Freyr - 01.09.1999, Síða 33
Neytendapróf. Seinni hluti.
Heildaráhrif
13-GB 15-SP 18-GR 20-IS 19-IS 14-GB 16-SP 17-GR 22-IT 21-IT
7. mynd. Meðaleinkunnir íslenskra neytenda fyrir gœði eldaðra lambalœra.
Evrópu líkar ekki við kjöt af
mjólkurlömbum. Það gerir ekki
mikinn greinarmun á lömbum eftir
því hvort þau hafi verið á grasi eða
kjamfóðri og íslenska kjötið af
haustlömbunum sker sig ekki úr. Þá
em neytendur á Spáni og Grikk-
landi mun næmari fyrir lykt af kjöti
miðað við neytendur norðar í álf-
unni. Hæstu einkunn íyrir heildar-
áhrif fékk kjöt af ungum hrútlömb-
um á kjamfóðri frá Italíu og Grikk-
landi. Frá þessum þjóðum var
einnig kjötið sem fékk lægstu eink-
unn, þ.e. af mjólkurlömbum og
gömlum geldingum. Kjöt af öðmm
lömbum lenti þama á milli. þ.á.m.
kjötið af íslensku haustlömbunum.
Hæstu einkunn fær kjöt af ungum
lömbum og íslenskum hrútlömb-
um. Lægstu einkunn fá ítölsku
lömbin og grísku hagalömbin
Hrútakjötið var einnig dæmt safa-
ríkara en kjöt af yngri lömbum Það
er með næsthæsta einkunn fyrr
bragð.
Ályktanir
Islenskt lambakjöt er meyrasta
lambakjötið í Evrópu. Af þvi er
villibráðarbragð. Neytendum í
Miðjarðarhafslöndum líkar ekki
við okkar kjöt en það gera neyt-
endur í Bretlandi, Frakklandi og á
Islandi. En íslensku neytend-
unum finnst annað kjöt einnig
gott. Til að tryggja hollustu neyt-
enda við íslenskt lambakjöt þarf
að leggja áherslu á sérstaka
meyrni, umhverfi, villibráð, holl-
ustu og smekk íslenskra neytenda
og góðan aðbúnað og meðferð
lambanna. Leggja þarf sérstaka
áherslu á gæði kjöts af sumar-
lömbum. Endurskoða þarf tak-
markanir á slátrun hrútlamba á
haustin.
Heimildir :
1. MLC's Sheep Yearbook 1998. ISBN
904650 62 6.
2. Berge, P., Sanchez, A., Sebastian, I.
,Alfonso, M. Nad Sanudo, C. 1998.
Lamb meat texture as influenced by
animal age and collagen character-
istics. Proceedings 44th ICoMST
Vol. 1, 304-305.
3. Berge, P., Sanchez, A. , Dransfield,
E., Sebastian, I., Sanudo, C., and
Bayle, M.C Variations of meat
composition and quality in different
commercial lamb types. Poster
proceedings of the 45th ICoMST
1999 in Japan.
4. Fisher, A., Nute, G., Berge, P.,
Dransfteld, E., Piasentier, E., Mills,
C., Sanudo, C., Alfonso, M.,
Thorkelsson, G., Valdimarsdottir,
T., Zygoyiannis, D. and Stamataris,
C.: Variation in the eating quality of
lamb from diverse European Sheep
types: Assessment by trained taste
panels in six countries. Poster
proceedings of the 45th ICoMST
1999 in Japan.
5. Sanudo, C., Sanchez, A., and
Alfonso, M.( 1998): Small
Ruminant Production Systems and
Factors Affecting Lamb Meat
Quality. Meat Science Vol.49.
Suppl.l . S29-S65.
6. Sanudo, C., Nute, G., Campo, M.M.,
Maria, G., Baker, A., Sierra, I.,
Enser, M.E. and Woods, J.D. (
1998) : Assessment of Commercial
Lamb Meat Quality by British and
Spanish Taste Panels. Meat Science
Vol. 48, No 1/2 p. 91-100.
IVlolí
Vaxtaraukandi
efni að hverfa
ÍESB
Níu tegundir fúkkalyíja og
annarra vaxtaraukandi efna í
búijárrækt hafa hlotið viður-
kenningu í ESB. Afþeim hafa
fimm nú verið bönnuð frá ár-
inu 1997.
Þetta kemur fram í svari
matvælaráðherra Dana, Hen-
rik Dam Kristensen, við fyrir-
spurn í Danska þjóðþinginu,
Folketinget.
Einungis Svíþjóð hefur
komið á algjöru banni við
notkun fúkkalylja í fóðri til að
auka vöxt búfjár en því banni
verður einnig komið á í Dan-
mörku, sagði ráðherrann í
svari sínu.
Embættismannaráð ESB
hefur enn ekki ákveðið hven-
ær bannið mun taka gildi í öll-
um löndum sambandsins en
landbúnaðarstjóri þess, Franz
Fischler, hefur lýst því yfir að
það muni gerast í áföngum.
(Landsbladet nr. 33/1999).
FREYR 10/99 - 33