Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.07.2001, Qupperneq 30

Freyr - 01.07.2001, Qupperneq 30
DeLaval mjaltabás. þannig að á búum með innra gæða- eftirlit lækkaði frumutalan í tank- sýnum eftir að SMT var tekin í notkun. Að öðru leyti var megin niður- staða varðandi mjólkurgæði sú að SMT tækni, eins og hún er fram- kvæmd núna, hefur í för með sér lakari mjólkurgæði með tilliti til frumutölu, gerlatölumagns og frostmarks mjólkurinnar. Gæða- rýrnunin er þó ekki það rnikil að mjólkin uppfyllir samt núverandi gæðastaðla. Þegar SMT er tekið í notkun kemur í ljós að innra gæðaeftirlit hefur jákvæð áhrif á frumutölu mjólkurinnar. Niðurstöðumar sýna einnig að bústjórnin með viðeig- andi ráðgjafarþjónustu og kerfis- bundinni sýnatöku hefur jákvæð áhrif á mjólkurgæðin. Þá kom einnig á ljós að hækkun varð á frostmarki mjólkurinnar og sýrustigi sem má rekja til tækni- legrar útfærslu á búnaðinum fremur en stjórnunarlegra þátta. Því er þörf fyrir lagfæringar og endurbætur á núverandi kerfum sem framleið- endur þurfa að taka sterklega til greina. Astæður fyrir hækkun á gerlatölu mjólkur geta bæði verið af kerfisbundnum sem og stjórnun- arlegum ákvörðunum. Þau vand- kvæði þarf að leysa með samvinnu milli rekstrarstjóra á búunum og framleiðenda á búnaðinum. Júgurheilbrigði Bú, sem eru með SMT kerfi og jafnframt með innra gæðaeftirlit mjólkurbúanna og skýrsluhald, tóku þátt í rannsóknum á júgurheil- brigði. Frumutala var könnuð árið áður en SMT var tekið í notkun og einnig eftir að búnaðurinn hafði verið notkun í eitt ár. Um var að ræða 69 bú. í ljós kom að eftir að SMT var tekið í notkun varð aukn- ing í skyndilegri hækkun á frumu- tölu (akut forhöjelse) . Aukningin mældist á 66 af 69 búum. Tíðnin vegna viðvarandi hækkunar (krpn- isk forhöjelse) á frumutölu reyndist svipuð eftir að búnaðurinn var tek- inn í notkun og árið áður. Því má ætla að á búum með SMT kerfí aukist tíðni á skyndihækkun frumu- tölu fyrsta árið. Með gagnasafninu er ekki hægt að greina einhlítar skýringar á þessu. Sjúkdómaskráning við breytta mjaltatækni Sjúkdómaskráning á gripum, sem voru meðhöndlaðir með einum eða öðrum hætti, var unnin út frá gagnagrunni frá 53 búum. Það voru gögn sem var safnað á tímabilinu 180 dögum áður en SMT var tekin í notkun og þar til eftir 180 daga notkun. Fjölgun í skyndihækkun frumutölu kom ekki fram í aukn- ingu á skráningu vegna sjúkdóma. Gögnin sýndu mjög lága tíðni af öðrum sjúkdómum eins og melt- ingartrufíunum, súrdoða og fóta- sjúkdómum. Ekki kom fram munur á tíðninni eftir að SMT var tekin í notkun. Hjá fyrsta kálfs kvígum var júg- urbólgumeðferð á tímabilinu 0-180 dögum, eftir að SMT var tekin í notkun, seinna á tímabilinu en áður en búnaðurinn var tekinn í notkun. I gagnasafninu eru vísbendingar um að bú, sem áður höfðu tiltölu- lega lága tíðni áður en SMT var tekin í notkun, höfðu hærri tíðni á eftir og að bú sem höfðu háa tíðni fyrir notkun búnaðarins urðu vör við hlutfalllega lækkun. Innréttingar fjósanna og umferð kúnna Fjós með SMT tækni þarf að vera þannig innréttað að kýrnar geti hindrunarlaust gengið fram hjá hver annarri á göngusvæðum og jafnframt þannig að umferð grip- anna sé eðlileg frá legubásum grip- anna að mjaltastað, að gjafasvæði og að hvíldarsvæði. Innréttingum í fjósinu þarf að haga þannig að auð- velt sé að breyta þeim sem og skipulagi milli frjálsrar umferðar gripanna og stýrðrar. Með stýrðri umferð er átt við að á ákveðnum stöðum séu einstefnuhlið. Fyrir framan mjaltabásinn er biðsvæði sem oft er útbúið með tilliti til flokkunar gripanna, þ.e. hvort þeim er hleypt til mjalta eða þeim beint fram hjá mjaltabásnum. Eftir mjalt- ir er kúnum ýmist beint inn á sér- stakt meðferðarsvæði, ef eitthvað reynist að, en ella í frjálsan aðgang að fóðri. Kýr á meðferðasvæði eiga að hafa aðgang að fóðri, brynningu og legubásum. Legubásar gripanna þurfa annað hvort að vera með bás- mottum (dýnum) eða góðum undir- burði. Umferðasvæði gripanna þurfa helst að vera þurr og „hrein“ til að ekki gangist mykja upp í bás- ana og komist verði hjá klaufsjúk- dómum eftir því sem kostur er. Sér- staklega þarf að huga að umhverfí mjaltaeiningarinnar til að hún vinni eðlilega og starfsfólkið eigi greiðan 30 - pR€VR 9/2001

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.