Freyr - 01.07.2001, Side 18
Súrsun án hjálparefna hefur verið algengasta aðferðin við verkun byggkorns hériendis. Hér
súrsa Haraldur á Vestri-Reyni og félagar hans korn sín.
(Ljósm.: Lilja Guðrún Eyþórsdóttir).
af henni en ráðlagður
hefur verið erlendis (Sjá
Bændablaðið 26. júní sl.
bls. 14). Þetta verður að
kanna nánar. I stofutil-
raunum á Hvanneyri er
verið að reyna önnur
hjálparefni, m.a. jurta-
seyði. Sum þeirra virð-
ast lofa góðu en of
snemmt er að fullyrða
um notagildi þeirra við
súrsun byggs.
Súrverkun byggist á
því að öruggt jafnvægi
náist í geijun og öðmm
líffræðilegum breyting-
um í bygginu. Til
skemmri geymslutíma
litið má yfirleitt tryggja
það, en til lengri tíma
getur það orðið áhættu-
samara. Þá er vel þurrkað
byggkom jafnan ömg-
gara í höndum okkar.
blaði). Til greina kemur einnig að
skera byggið sem heilsáð, t.d. með
fínsöxun þess og síðar súrsun.
Nauðsynlegt er að rannsaka mögu-
lega uppskeruhætti betur, bæði
hvað snertir vél- og verktæknileg
atriði, en líka veðurfæri til upp-
skemstarfanna. (Tafla 1)
Súrsun byggs
Samkvæmt fræðunum á að vera
auðvelt að súrsa byggkorn og
geyma þannig. Rannsókn Kristjáns
Óttars Eymundssonar (1999) sýndi
að hafa má stjórn á gerjun í bygg-
inu enda sé þurrefni þess a.m.k.
60%. (Tafla 2).
Algengast er að bændur súrsi
byggið í plastpokum vörðum stór-
sekkjum úr trefjadúk. Aðferðin
kallar ekki á mikla fjárfestingu;
fremur vinnu. Til beggja vona getur
hins vegar brugðið með geymslu-
tap. Ekki hefur tekist að mæla
reyndartapið svo að viðunandi telj-
ist, en dæmi eru um að bændur hafi
lagt aðferðina af sakir mikilla af-
falla. Hérlendis hafa verið reyndir
dúkturnar/-gryfjur til súrsunar á
byggi. Fyrsta reynsla af þeim virð-
ist lofa góðu en kostnaðurinn mun
ekki síst ráðast af endingu dúksins,
að geymslutapi ógleymdu.
Hérlendis hefur byggið nær ein-
göngu verið verkað án hjálparefna.
Tilraun gerð í Keldudal í Hegranesi
haustið 2000 bendir til ávinnings af
notkun própíonsým, svo og að kom-
ast megi af með mun minni skammt
3. tafla. Vatnsmagn sem þurrka þarf úr byggi við mismunandi þurrefni, í kg vatns á kg þe.
Þurrefni, % Þurrkunarþörf kg vatn/kg þe
55 0,66
60 0,50
65 0,38
70 0,27
75 0,17
80 0,09
Þurrkun byggs
Tæknilega er þurrkun
byggs skýr og fremur einfaldur
ferill. Hvað íslenskar aðstæður
varðar snýst þurrkunin mjög um
kostnað. Hérlendis er ekki á vísan
að róa með sjálfþurrkun byggs við
þroskun á akri. Oft verður þó að
skera byggið illa þroskað og rakt,
jafnvel með 50-55% þurrefni.
Breytilegur kostnaður við þurrk-
un byggkoms ræðst hvað mest af
vatnsmagninu sem þurrka þarf. Það
getum við reiknað þannig:
(100 - þurrefni)/þurrrefni
-0,16 = kg vatn/kg þurrefni
(0,16 kg vatn/kg þe. er vatnsmagnið í
geymsluþurru byggkomi - með 86% þe.)
(Tafla 3).
Til þurrkunarinnar þarf varma-
orku. Fræðilega getum við komist
af með nálægt 600 kcal (~2500 kJ)
til að eima 1 kg af vatni en í góðum
kornþurrkara fara 1200-1600 kcal
til að þurrka 1 kg af vatni úr korn-
inu. Við náum h.u.b. 10.000 kcal úr
hverjum lítra hráolíu við bruna.
18 - FR6VR 9/2001