Freyr - 01.09.1999, Page 40
Tafla helstu hrúta 3. Kynbótamat ættfeöra meöal nokkurra stöövar-
Nafn Númer Vöðvi Fita
Kokkur 85-870 110 96
Broddi 85-892 107 99
Oddi 85-922 97 103
j Álfur 87-910 108 83
Krákur 87-920 110 100
Fóli 88-911 111 98
Glói 88-927 109 84
Galsi 88-929 116 101
Nökkvi 88-942 113 87
Goði 89-928 112 88
Klettur 89-930 107 96
Bjöm 89-933 114 100
' Keli 89-955 132 97
| Valur 90-934 107 89
Tumi 90-936 105 100
Vaskur 90-937 107 106
Fóstri 90-743 115 90
Deli 90-944 110 103
i Álfúr 90-973 102 98
Gosi 91-945 114 97
Gnýr 91-967 109 95
Stikill 91-970 111 97
f Fenrir 92-971 112 96
Glampi 93-984 111 102
Penni 93-989 113 100
Frami 94-996 113 94
Tæpast er ástæða til að tíunda hér
þá einstaklinga sem efstir standa í
mati fyrir fítu aðra en þá tvo sem í
töflunni birtast með mat yfir 120
fyrir þann eiginleika. Aðrir einstak-
lingar með mjög hátt mat fyrir þann
eiginleika hafa flestir það slakt mat
fyrir gerð að þeir eru tæpast æski-
legir kynbótagripir. Jafnframt er
ástæða til að velta fyrir sér hvort í
fitumati sé rétt að leggja sama vægi
á þennan þátt eftir að féð er orðið
nánast fitulaust. í hópi þeirra hrúta
sem hljóta hæst kynbótamat fyrir
gerð er Lítillátur 96-575 í Baldurs-
heimi í Mývatnssveit og synir hans
Þór 97-809 og Prúður 97-585 með
feikilega hátt mat, en þessir hrútar
fá um leið það slakt mat fyrir fitu að
þeir ná ekki í töfluna með heildar-
einkunn.
Kynbótamat
sæðingarstöðvahrúta
I töflu 2 er sýnt kynbótamat
sæðingarstöðvahrúta sem voru með
í þessum útreiknum. Þar er um að
ræða hrúta sem áttu þar 50 lömb
eða fleiri tilkomin við sæðingar
sem voru með kjötmat og með í
þessum útreikningum. Þama er til-
greindur fjöldi afkvæma með kjöt-
mat, ásamt kynbótamati fyrir bæði
gerð og fitu. Þá em einnig birt bein
meðaltöl úr matinu um hvom þátt
þar sem matið fær tölugildi eins og
í öðrum útreikningum. (Fyrir gerð:
P=2, 0=5, R=8, U=11, E=14. Fyrir
fitu: 1=2, 2=5, 3=8, 3+=9, 4=11 og
5=14). Astæða er samt til að taka
vara fyrir þvi að lesa mikið úr slík-
um meðatölum beint, þar sem mat-
ið kemur af búum með ákaflega
mikla breidd í vænleika lamba.
Þeim er slátrað í mismunandi slát-
urhúsum og ljölmargir aðrir þættir
hafa meiri eða minni áhrif.
Rétt er að vekja á því athygli að
fyrir suma af hrútunum munu ætt-
ernisupplýsingar, sem fást ffá öðr-
um afkvæmum þeirra en slátur-
lömbunum, vega meira en upplýs-
ingar úr mati sláturlamba undan
þeim sjálfum. Þetta á einkum við
hrútana, sem áður hafa fengið
mesta notkun á stöð,
eins og t.d Hnykk
91-958, Hörva 92-
972 og Galsa 93-
963, en undan sonum
þessara hrúta hvers
og eins eru upplýs-
ingar um kjötmat
mörg þúsund slát-
urlamba frá haustinu
1998.
Astæða er einnig
til að leiða að athygli
að öðru. Slátur-
lambahópurinn
undan þessum hrút-
um er að öllum lík-
indum um margt
ákaflega ólíkur því
sem gerist um flesta
aðra hrúta. Hlutfall
ásetningslamba er
miklu meira meðal
þessara hrúta en ann-
arra. Að óreyndu má
ætla að þau lömb
hefðu við slátrun
sýnt umtalsvert betra
mat, en systkini
þeirra sem höfnuðu á
blóðvelli haustið
1998. Þetta getur að
öllum likindum leitt
til að mat þessara
hrúta verði skekkt og slakara en það
ætti að réttu lagi að vera. Ef þessi
tilgáta er rétt má ætla að áhrif þessa
séu hvað mest hjá yngri hrútunum
sem eiga fá eldri afkvæmi og matið
byggir þvi að stærstum hluta á
kjötmatsupplýsingum afkvæma
þeirra sjálfra frá haustinu 1998.
Þegar grannt er skoðað virðist
mega greina þessi áhrif. Við fyrstu
skoðun virðist einnig að á þeim bú-
um sem eru með allra mesta sölu
líflamba megi hugsanlega greina
hliðstæð áhrif í þeim niðurstöðum
sem hér eru til umfjöllunar, enda
slíkt eðlilegt ef skýringin er hald-
bær.
Ljóst er að í framtíðinni þarf að
finna leiðir til að girða fyrir þennan
ágalla. Okkur sýnist að það verði að
líkindum best gert með því að ná
með í útreikninga einnig öllum
ásetningslömbum sem hafa ómsjár-
mælingar. Nota má erfðasamband
kjötmatsins og ómsjármælinga til
að samþætta þessar upplýsingar.
Ákveðnar rannsóknir þarf að gera á
erfðastuðlum áður en slíkt verður
gert.
Þrátt fyrir hugsanlegt vanmat,
sem Qallað er um hér að ffaman,
eru flestir hrútanna með jákvætt
mat um gerð og meirihluti þeirra
einnig um fitu þó að þar séu niður-
stöður miklu breytilegri. Bútur 93-
982 stendur þama hæstur i mati um
gerð með 117 í einkunn og fitumat
stendur á meðaltali hjá honum.
Þessar niðurstöður koma tæpast að
óvart þar sem meðal sona hans er
að finna fjölmarga af þeim hrútum
sem ofarlega raðast. Þá er Þéttir 91-
40 - FREYR 10/99