Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1999, Síða 34

Freyr - 01.09.1999, Síða 34
Sauðfjársœðingarnar 1998 Sæðingar sauðijár gegna lykil- hlutverki við hraða dreifingu á erfðaefni þeirra einstakl- inga sem taldir eru bestir í sauðfjár- stofninum á hverjum tima. Engum blandast hugur um að þær eiga ómældan þátt í þeim ræktunarár- angri sem orðið hefur í íslenskri sauðQárrækt á síðustu áratugum. Það sem mest dregur úr möguleg- um árangri þessa starfs er að vegna sauðfjárveikivarna eru mjög stór landssvæði þar sem er óheimilt að leita eftir kynbótagripum til nota á stöðvunum, þó að vitað sé um ákaf- lega öfluga kynbótagripi á sumum þessara bannsvæða. I þessari grein verður á hefð- bundinn hátt gefið yfirlit um breyt- ingar í hrútstofni stöðvanna á síð- asta ári og umfangi starfsins í des- ember. Eins og áður voru starf- ræktar tvær stöðvar í desember, að þessu sinni stöðin í Laugardælum á vegum Bsb. Suðurlands og á Möðruvöllum í Hörgárdal, en þá stöð á Ræktunarfélag Norðurlands. Breytingar í hrútastofni voru töluverðar á milli ára; af hrútum sem voru í notkun 1997 voru 15 sem höfðu verið felldir eða sjálfír gengið fyrir ætternisstapa þegar kom að notkun í desember 1998. A stöðvamar komu til notkunar 19 nýir hrútir. Það sem var sérstakt með hrútaval haustið 1998 var að inn á stöðvamar komu fjórir lamb- hrútar frá Freyshólum á Völlum úr hinum sérstaka stofni af ullarfé sem þar er, sem var myndaður með fé sem fékkst tekið í eina gmn frá bú- inu á Skriðuklaustri þegar þar fór ffam heildarniðurskurður fyrir ein- um áratug. (A Skriðuklaustri kom aldrei upp riðuveiki, heldur var nið- urskurður vegna þess að búið var inni á niðurskurðarsvæðinu á Aust- urlandi). A stöðinni í Laugardælum eftir Jón Viðar 1 Jónmundsson wy V Bænda- samtökum í n '>• íslands «IE— vom þannig 22 hrútar í desember og á stöðinni á Möðruvöllum 21 hrútur. Með þeim ffamfömm sem em í sauðfjárrækt hér á landi er eðlilegt að endumýjun hrúta á stöðvunum verði miklu örari en áður. Eins og margoft hefur verið bent á á síðustu árum þá eru margir þeirra hrúta sem koma sem topphrútar í notkun á stöðvunum orðnir undir meðaltali stöðvarhrútanna að þrem til fjórum ámm liðnum. Nýir hrútar á stöð haustið 1998 Þeir hrútar sem vom nýir á stöð haustið 1998 em eftirtaldir; Mjöður 93-813 frá Oddgeirshól- um í Hraungerðishreppi, en hann er sonur Galsa 88-929 frá Hesti, en rnóðir er Brá 87-538 og móðurfaðir er Pjakkur 84-228. Mjöður er hvítur og hymdur og hann var notaður á stöðinni í Laugardælum. Amor 94-814 frá Mávahlíð á Snæfellsnesi, sonur Fóla 88-911 frá Hesti, en móðir Hringja 91-213 og móðurfaðir Muggur 89-028. Mugg- ur er hvítur og hymdur og hann kom til notkunar í Laugardælum. Stubbur 95-815 frá Oddgeirshól- um í Hraungerðishreppi. Faðir er Mjöður 93-813 sem að framan greinir en móðir Rjúpa 92-237 og móðurfaðir Moli 90-300. Stubbur er hvítur og hyrndur og var í notkun í Laugardælum. Veggur 96-816 frá Ósabakka á Skeiðum, sonur Mjaldurs 93-985 ffá Tóffum en móðir Vöm 94-468 sem er dóttir Odda 85-922. Veggur er hvítur og hymdur og var notaður á stöðinni í Laugardælum. Löður 98-818 frá Freyshólum á Völlum, sonur Bjarts 93-800 frá Hjarðarfelli en móðir 93-338 sem er dóttir Snæs 91-376. Lögur er hvítur og hyrndur og var i notkun frá Laugardælastöðinni. Lagður 98-819, einnig frá Freys- hólum á Völlum, sonur Mjaldurs 93-985 frá Tóftum en móðir 94-353 og móðurfaðir hans Goði 90-378. Lagður er hvítur og hymdur og var notaður í Laugardælum. Hnykill 95-820 frá Árbæ í Reyk- hólasveit, sonur Kolls 94-022 en móðir Röst 93-387 og móðurfaðir Freyr 92-010. Hnykill er hvítur og kollóttur og er á stöðinni í Laugar- dælum. Bassi 95-821 er frá Bassatöðum í Kaldrananeshreppi, sonur Prúðs 92-278 frá Hafnardal, en móðir 93- 315 sem er dóttir Vasks 90-937. Bassi er hvítur og kollóttur og er á stöðinni í Laugardælum. Biskup 96-822 er frá Ytra- Álandi i Þistilfirði, sonur Púka sem var frá Syðri-Brekkum á Langanesi. Púki er svartblesóttur, sokkóttur og hyrndur. Biskup er forystuhrútur. Hann er á stöðinni í Laugardælum. Prestur 94-823 er frá Bakka í Bakkafirði og hét faðir hans Greifi en móðir Mókolla og móðurfaðir Móglæsir. Prestur er svartkrögóttur og hymdur. Prestur er forystuhrútur og var hann á stöðinni á Möðm- völlum. Atrix 94-824 er frá Melum I, Ár- neshreppi, sonurNökkva 91-665 og Svölu 91-803 sem var dóttir Dags 88-575. Atrix er hvítur og kollóttur 34- FREYR 10/99

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.