997 voru settar á
vetur 465 ær veturgamlar
og eldri, 133 lambgimbrar,
12 lambhrútar og 16 hrútar full-
orðnir. Alls misfórust 9 ær frá
hausti til sauðburðar. Fyrir áramót
fórust 7 ær, 2 af þeim í haga fyrir
hýsingu, 3 úr heyeitrun í desember,
2 fargað sökum vanþrifa af gaddi
og 2 ær drápust óbomar í aprillok.
Ein ásetningsgimbur misfórst í
skurði fyrir hýsingu.
Tafla 1 sýnir meðalþunga og
meðalþyngdarbreytingar 456 áa
eftir aldri, sem lifandi voru við maí-
vigtun í byrjun sauðburðar, og línu-
rit 1 þunga- og holdaferli þeirra yfir
veturinn.
Við haustvigtun 2. október vógu
æmar 65,7 kg til jafnaðar, sem er
0,8 kg minni þungi en haustið
1996. Meðalholdastig þeirra var þá
3,36 stig (holdastigaskali spannar
tölugildi frá 0 lægst til 5 hæst), sem
er svipað holdafar og haustið 1995,
eða aðeins 0,06 stigum hærra. Eins
og undanfarin haust var ám á annan
vetur, sem gengu með lambi, beitt
á há eftir að lömbin höfðu verið
eftir
Stefán Sch.
Thorsteinsson,
Sigvalda
Jónsson
og
Inga Garðar
Sigurðsson,
Rannsókna-
stofnun
landbún-
aðarins
tekin undan þeim 20 september, en
þar sem nóg var til af hánni, var
eldri ám einnig beitt á hana eftir
haustvigtunina 2. október. Allar ær
búsins vom hýstar 11. nóvember.
A háarbeitinni bötuðu æmar sig
verulega og við nóvembervigtun
námu holdastigin 3,65 stigum og
höfðu því aukist um 0,29 stig, en
hins vegar endurspeglast batinn
ekki í þyngdarbreytingum þeirra á
þessum tíma þar sem þær þyngdust
aðeins um 1,8 kg, sem stafar af því
að háin var nær uppétin og æmar
því kviðlitlar, er þær vom vigtaðar.
Frá nóvembervigtun og til fengi-
tímaloka þyngdust æmar um 2,1 kg
og frá fengitímalokum til marsvigt-
unar var þynging þeirra 5,5 kg. Við
marsvigtunina námu holdastig
ánna 3,89 stigum og höfðu aukist
um 0,24 stig frá nóvemberbyrjun.
Síðustu 6 vikurnar fyrir byrjun
sauðburðar, þ.e. frá marsvigtun til
aprílloka, þyngdust æmar um 3,8
kg en lögðu hins vegar af sem svar-
ar 0,09 stigum, sem er ámóta af-
legging á útmánuðum og undan-
fama vetur.
Meðalþungi ánna í apríllok var
78,9 kg, sem er 3,8 kg minni þungi
en sl. vor. Frá hausti til vors þyngst
þær um 13,2 kg sem er 3,0 kg minni
þynging en veturinn áður, en bættu
0,44 stigum við hold sín á sama
tíma, sem er nánast sama holda-
aukning og sl vetur.
Fóðrun ánna
Tajla 2 sýnir meðalfóður ánna
Tafla 1. Þungi og þyngdarbreytingar ánna, kg
Þungi, kg. Þyngdarbreytingar, kg
Ær á Tala 2/10 3/11 1/12 7/1 16/2 23/3 27/4 2/10- 3/11 3/11- 1/12 1/12- 7/1 7/1- 16/2 16/2- 23/3 23/3- 27/4 2/10- 27/4
9. vetur 2 68,5 69,0 71,5 70,5 72,5 78,0 84,0 0,5 2,5 -1,0 2,0 5,5 6,0 15,5
8. vctur 5 68,2 69,2 69.4 69,8 72,0 78,8 83,4 1,0 0,2 0,4 2,2 6,8 4,6 15,2
7. vctur 17 69,1 70,6 72,5 73,1 74,9 78,6 81,8 1,5 1,9 0,6 1,8 3,7 3,2 12,7
6. vetur 62 70,0 71,2 72,6 74,5 75,7 79,3 82,0 1,2 1,4 1,9 1,2 3,6 2,7 12,0
5. vetur 74 68,7 70,1 71,3 73,3 75,3 79,6 82,8 1,4 1,2 2,0 2,0 4,3 3,2 14,1
4. vetur 100 67,0 68,2 69,8 71,2 73,2 77,4 80,6 1,2 1,6 1,4 2,0 4,2 3,2 13,6
3. vetur 90 65,3 66,9 67,9 69,9 70,4 74,0 78,0 1,6 1,0 2,0 0,5 3,6 4,0 12,7
2. vetur 105 59.4 62,5 61.7 61,5 63,0 67,5 72,8 3,1 -0,8 -0,2 1,5 4,5 5,3 13,4
Meöaltal 456 65,7 67,5 68,3 69,6 71,0 75,1 78,9 1,8 0,8 1,3 1,4 4,1 3,8 13,2
18 - FREYR 10/99