Freyr

Volume

Freyr - 01.07.2001, Page 8

Freyr - 01.07.2001, Page 8
ánægður með það. Ég færi bara inn á mitt blað hér og skila því yfir á skrifstofu búnaðarsambandsins til Eiríks Loftssonar ráðunautar og hann sendir það svo suður. Ég hef ekki undan neinu að kvarta þar og held að þetta haldi okkur í vissum tengslum suður. Almennt talað hef ég látið þau orð falla að landsráðu- nautar BÍ þyrftu að vera í meiri tengslum við grasrótina í sveitun- um og vita meira á hverju brennur á hverjum tíma. Að vísu eru hér- aðsráðunautamir milliliðir í ýmsum þessum greinum en stundum tel ég að það væri gott að menn töluðu saman milliliðalaust. Ég tel annars að við höfum hér í Skagafirði átt mjög góða héraðsráðunauta. Grænfóðurrækt Þú varst hér fyrir itm aldarfjórð- ungi fljótur að hagnýta þér tilraun- ir sem þá voru gerðar í grœnfóður- rœkt og i' jarðrœkt yfirleitt. Já, árið 1974 byrjaði ég með fjöldann allan af grænfóðurtegund- um en þá var Tilraunastöðin á Möðruvöllum og Hólaskóli að gera tilraunir með þær hér á Norður- landi, sem þú áttir þá sjálfur aðild að. Sumar duttu nú út strax, ég man t.d. að ég sáði einu sinni fóður- hreðku og hún var svo bragðvond að það vildi engin skepna éta hana, en hún spratt mjög fljótt. Það sem varð niðurstaðan út úr þessu og hefur gilt enn þann dag í dag er að sá saman byggi og rýgresi eins snemma og ég get. Það er svo misjafnt eftir árferði hvenær hægt er að fara að beita á það, eða um 10. júní það fyrsta, en í ár t.d. var kalt vor og þá byrjaði ég að beita á það 20. júní. Af því fæ ég svo endur- vöxt, þ.e. af rýgresinu seinna um sumarið. Eftir byggið og rýgresið tekur svo við sumarrepja, þessi sem blómstrar ein ósköp ef hún bíður of lengi. Að lokum er svo næpan og vetrarrepjan. Ég bæði sái þessum tveimur tegund- um saman og þá verður næpan smærri og viðráðanlegri fyrir kýmar en ég er alltaf með töluvert stykki með tómri næpu. Ég beiti á þetta gjaman samhliða, þ.e. kýmar fara fyrst fram hjá næpunni sem þær fá smárönd af og taka þá kálið af henni, svo em þær á repjunni og á bakaleið- inni taka þær næpumar. Þetta hefur gengið mjög vel og næpan er í raun og veru alveg undrajurt og repjan reyndar líka. Ég hef prófað að grófvinna, þ.e. að plægja og aðeins herfa yfir þýfða móa og sá þar svo næpu og bera vel á og hún hefur sprottið ágætlega. Ertu nokkuð í vandrœðum með kálfluguna? Nei, hún hefur ekki verið neitt til vandræða, þó að maðkur geri svo- lítið vart við sig. Það þarf hins veg- ar að gæta þess þegar nýtt land er tekið í notkun fyrir næpuna að bera á bórax og það gildir líka um kálið. Hvað ertu með grœnfóður í sama landinu í mörg ár? Það fer eftir ýmsu og getur farið allt upp í tíu ár. Varðandi arfann þá er langt síðan ég komst upp í lag með það að plægja landið á vorin strax og það er hægt fyrir klaka, hvolfið því við og herfa ekki neitt og sá bara beint í það og valta það. Með þessu móti kaffæri ég arfann og eftir að ég fór að gera þetta þá hefur það aldrei gerst að arfinn hafi háð kálinu eða næpunni. A tímabili var ég að eitra fyrir arfann og með alls konar hundakúnstir en þetta hefur reynst mér best, þ.e. hvolfa landinu við og hreyfa það ekki meira. Hvað ertu svo með mikið land undir af hverri tegund í hekturum talið? Ég er með rúman hektara af rý- gresi og byggi saman, um hálfan hektara af sumarrepju, af tómri næpu er ég svo með um einn hektara og repja og næpa saman í þetta fjór- um til fimm hekturum og þá græn- fóður í allt að sjö hekturum alls. Beitartímann hefur svo verið breytilegur. Það lengsta sem ég man er að kýrnar hafi verið á græn- fóðurbeit til 2. desember. Sum ár hafa kýrnar hins vegar komið snögglega inn á haustin vegna snjó- komu eða illviðra. í slíkum árum getur eitthvað af kálinu og næpunni orðið lítils virði. Hins vega hafa þá þessar fáu ær, sem hér eru eftir, fengið að vera þama fram yfir ára- mót og þær nýta þetta vel. En hefitr komið fyrir að það hafi snjóað snemma hausts en snjóinn svo tekið og kýmar þá komist út aftur? Já, það hefur komið fyrir að kýmar hafi verið inni 2-3 daga en farið svo aftur út, en ef þær eru búnar að vera inni í e.t.v. hálfan mánuð þá set ég þær ekki út aftur þó að tíðin batni. Aburðargjöf á grœnfóðrið? Ég nota tegundina 15-15-15 á grænfóðrið og ber á hektarann í upphafi, ef hann er áburðarsnauður, þetta hátt í tvo stórsekki, eða 1200 kg, en minna á endurunnið tún eða endurtekna grænfóðurræktun á landinu. Hvaðan kaupir þú áburð? Ég hef síðustu ár keypt áburð frá Kemira í Danmörku sem Kaupfé- lag Skagfirðinga flytur inn. Það hefur sparað mér nú á tveimur ár- um hátt á fjórða hundrað þúsund kr. Þetta er innfluttur áburður, en hve hátt hlutfall af áburði frá Áburðar- verksmiðjunni hf. er innfluttur, þ.e. steinefnin; kalí og fosfór? Ég hef mikið skipt við kaupfélag- ið og ég held að núverandi eigend- ur Áburðarverksmiðjunnar hafi gert mistök með að breyta dreifing- arkerfinu, sem áður var, þegar kaupfélögin sáu víða um dreifing- una. Hins vegar má segja að þessi innflutningur skapi visst aðhald í þessum efnum. Hefur íslenskur áburður ekki bara hækkað minna fyrir vikið? Hvað ertu með mikið aftúnum? Það eru hér í ræktun um 50 hekt- arar og þar af eru heyjaðir rúmlega 40 hektarar í hefðbundnum hey- skap. Svo eru tún sem eru beitt að 8 - FR€VR 9/2001

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.