Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 38
þekkja. Þetta lýsir sér í því að ai-
gengast er að saman fari mjög hag-
stætt vöðvamat og óhagstætt fitu-
mat eða öfugt hjá einstökum af-
kvæmahópum. Þess vegna verða
þeir hrútar sem sameina bæði gott
vöðva- og fitumat miklir gullmolar í
ræktunarstarfmu.
Ákveðið var að gera tilraun til að
fá samræmdan einkunnaútreikning
vegna kynbótamatsins, með því að
taka upplýsingarnar um það úr
skýrsluhaldinu frá haustinu 1998 til
sérstakrar úrvinnslu. Til þess að ná
sem mestu að gögnum var hins
vegar ekki mögulegt að fara í þá úr-
vinnslu fyrr en íyrstu daga septem-
ber. Þess vegna hefur enginn tími
verið til að yfírfara að neinu leyti
þær niðurstöður sem hér eru kynnt-
ar og verður því að hafa allan fyr-
irvara á gagnvart hugsanlegum vill-
um í gögnum sem ekki hefur náðst
að leiðrétta á réttan hátt áður en til
úrvinnslu kom.
Til úrvinnslu komu upplýsingar
um kjötmat tæplega 215 þúsund
dilka frá haustinu 1998. Þá höfðu
verið felld úr gagnasafni öll lömb
sem höfðu skráningu sem gaf til
kynna að eitthvað afbrigðilegt væri
um viðkomandi lamb.
Greining var gerð eftir svonefndu
einstaklingslíkani og notað tvi-
breytulíkan. Þ.e.a.s. að þegar kyn-
bótamat er gert fyrir annan þátt
kjötmatsins eru einnig nýttar upp- J
lýsingar um hinn þáttinn í matinu á i
grundvelli þess sem þekkt er um
erfðasamband þáttanna tveggja.
Greiningin er gerð innan búa,
þannig að áhrifum vegna mismunar
í meðferð fjár á milli búa á að vera
eytt. Um leið ættu að hverfa að
mestu áhrif vegna hugsanlegs
munar í framkvæmd matsins eftir
sláturhúsum vegna þess að lömbum
frá flestum búum er slátrað í sama
sláturhúsi.
Leiðrétting er auk þess gerð með
tilliti til fallþunga lambsins, en eins
og áður segir hafði komið í ljós að
það er langsamlega mikilvægasti
skýringarþáttur á mun í mati larnb-
anna. Rétt er samt um leið að gera
sér fulla grein fyrir að mögulegt er
að í einstaka tilfellum skapi slíkar
leiðréttingar skekkju. Þessu má
aðallega vænta um þá hrúta sem
eiga lömb sem víkja umtalsvert frá
meðalfallþunga lamba á búinu. Ef
til vill er sérstök ástæða hér til að
vekja athygli á að mögulegt er að
með slíkri leiðréttingu komi fram
visst ofmat í gerð fyrir þá hrúta sem
eiga lömb sem eru að meðaltali létt
vegna lítillar arfbundinnar vaxtar-
getu þeirra.
Með þessari aðferð á að vera
mögulegt að gera samanburð á
hrútum á milli einstakra búa og yfír
landið í heild. Með þeim miklu
tengingum sem fást með afkvæm-
um sæðingarstöðvarhrútanna skap-
ast grunnur að samanburði á milli
búa. Rétt er að vekja athygli á að
hér er bæði um að ræða afkvæmi
stöðvarhrútanna, sem fínnast í hópi
sláturlamba, en þó enn fremur þann
gríðarlega fjölda hrúta og áa, sem
eru foreldrar lamba í rannsókninni,
en eru sjálf tilkomin við sæðingar. I
þessu sambandi eru hrútar, sem
keyptir eru af öðrum búum, einnig
mjög mikilvægir til að skapa
tengingar á milli búa. Hins vegar
vitum við að enn er mögulegt að
gera stórátak í að bæta ættfærslu
þessara hrúta í gögnunum. Allra
helst á þetta samt við um fjárskipta-
bú.
Rétt er einnig að vekja athygli á
því að þegar ættartengingar eru
nýttar þá á að verulegu leyti að vera
leiðrétt vegna hugsanlegra áhrifa
þess að einstakir hrútar eru ef til vill
notaðar á ær sem eru að einhverju
leyti valdar með tilliti til ættemis.
Það þekkja allir ljárræktarmenn að
er mjög algengt í ræktunarstarfinu.
Þegar allar ættemisupplýsingar
em komnar til skila em orðnar með
Tafla 1. Hæstu hrútar í kynbótamati
Nafn, nr. og bú Fjöldi Fita Gerð ),5 x gerð +0,5 fita 0,75 x gerð 0,25 x gerð +0,25 fita +0,75 fita
Stubbur 95-815, Oddgeirshólum, Hraungerðishreppi 54 107 132 120 126 113
Killer 96-401, Fremri-Gufudal, Gufudalssveit 17 95 139 117 128 106
Fálki 97-753, Staðarbakka, Hörgárdal 23 110 124 117 121 114
Mjöður 93-813, Oddgeirshólum, Hraungerðishreppi 70 110 124 117 121 114
Ári 97-597, Gýgjarhóli, Biskupstungum 24 113 121 117 119 115
Biti 96-704, Ósabakka, Skeiðum 74 113 121 117 119 115
Kúði 97-070, Þverá, Öxnadal 30 116 117 117 117 116
Spói 96-324, Hraunkoti, Skaftárhreppi 43 121 110 116 113 118
Órói 96-017, Finnbogastöðum, Ámeshreppi 39 127 104 116 110 121
Askur 97-300, Lækjarhúsum, Suðursveit 20 87 143 115 129 101
Blossi 96-077, Hnappavöllum 1, Öræfum 68 93 137 115 126 104
Moli 95-364, Stóm-Reykjum, Hraungerðishreppi 41 101 129 115 122 108
Strúi 96-575, Brekku, Lóni 40 102 127 115 121 108
Birkir 95-554, Kirkjubæjarklaustri, Skaftárhreppi 40 105 124 115 119 110
Jón Oddur 93-308, Þverá, Öxnadal 13 109 120 115 117 112
96-428, Litlu-Ásgeirsá, Víðidal 32 126 103 115 109 120
38 - FREYR 10/99